Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 9

Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987 9 HUGVEKJA Andans- og veraldar auður Guðspjall dagsins er sagan af rangláta ráðsmanninum. Hún er með skrítnari dæmisögum Nýja Testamentisins og lærðustu mönnum virðist jafnvel vafasamt, að hún hafi verið sögð, eins og hún er skrifuð, eða þá að hún hafi verið hermd upp á svo stað- bundnar aðstæður, að hún missir að verulegu leyti marks hjá öllu venjulegu fólki. Hvað sem því líður, þá má kannast við sumt í sögunni, svo sem vaxtabrask og verðbréfa- svind! og ftjótt hugmyndaflug manna, þegar þeir vilja auðgast með skjótum og fyrirhafnarlitlum hætti, lítillega á svið við lög og rétt, a.m.k. siðferðislega skáhallt. Ritskýrendur telja flestir, að ráðsmannsdulan hafi einmitt lent í þeirri freistni að fara að spekúl- era með höfuðstól húsbóndans, til þess að hirða sjálfur vaxtamis- muninn, en orðið hræddur, þegar sá gamli vildi fara að skoða bók- haldið, og drifið í því að strika út þann vaxtaauka, sem hann ætlaði sjálfum sér, þannig hafði hann þá báða góða, húsbóndann og skuldarann. Húsbóndinn virð- ist hafa verið slunginn í fjármálum sjálfur og er undir niðri dtjúg- ánægður með, hvað ráðsmaðurinn hefur náð að tileinka sér ve! þau lögmál, sem gilda í þessum hluta viðskiptalífsins. Þetta er eitthvað í líkingu við það, sem kallað hefur verið löglegt, en siðlaust. Meðferð efnalegra verðmæta lýtur lögmálum í öllum samfélög- um. Efnaleg verðmæti eru mikil- væg, vegna þess að mannfólkið er efnisverur, sem þurfa sitt dag- lega brauð. Næringu, klæði, húsnæði, verkfæri o.s.frv. Maðurinn er mótaður af leir jarðar. Hann er samansettur af samböndum sömu frumefna og allt annað í heiminum. Lifandi og dautt. Hann lifir ekki án efna- legra gæða í einhvetjum mæli. Hann lifir ekki heldur á brauði einu sarnan. Væri svo, þá væri maðurinn aðeins uppréttur api, sem færi um jörðina, nærðist af henni og tímgaðist og væri eins og önnur dýr merkurinnar. Maðurinn hefur hins vegar þeg- ið mynd sína frá Guði með sér- stökum hætti og lífsanda og skyn og skilning, sem greinir hann frá öllum öðrum lífverum. Maðurinn er fær um að tjá reynslu sína og skilning og hugsun með fjöl- breyttum hætti. Hann er fær um að skapa og varðveita andleg eftir sr. JÓN RAGNARSSON 9. sd. e. Trin. Lk. 16:l.-9. Ríki maðurinn og hinn fátæki. Lúk 16. 19. verðmæti. Hann er ekki takmark- aður við það að safna efnalegum forða til vetrarins, eins og sumar fyrirhyggjusamar skepnur gera af eðlishvöt. Maðurinn heyjar sér einnig andlegan forða í trú, listum, þekk- ingu og skapandi starfi. Þau verðmæti eru stundum ekki beinlínis áþreifanleg, heldur bund- in stað og stund, þ.e.a.s. tjáning þeirra, þó að tilfinningin, eða hug- myndin hafi lengi lifað í hugskoti og hjarta manns og fari ekki for- görðum í bráð. Andleg verðmæti lúta öðrum lögmálum en efnaleg. Þau ávaxtast með öðru móti, með því móti einu, að menn deili þeim með sér. Það vex ekki trú með okkur nema Orðið sé lifandi og virkt. Það verður að lesa Ritninguna og prédika í söfnuðinum og tjá reynsluna af kærleika Guðs með öllum þeim aðferðum, sem við búum yfir. Það vex enginn höfuð- stóll, sem geymdur er í úreltri mynt undir höfðalaginu meðan verðbólguloginn nagar utan úr verðgildinu. Andleg verðmæti, sem ekki eru tjáð og höfð á orði — með höndum — eða búin í tón, lit, eða eitthvert efni. Þau verða ekki neitt. Koma engum að haldi, verða engum til auðgunar og eflingar í trú og lífi. Það er andi mannsins, sem um- skapar efnið { verðmæti. Hinn andlegi maður getur ekki tjáð sig án efnismennisins, því mennskan er samruni og jafnvægisþraut þessara þátta í hvetjum einstakl- ingi og mannkyni sem heild. Eiríksgata — Reykjavík Höfum fengið til sölu 3ja herb. íbúð, ca 70 fm. Getur losnað mjög fljótlega. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Árni Grétar Finnsson hrl., Strandgötu 25, Hafnarfirði, sími 51500. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Til sölu Sumarhústil flutninga til sölu. Upplýsingarí síma 12443, Gengi: 14. ágúst 1987: Kjarabréf 2,219 - Tekjubréf 1,204 - Markbréf 1,105 - Fjölþjóðabréf 1,060 NÝJUNG í PENINGAMÁLUM Nú getur þú einnig ávaxtað fé þitt í KRINGLUNNI. Um leið og þú gerir innkaup þín í Kringlunni getum við aðstoð- að þig við að ávaxta fé þitt á hagkvæman hátt. Hjá okkur getur þú einnig sótt um Eurocard kreditkort og keypt þér líf- og heilsutryggingu. Við leggjum áherslu á persónulega ráðgjöf. Allir geta verið með. Þú getur byrjað með smáar upphæðir jafnt sem stórar. Mögu- leikarnir eru margir s.s. Kjarabréf, Tekjubréf, Markbréf, Fjölþjóða- bréf, Fjármálareikningur og Frjálsi lífeyrissjóðurinn. Við starfsfólk Fjárfestingarfélagsins í Kringlunni erum ávallt reiðubúin að aðstoða þig. Lína G. Atladóttir FJÁRFESriNGARFÉlAGIÐ Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700 Sigrún Ólafsdóttir Stefán Jóhannsson Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.