Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
182. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
A Fimmvörðuhálsi
Morgnnblaðið/RAX
Syneta-slysið
við Skrúð:
Rannsókn
lokiðá
Bretlandi
London, Reuter.
í SKÝRSLU breskrar rannsókn-
arnefndar, sem fjallaði um
Syneta-slysið við Skrúð sl. jól,
er sagt að yfirmaður sá, er var
á vakt, hljóti að hafa verið sof-
andi, veikur eða fjarverandi. Öll
áhöfn skipsins, alls 12 manns,
fórst í slysinu en skipið strandaði
við eyna Skrúð í desember síðast-
liðnum.
Nefndarmenn segja að engin
önnur skýring sé hugsanleg á því
að yfírmaðurinn hafí ekki fylgst
með stefnu skipsins er það stefndi
upp í klettana á jólanótt. Skipið var
á 7,5 hnúta hraða er það strandaði.
Syneta var um 1230 tonn að
stærð og var áhöfnin að hálfu frá
Bretlandi, hinir frá Grænhöfðaeyj-
um. Áhöfninni tókst ekki að koma
út björgunarbátum sakir öldugangs
að því er sagði í tilkynningu skip-
stjórans.
Birgðaflutningaskip
springur á Persaflóa
Talið víst að það haf i siglt á tundurduf 1
Abu Dhabi, Bahrain, Reuter.
í GÆR sprakk skip í mynni Persaflóa í loft upp og telja
eigendur þess að það hafi siglt á tundurdufl. Ellefu manns
voru um borð og hefur lík eins fundist, fimm eru í sjúkra-
húsi, en fimm er enn saknað. Þá bar það til í gær að
sprenging varð í olíuhreinsunarstöð í Saudí-Arabíu,
en ekkert bendir til annars en að þar hafi verið um iðnaðar-
slys að ræða.
Skipið sprakk í loft upp í mynni
flóans, um 11 km norðvestur af
Fujairah-höfn í Sameinuðu
furstadæmunum og sukku leifar
þess samstundis. Skipið, Anita, var
notað til þess að flytja vistir um
borð í önnur skip. „Ef skip af þess-
ari stærð siglir á tundurdufl er
hægt að afskrifa það,“ sagði skipa-
miðlari nokkur.
Sameinuðu furstadæmin höfðu
tilkynnt daginn áður að landhelgi
þeirra væri örugg og svo að segja
laus við tundurdufl.
Prá því að bandaríska olíuskipið
Texaco Caribbean sigldi á dufl
skammt frá Fujariah-höfn síðastlið-
inn mánudag hafa þrjú tundurdufl
fundist og verið gerð óvirk. í vik-
unni lést saudi-arabískur sjóliðs-
foringi við það verk norðarlega í
flóanum, en að sögn fréttastofu
Saudi-Arabíu var duflið sprengt of
nálægt slæðaranum.
Sprengingin í olíuhreinsunar-
stöðinni, sem átti sér stað klukkan
fímm í gærmorgun að íslenskum
tíma, olli talsverðum eldum og slys-
um á mönnum. Nokkrir voru fluttir
í sjúkrahús, en utan fjögurra, sem
brenndust illa, fengu þeir að fara
heim eftir að gert hafði verið að
sárum þeirra. Ólíklegt er talið að
um skemmdarverk hafi verið að
ræða og sögðu heimildarmenn að
allt benti til þess að hér væri á ferð-
inni „venjulegt iðnaðarslys".
Olíuhreinsunarstöðin er í eigu
Aramco og er í Ras al-Juaimah við
strönd Persaflóa um 70 km norður
af Bahrain.
Með allt á
homum sér
Amsterdam, Reuter.
HOLLENZK kýr gekk af göflun-
um í sláturhúsi i Amsterdam í
fyrradag. Hún hefur ef til vill
gert sér grein fyrir því að gripi
hún ekki til örþrifaráða yrði hún
ekki mikið lengur í tölu lifenda.
Að minnsta kosti tók hún á rás
út úr sláturhúsinu og slasaði
fjóra vegfarendur í miðborg
Amsterdam áður en lögregla
yfirbugaði hana.
Ungri konu tókst með naumind-
um að hrifsa bam sitt áður en kusa
hljóp niður bamavagn hennar. Fjór-
ir aðrir vom of seinir að forða sér
og slösuðust tveir þeirra alvarlega
er flóttakýrin tók þá á homin. Lög-
regla og dýragarðsstarfsmenn
eltust við kúna í 20 mínútur áður
en þeim tókst að skjóta í hana svæf-
ingarlyfí. Óróaseggurinn hafði þá
valdið ómældri ringulreið og um-
ferðartmflunum í stórborginni.
David Lange á kjörstað.
Nýja Sjáland:
Verkamannaflokkur-
inn vinnur öðru sinni
Wellington, Reuter.
Verkamannaflokkur Davids
Lange vann annan kosningasigur
sinn í gær og verður því við völd
á Nýja Sjálandi næstu þijú ár.
Það var leiðtogi sljórnarandstöð-
unnar, Jim Bolger, sem hringdi
í Lange og játaði sig sigraðan,
þremur stundum eftir að kjör-
stöðum var lokað.
„Til hamingju, þú hefur greini-
lega atkvæðin til þess að axla
byrðina næstu þrjú ár,“ sagði Bolg-
er. „Megi þér famast vel og megi
Nýja Sjálandi famast vel.“
Kosningabaráttan stóð fyrst og
fremst um efnahagsráðstafanir
Verkamannaflokksins. Dreifbýlis-
fólk, sem helst varð fyrir barðinu á
þeim, studdi Þjóðarflokkinn, en það
dugði ekki til, því Verkamanna-
flokkurinn hafði traust fylgi í stærri
borgum og bæjum.
Þetta er í fyrsta sinn frá 1946,
sem stjóm Verkamannaflokksins
situr tvö kjörtímabil í röð.