Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
Morgunblaðið/Ámi Hclgason
Tólf bílar voru hífðir um borð. Um 100 manns fóru með Baldri í
þessa ferð.
Stykkishólmur:
Vinsælt að ferð-
ast með Baldri
Stykkishólmi.
GUÐMUNDUR Lárusson fram-
kvæmdastjóri Baldurs hf. sagði
mikla þörf fyrir nýju ferjuna
þegar fréttaritari Morgunblaðs-
ins átti tal við hann þar sem
hann var í önnum við að koma
bifreiðum um borð í Baldur sem
var að búast til brottfarar yfir
Breiðafjörð til Bijánslækjar.
Fólkið hópaðist um borð og yfir
100 manns fóru með Baldri annað-
hvort til Flateyjar eða yfir fjörðinn.
í Flatey er nú unnið að fegrun
staðarins og á kvikmyndataka
Ágústs Guðmundssonar mikinn
þátt í því.
Guðmundur sagði að nú yrði
hann að vísa bílum frá í ríkari
mæli en áður, fleiri vildu stytta sér
Ieið til Vestfjarða með því að fá
bílana flutta yfir fjörðinn og væri
þetta á báða bóga og nóg hefði
verið að flytja það sem af væri
sumri. Taldi Guðmundur að með
tilkomu feijunnar, sem nú væri í
smíðum, myndu viðskiptin aukast
og fleiri nota sér þennan kost. Hann
sagði einnig að fólksfjöldi í þessum
ferðum færi vaxandi með árunum,
það væri enginn vafi. Guðmundur
taldi feijuna eins og hún ætti að
vera; góðan, hraðskreiðan sjóbát,
og gæfi því meiri möguleika.
A bryggjunni var fólk að búa sig
til ferðar. Bílamir voru hífðir út í
bátinn hver af öðrum uns 12 voru
komnir um borð, en þá komust
ekki fleiri. Þeir voru heldur súrir á
svipinn sem komust ekki með bílana
sína og urðu að taka krókinn kring-
um Breiðafjörðinn.
— Árni
Keflavík:
Malbikað
fyrir 16
milljónir
Malbikunarframkvæmdir
standa nú yfir í Keflavík og
er ætlunin að malbika 3,5
kílómetra. Kostnaður við allt
verkið, sem er nýlagnir og
viðgerðir, er rúmar 16 millj-
ónir króna.
Verktaki er Hlaðbær og hófust
framkvæmdir í byijun ágúst og
er áætlað að þeim verði lokið um
miðjan september.
Að undanfömu hefur Hafnar-
gatan, sem er helsta umferðar-
og verslunargata í Keflavík, verið
lagfærð og á hana lögð ný klæðn-
ing að hluta.
Nýtt fræðslu-
rit um vímu-
efnamál
FRÆÐSLURITIÐ Okkar á miUi
er komið út. Ritið er gefið út á
vegum Samstarfshóps um vímu-
efnamál undir stjórn Arna
Einaresonar fulltrúa í samvinnu
við Áfengisvamarráð, íþrótta-
samband Islands, Ungmennafé-
lag ísiands og Foreldrasamtökin
Vímulaus æska. Fulltrúar þess-
ara aðila auk fulltrúa fíkniefna-
lögreglu rita ávörp í ritið.
Okkar á milli fjallar um neyslu
fíkniefna, helstu skýringar á henni
svo og efnin sjálf og áhrif þeirra.
Áhersla er lögð á ábyrgð einstakl-
ingsins og mikilvægi þess að hann
ígrundi vel allar hliðar áður en hann
tekur ákvörðun um neyslu þessara
efna.
Ritstjóri og höfundur texta er
Ámi Einarsson fulltrúi Afengis-
vamarráðs en um myndskreytingar
sér Brian Pilkington. Okkar á milli
verður sent inn á öil heimili í landinu
á næstu dögum og er þess vænst
að foreldrar kynni sér efni þessa
rits með bömum sínum og ræði við
þau um þessi mál.
Doktor í sjávarlíffræði
ÞANN 27. mars sl. varði Jömnd-
ur Svavarsson doktorsritgerð
sína í sjávarlíffræði við Gauta-
borgarháskóla. Ritgerðin nefnist
„Systematics and zoogeography
of arctic deep-sea asellote
isopods (Cmstacea, Isopoda),
with notes on the biology of the
eurycopid Eurycope brevirostris
Hansen, 1916 (Asellota, Isopoda)".
Andmælandi var dr. Torben Wolff
frá Kaupmannahafnarháskóla, en
hann er þekktur fræðimaður á sviði
djúpsjávarlíffræði.
Doktorsritgerðin er á sviði djúp-
sjávarlíffræði og Q'allar um smásæ
krabbadýr af ættbálknum Asellota
úr dýpri hluta Norður-íshafs. Efni
til ritgerðarinnar var safnað í
nokkrum leiðöngrum með norska
rannsóknarskipinu Hákon Mosby
og franska rannsóknaskipinu Jean
Charcot víða á hafsvæðinu milli
Grænlands og Noregs (Grænlands-
og Noregshaf) og einnig í um-
fangsmiklum leiðangri norðan
Svalbarða með sænska ísbijótnum
Ymer. Sýna var aflað allt niður á
4.000 metra dýpi, sern er mesta
þekkta dýpi í Norður-íshafi.
í ritgerðinni er lýst 11 áður
óþekktum dýrategundum, og jafn-
framt er lýst nánar fjöída sjald-
gæfra og illa þekktra tegunda. í
Dr. Jörundur Svavarsson
IR-VIKUFERÐIR!
GLASGOW - LONDON - HELGARFi
Þetta eru ferðir fyrir pig. Þú nýtur þess að
heimsœkja þessar stórkostlegu borgir og
gera hagstœð innkaup í leiðinni svo eitt-
hvað sé nefnt. Þú átt kost á fjölbreyttu
menningarlífi og skemmtunum. Við nefn-
um, til dœmis, leikhús, tónleika, söfn,
og ótal dans og veitingastaði, sem þú
getur valið úr. Að skoða mannlífið er einnig
ógleymanlegt, og kostar ekki neitt!
Dœmi um verð:
LONDON
Helgcirferðir: Föstudagur til mánudags, frá kr. 16.555, ■ á mann,
Vikuferðir. Frá kr. 25.522,- á mann.
Þú getur valið úr mörgum gerðum afhótelum t.d. Cumherlan,
Westbury, Clifton Ford, Gloucester, London Metropol o.fl.
GLASGOW
Helgarferðir: Frá laugardegi til þriðjudags, kr. 13.670,- á marírtf
Vikuferðir: Frá laugardegi til laugardags, kr. 24.428,- á mann.
í Glasgow er gist á Hospitality Inn, stórglœsilegu fjögurra^^f^ffVf f
stjömu hóteli sem er í hjarta verslunarhverfisins. Getur ekki ver- '■'&* : * ■* ’
ið betra!
Verðið gildir til 1. nóv. nœstkomandi.
STEVE WONDER TÓNLEIKAR.
Brottför 2. sept., komið heim 6. sept. Stórkostlegt tœkifceri til að heyra þennan jféimsfrcegc
tónlistarmann flytja söngva sína í Wembley Arena tónleikahöllinni íLondon. Þú þarft ekki að
bíða í biðröð eftir miðanum. Við seljum j)ér hann hjá Terru. Einungis sceti á mjöggóðtim staðL
Þú kemur brosandi til baka úr þessari ferð!
'Vw
mr
<"r
wm
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 29 Simi 26100
ritgerðinni er skýrður uppruni hinn-
ar norrænu djúpsjávarfánu og
raktar mögulegar leiðir fyrir ferðir
tegundanna inn í Norður-íshafið. í
síðasta hluta ritgerðarinnar er gerð
grein fyrir lífsháttum algengrar
djúpsjávartegundar, en fram til
þessa hafa lífshættir norrænna
djúpsjávarlífvera verið nær óþekkt-
ir.
Jörundur lauk BS-prófi í líffræði
frá Háskóla íslands í júní 1977 og
framhaldsverkefni 1980. Hann lauk
M.Sc.-prófi frá Gautaborgarháskóla
1984.
Foreldrar Jörundar eru Svavar
Kristjónsson, rafvirkjameistari, og
Ólína Jörundsdóttir. Jörundur er
kvæntur Sif Matthíasdóttur, tann-
lækni, og eiga þau þijár dætur.
Jörundur er settur dósent í sjáv-
arlíffræði við líffræðiskor raunvís-
indadeildar Háskóla íslands.
ÚRVALS
FILMUR
. Fástá
bensinstóðvum
ii