Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987 23 Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson íslensku áhorfendurnir hafa tekið virkan þátt í keppninni og- stutt vel við bakið á strákunum. Hér fagna þeir Sigurbirni eftir að hann hafði lokið keppni í fjórgangi í gær. Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum: Signrður og Sigur- bjöm í öðm sæti í fimm og fjórgangi Weistrach, frá Valdimar Krisinssyni SIGURBJÖRN og Bijánn höfn- uðu í öðru sæti í forkeppni fjórgangsins á föstudag og voru þeir rétt rúmum tveimur stigum fyrir neðan Bernd Vith, Þýskalandi á Örvari frá Kálf- hóli. Sigurður Sæmundsson hafnaði í öðru sæti á Kolbeini í fimmgangi með 59,20 stig. Báðir voru þeir þar með komn- ir í A-úrslit. Aðrir í úrslitum í fjórgangi auk Sigurbjörns og Bemt Vith em Þjóðveijarnir Helmut Lange á Björt með 53,04 stig, Karli Zings- heim á Loftfara með 51,68 stig og Bodil Fryd, Danmörku á Væng með 49,64 stig. Litlu munaði að Sævar Haraldsson á Háfi kæmist í A-úrslit en hann var tæpu stigi fyrir neðan þá dönsku. Fer hann í B-úrslit ásamt Hafliða Halldórs- syni á ísak sem hafnaði í áttunda til níunda sæti, ásamt Krister Agren frá Sviss á Dodda með 47,60 stig. Þess má geta að Haf- liði skipti um skoðun og ákvað að taka þátt í víðavangshlaupinu þar sem hann á nú góða mögu- leika á sigri í samanlögðum fjórgangi eftir góða framistöðu í hlýðnikeppni og fjórgangi. í úrslitum í fimmgangi verða auk Sigurðar, Peter Schröder Austurríki á Astu, en hann varð efstur með 60,6 stig. í þriðja og flórða sæti urðu landar hans Klaus Zwinz á Hrannari með 58 stig og Piet Hoyos á Sleypni með 56,6 stig. í fimmta sæti var Walt- er Feldmann frá Þýskalandi á Dreng frá Kirkjubæ með 56,2 stig og munaði aðeins 0,2 stigum á honum og Benedikt Þorbjörnssyni á Brandi sem varð í sjötta sæti og kemst hann því ekki í A- úrslit. Þótti mörgum Feldmann fá háa einkun þar sem hestur hans skeiðaði lítið sem ekkert í sýning- unni. Erling Sigurðsson hafnaði í tólfta sæti á Þrymi með 51 stig. Reynir Aðalsteinsson lenti í tut- tugasta og öðru sæti með 42,8 stig, en hann varð fyrstur inn í keppnina og þykir það óvinsælt hlutskipti því það er staðreynd að einkunnir eru lægri framan af en fara hækkandi eftir því sem á keppnina líður. Urslit í fyrri umferð 250 metra skeiðsins urðu frekar óvænt þar sem Hollensk stúlka Els van der Taas náði bestum tíma á Musk, 22,51 sek. en Reynir Aðalsteins- sonvar ekki langt undan á Spóa með 22,54 sek. Vera Reber Þýskalandi á Frosta varð þriðja með 23,06 sek., Andreas Trappe Þýskalandi á Ötu fjórði á 23,36 sek., Jóhannes Hoyos Austurríki á Fjölni fimmti á 23,50 sek., og Erling sjötti á 23,60 sek. Benedikt og Brandur náðu 24,99 sek., en Kolbeinn lá ekki hjá Sigurði. Ekki er anfiað hægt að segja en að árangur íslendinga eftir fyrsta dag mótsins væri vel viðun- andi en óneitanlega var það svekkjandi að Benedikt skyldi ekki komast í úrslit. Strákarnir hafa staðið sig með miklum sóma í keppninni og eiga þeir möguleika á sigri í flestum greinum. Greini- legt er að breiddin er meiri nú í íslenska liðinu en verið hefur á fyrri mótum. Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Bernd Vith Þýskalandi hefur tvisvar orðið Evrópumeistari í fjór- gangi og nú á hann góða möguleika á sigri eftir að hann varð efstur í forkeppninni á föstudag, á Örvari frá Kálfholti. Biskupstungnahreppur: Vill koma skipu- lagi á umferð hrossa um Kjalveg Selfossi. UMFERÐ hestamanna um Kjal- veg hefur vaxið mjög undanfarin ár og nú fara þar um hundruð hrossa á hveiju sumri. Hrepps- nefnd Biskupstungna vill koma skipulagi á þessar ferðir hesta- manna meðal annars með því að hestamenn greiði beitargjöld og fyrir afnot af girðingum og hús- um í eigu hreppsins. Helstu áningarstaðir á þessari vinsælu ferðaleið svo sem í Hvítámesi em illa farnir af beit og traðki. Hin aukna umferð veldur sveit- arstjórnarmönnum og Land- gneðslu ríkisins vaxandi áhyggjum. Búast má við að fram komi krafa um að gróðurlendi við Hvítámes verði friðað fyrir hrossum. Ennfremur að aðstaða verði sett upp á melum fjær gróð- urlendinu. Beitarhólf í Hvítámesi var á sínum tíma sett upp fyrir leitar- menn og til að koma til móts við ferðamenn. Nú hefur umferð hrossa aukist svo mjög að beitarhólfíð er ofnýtt og það þarf að friða. Enn- fremur er gróðurlendi í kring illa farið af traðki. Rúm tíu ár eru síðan Tungnamenn hættu að reka hross á afréttinn og bændur í hreppnum láta í ljós ótta við afleiðingar stjóm- lausrar umferðar hrossa um afrétt- inn. Gísli Einarsson óddviti Biskups- tungnahrepps segir að taka þurfí afgirt hólf á Kjalvegi upp og girða af áningarstaði á melum þar sem ekki er gróður. Hestamenn sem em á ferð um hálendið verði að hafa með sér fóður á leið sinni til að gefa hrossunum. Umferðin sé orðin svo mikil að gróður þoli hana ekki. Gísli segir ástandið þannig núna að menn spyrji ekki leyfis heldur noti öll girðingarhólf. Aðeins einn hafi beðið leyfís í sumar. Margir noti rafmagnsgirðingar og setji upp þar sem beit sé að hafa, en verst sé þegar þær eru settar út frá ofnot- uðum beitarhólfum. í Biskupstungnahreppi er lagt gjald á hveija kind sem rekin er á afrétt og Gísli sagði ekkert óeðlilegt að beitargjald væri lagt á ferða- hesta. „Við gerum okkur fíilla grein fyrir ástandi afréttarins og hrossa- umferð í Hvítámesi er verst og þar þarf að friða fýrir ágangi hrossa. Við viljum hafa samvinnu við hesta- menn um þessi mál. Það þarf á þetta skipulag og menn verða að skilja að það er ekki hægt að fara yfír þetta án leyfís.“ Hann benti og á að auðvelt væri að dreifa umferðinni með því að gera færa gömlu Kjalleiðina. Guðmundur Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Landssambands hestamanna sagði að sinna þyrfti Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gísli Einarsson bóndi i Kjarn- holtum, oddviti Biskupstungna- hrepps. þessari umferð eins og annarri. Hann benti á að aðilar í ferðaþjón- ustu þyrftu að koma að þessu máli líka, þeir seldu útlendingum þessar ferðir. Hann sagði að þjónusta á áningarstöðum þyrfti að vera fyrir hendi hvort sem menn kæmu þar ríðandi, akandi eða gangandi. Guðmundur sagði að Landssam- bandið teldi það ekki eftir sér að leggja málinu lið en þetta mál snerti marga. Ef sett væru upp áningarhólf þyrfti að hafa umsjón með þeim og þá kæmi upp spum- ingin hvemig henni yrði hagað. Hann benti á að einn liður í lausn þessa máls gæti verið að beina umferðinni inn á aðrar leiðir þannig að ágangur yrði minni á hveijum stað. Landssamband hestamanna er með áningarhólf á Þingvöllum og á Hveravöllum sem greitt er fyrir afnot af og hefur sú þjónusta líkað vel. — Sig.Jóns. Atvinnuleysi 0,3% í júlí RÖSKLEGA 9000 atvinnuleysis- dagar voru skráðir í júlímánuði. Flestir urðu þeir í sama mánuði árið 1984 eða 17.000. í frétt frá vinnumálaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins segir að veruleg eftirspurnarþensla ríki á vinnu- markaðinum. Megi búast við því að minni samdráttur verði í dæmigerðri sumarvinnu í haust en venja hafi verið undanfarin ár. Atvinnulaus var skráður 421 maður í mánuðinum. Það samsvar- ar 0,3% af mannafla á vinnumark- aði. Konur voru í meirihluta, 70% atvinnulausra.. Af 9.123 atvinnu- leysisdögum voru 6.434 skráðir hjá konum, eða rúmlega tveir þriðju hlutar. Um helmingur atvinnu- lausra er til heimilis á höfuðborgar- svæðinu, næst á eftir koma Norðurland-eystra og Suðurland með fimmtung fjöldans hvort kjör- dæmi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.