Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 25

Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987 25 Bandeoneonjass í Heita pottínum Morgunblaðið/KGA Egill B. Hreinsson píanóleikari, Tómas R. Einarsson bassaleikari og Birgir Bald- ursson trommuleikari að baki Olivier Manouray sem hampar bandeoneoninu. Franski bandeoneonleikarinn Olivier Manouray heldur jasstónleika í Heita pottin- um í veitingahúsinu Duus í Fischerssundi í kvöld, sunnudagskvöld, og mánudagskvöld. Einnig mun hann leika sunnudagskvöldið 23. þessa mánaðar Með Olivier leika Egill B. Hreinsson píanóleikari, Tómar R. Einars- son bassaleikari og Birgir Baldursson trommuleikari. Olivier er tónelskum íslendingum að góðu kunnur eftir heimsókn hans hingað til land með tangósöngvaranum Emesto Rondó um síðustu áramót, en hann hefur haldið sig við tangótónlist fram að þessu. Nú leikur hann jass á hljóðfæri sitt, bandeoneon. Blaðamaður náðí'tali af Olivier á æfíngu í Tónlistarskóla FÍH og innti hann eftir því hvort bandeoneon væri mikið notað í jasstónlist og hvemig honum þætti að leika jass á bandeoneon. Nei, reyndar veit ég aðeins um einn mann sem það hefur gert. Ég er ekki ókunnur jassinum, hann hef ég leikið á píanó en mest mér til gamans. Eg hef einnig leikið jass á baneoneon, einnig mér til gamans og þá með kunningjum. Þetta verður í fyrsta sinn sem ég leik jass á bandeoneon opinberlega, en það voru síðan kunningjar mínir hér sem töldu mig á að leika með sér. Er ekki mikUl munur á að leika jass eða tangótónlist? Jú, vissulega er mikill munur og þá helst hvað varðar svefluna. Það er svo mikill munur á taktinum í jassinum og tangónum. Segja má að ég verði að setja til hliðar allt sem ég kann í tangónum til þess að geta sett mig rétt inn í jassinn. Hvernig jass ætlið þið að leika i kvöld og annað kvöld? Við höldum okkur við þekkt lög, nærri klassískan jass sem flestir þekkja. Er ekki orðið lítið um hljóðfæraleikara sem leika á bandeoneon i dag. Jú, þar er ekki mikið um það, enda verður oft einskonar kynslóðabil í hljóðfæraleik, þann- ig þá að bömin vilja ekki leika á sömu hefð- bundnu hljóðfæri og feðumir. Nú er nokkur vakning í bandeoneonleik og ég veit um nokkra menn á mínum aldri sem hafa tekið upp að leika á það. Enn em þeir þó fáir. í New York er vitað um einn sem það gerir og í París em þeir tveir til þrír. Þeir em þó eitthavð fleiri í Argentínu. Það má sjá af þinu hljóðfæri að það er komið til ára sinna. Já, það er frá því um 1935. Þetta er þýskt bandeoneon en þau vom framleiddj Þýska- landi fýrir stríð. Eftir stríð lenti verksmiðjan i Austur-Þýskalandi og þá var henni breytt í dísilvélaverksmiðju. Eftir stríð töldu menn sig hafa meiri þörf fyrir dráttarvélar en hljóðfæri. Telur þú að bandeoneonið eigi eftir að halda veUi? Að vísu vom rokkárin erfíð, en sé hljóðfæri gott þá heldur það veUi. Matthíasson Allir krakkar fá að fara á hestbak. Reiðsýningar. Góðhesta- og kynbóta- sýningar 20.-23. ágúst. Hrossamarkaður, 14 af bestu hrossum landshlut- annaboðinupp. Fiskirækt og margar fleiri nýjarbúgreinar. Einstakt tækifæri fyrir bömin til þess að komast í snertingu við dýrin - og fyrir þá fullorðnu til þess að ÍQTinast landbúnaði nýrra tíma. OPIÐ: Kl. 14-22 virka daga, kl. 10-22 um helgar. Strætisvagnar 10 og 100 stoppa í grennd við BÚ ’87. Hittumst íVíðidal! 1 íslenskum landbúnaði er komin lengra en marga grunar. 1 HBs'; tf y u í 1 xH Æ 1 I \JF II ’B MMW0 ic IJ ,, Æjjt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.