Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
7
Alþýðubandalagið:
Þingflokkurinn fjall-
ar um kvóta Jökuls
KVÓTAMÁl Jökuls á Hellissandi
voru rædd á síðasta þingflokks-
fundi Alþýðubandalagsins, að
beiðni Skúla Alexanderssonar,
alþingismanns og framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Að sögn
Svavars Gestssonar, formanns
Alþýðubandalagsins, gerði Skúli
grein fyrir sínu máli en engin
afstaða var tekin til þess af hálfu
þingflokksins að svo komnu máli.
Ráðuneytið hefur veitt fyrirtæk-
inu 30 daga frest til að skýra
mál sitt.
„Mér fannst sjálfsagt að láta
þingflokkinn vita hvemig málið
stæði," sagði Skúli. „Ég var búinn
að fara með málið i fjölmiðla og
ákvað að láta þingflokkinn vita
hvemig hlutimir lágu frá minni
hálfu. Ég á ekki von á öðru en að
hann standi með mér.“ Skúli sagð-
ist fagna því að eigendur þeirra
báta, sem hafa lagt upp hjá Jökli,
hefðu blandað sér í málið og taldi
að fleiri myndu koma á eftir. Ekk-
ert væri sannað fyrr en hægt væri
að benda á þá báta sem hefðu lagt
upp umframafla hjá Jöklij ef um
slfkan afla væri að ræða. „Á meðan
er þetta ekki annað en blekkingar
og hugarburður ráðuneytisins,“
sagði Skúli. „Sjálfsagt verður sú
leið farin að óskað verður eftir að
kannað verði hvar, hvemig og hvað-
an þessi fiskur, sem ráðuneytið á í
Jökli, hefur komið. Ætli ég verði
ekki að fara í það að biðja ráðuneyt-
ið að greiða mér þennan fisk, fyrst
ég á að fara að borga hann.“
Skúli ítrekaði að ráðuneytið færi
með ósannindi í málefnum Jökuls.
Hann sagði að ár eftir ár hefðu
bátar eins og Hamar verið með eitt
allra besta hráefnið samkvæmt
ferskfískmati og þeir væru braut-
ryðjendur í því að vera með allan
afla í keijum. Skúli sagði að þegar
Jón B. Jónsson, skrifstofustjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, héldi því
fram að hann hafi verið með skæt-
ing í bréfi til ráðuneytisins, þá
væri Jón að vísa til þess að Skúli
hefði óskað eftir upplýsingum um
hver ætti að greiða kostnað við að
hafa upp á þeim 120 tonnum sem
ráðuneytið segði_ að Jökull hefði
umfram kvóta. „Ég varð svo undr-
andi að ég vildi fá að vita hver
borgaði þeim kaup sem færu í að
kanna málið og hrekja ósannindi
ráðuneytisins," sagði Skúli.
21:15
(Ike, the War Years). Dwight
David Eisenhower, fyrrum for-
seti Bandaríkjanna varyfirmað-
urherafla bandamanna i seinni
heimsstyrjöldinni. Myndin fjallar
um það timabil i ævi hans og
samband hans við ástkonu sina
Kay Summersby.
ANNAÐKVÖLD
iiiiiiirriTir
20 00 Mánudagur
.. U UTILOFTIÐ
í þessum þætti verður fjallað um
siglingar. Guðjón Arngrímsson
ogJóhann Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri sigla útásundin
úti fyrir Reykjavik iblíðskapar-
veðri.
Mánudagur
AMASÓIMUR
(Amazons). Ungur skurðlæknir
rannsakar dularfullan dauðdaga
þingmanns isjúkrahúsi i Was-
hington. Hún uppgötvar leyni-
samtök kvenna sem hafa ihyggju
að taka yfir stjórn landsins.
Auglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lyklllnn faarA
þúhjá
Helmlllstaakjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Síðustu tækifærin
til að komast íMallorcaferð fyrirlrtið
- og framlengja sumarið um leið!
Um leið og sumarið fer að styttast bjóðum við síðustu sætin í
síðustu ferðirnartil Mallorca á þessu tímabili. Þeir sem enn
hafa hug á að leggja land undirfót og sjá og reyna loftslagið,
verðlagið, íbúðirnar, þjónustuna, fararstjórnina og vildarkjör
Samvinnuferða-Landsýnar á Mallorcaferðunum sem slógu
svo rækilega í gegn í sumar ættu að panta sem fyrst
- eiginlega strax - því það er allt að fyllast!
'Jafnaðarverð, miðað við fjóra í íbúð,
tvo fullorðna og tvö börn, tveggja til tólf
ára. Innifalið (verði erflug, gisting I
íbúðum, aksturtil og frá flugvöllum
erlendisog íslenskfararstjórn.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Simar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu við Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 ■ 96-27200
Kylfingarog
fjölskyldufólk, athugið!
Við minnum sérstaklega á
þriggja vikna golfferð með
Kjartani L. Pálssyni til
Mallorca 28. september,
- einstakt tækifæri til að
samræma skemmtilega
fjölskylduferð og sumargolf í
ákjósanlegu veðri við
aðstæður í heimsklassa. Fáið
nánari upplýsingar á
skrifstofunum.