Morgunblaðið - 16.08.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
Dvergnegrar í kröppum dansi
Það fer ekki mikið fyrir þeim
þjóðflokki sem við nefnum
dvergnegra. Nágrannar þeirra
álíta þá yfirleitt frumstæða
jafnt að háttemi sem atgervi.
Þeir Iáta sig litlu skipta þá vest-
rænu menningu sem viðgengst
víðast hvar í Afríku, þeir lifa
einangraðir frá öðmm þjóð-
flokkum, sækja ekki skóla,
stunda ekki reglubundna vinnu
og viðurkenna sig yfirleitt ekki
þegna neins ákveðins ríkis. Þeir
reyna að lifa eins og forfeðum-
ir hafa gert í gegnum tíðina,
flakka um án þess að byggja
sér varanleg hýbýli og lifa á
veiðum, en aðstæðurnar verða
sífellt verri til að lifa svona lífi.
Dvergnegrar byggðu áður nær
alla Mið- og Suður-Afríku, það var
ekki fyrr en um 1000 eftir Krist
að fólk af t.d. Bantu-kynþætti fór
að leggja undir sig þessi land-
svæði, og sökum líkamlegra yfir-
burða hröktu þeir smámennina af
bestu landsvæðunum. Síðan hefur
hallað undan fæti hjá dvergnegrun-
um. Sífellt er þrengt meira að þeim
og þeir hafa þurft að flytjast inn á
harðbýlli svæði, þeim fer ört fækk-
andi og yflrleitt búa þeir við
þröngan kost. Það virðist vera þeim
ómögulegt að hætta flökkulífinu og
samlagast einhvers konar bæjar-
eða borgarsamfélagi. Þeir virðast
vera eins og villidýr, sem veslast
upp og deyja er að þeim er þrengt
eða sett í höft.
Fomar heimildir frá Egyptum
greina frá því að egypskir land-
könnuðir fóru langt inn í Afríku og
hittu fyrir dvergnegra, dásama þeir
söng- og danslist þeirra og nefna
þá hina dansandi. Seinnitíma land-
könnuðir minnast einnig á dans
þeirra en álíta þá yfirleitt mjög
fmmstæða, enda gefur útlit þeirra
þá hugmynd. Eins minnast þeir á
ótrúlega ljóst útlit þeirra, blá og
ljósbrún augu, brúnt eða rauðleitt
hár og ljósleita húð.
En því skyldu þeir vera svona
litlir og sérkennilega vaxnir? Engin
fullnægjandi skýring er til við þess-
ari spurningu. Sumir mannfræðing-
ar halda því fram að þeir séu
skyldari Evrópubúum en svertingj-
um, og því til skýringar benda þeir
á blá augun og ljósan húð- og hára-
lit. En að dvergnegrar séu eitthvað
líkamlega fmmstæðari en annað
fólk em mannfræðingar yflrleitt
ósammála.
I Uganda gafst mér kostur á að
heimsækja dvergnegrabyggð, var
þetta svæði sem er kallað Bujumb-
ura nærri bænum Fort Portal í
suðurhluta landsins. Við vomm
saman í förinni tveir íslendingar
og tveir Svíar. Leiðin til Bujumbura
lá um skógivaxin, há, brött fjöll,
niðri í djúpum dölunum em ræktað-
ir bananar sem virðast vera aðal
lífsviðurværi Ugandabúa. Vegurinn
Vatnstrommuleikur.
Nokkrir frammámenn dvergnegranna með hvítum risa (175 cm),
fremstur er höfðinginn með brauðið sem þeir fengu í greiðslu fyrir
myndatökuna.
sem var afleitur var nokkuð dæmi-
gerður fýrir vegi í Uganda, þar sem
þeir em ekki sundursprengdir eftir
stríð síðustu ára em þeir sundur-
grafnir eftir regnið. Á þessari 70
km leið var aðeins ein hervarðstöð,
sem er óvanalegt, því á álíka vega-
lengd em þær yfírleitt 4-5. En
hermenn virðist vera það eina sem
Uganda hefur nóg af, sumir her-
mannanna em ekki eldri en tíu til
tólf ára og vopnaðir hríðskotabyss-
um og rifflum. Eftir að hafa ekið
í um tvo tíma komum við til Buj-
umbuja. Þegar við komum að stíg
sem lá uppað aðsetri dvergnegr-
SKÓLARTTVÉL
sem hefur allt og meira til
Olympia Carrera, ritvélin sem hlaut vestur-þýsku IF87 viöurkenninguna
fyrir hönnun og útlit
er ritvél hinna fjölhæfu og vandlátu.
Skólaritvél, feröaritvél, heimilisritvél og atvinnuritvél, -aöeins 6,5 kg.
meö alspenni og tösku til aö fylgja þér hvert sem er.
Ritvél, hlaöin kostum, meö lyklaborð aðlagað að fingrunum sem
auðveldar hraöa og villulausa vélritun, 24 stafa leiðréttingaminni,
mismunandi leturgerðir, síendurtekningu á öllum lyklum og
ásláttarjafnara, allt til að tryggja góðan frágang án fyrirhafnar.
Carrera er aðhæfð ritvinnsluforritum
og tengjanleg við allar töivur.
!! r II" II !
li il fi í
1 fi I fi
1 TU
3
Ví
E
KJARAN
ÁRMÚLA 22, SlMI (91) 8 30 22, 108 REYKJAVÍK
anna komu nokkrir þeirra á móti
okkur, brosandi og vinalegir.
Ekki var laust við að maður
væri furðu lostinn við að sjá þá, svo
skrítnir voru þeir. Það var ekki
bara smæð þeirra heldur útlitið allt;
stór útstandandi augu, mjög víðar
nasir, hárugur skrokkurinn, sem
leit svolítið bamalega út, líkt og
þeir væru ekki fullþroskaðir, og
síðast en ekki síst voru tæmar
furðulegar. Á milli stómtáar og
þeirrar næstu var stórt bil, líkt og
á milli þumalfíngurs og vísifingurs,
það er kannski ekki að undra að
fólk vilji líkja þeim við apa. Það
hefði ekki komið manni á óvart ef
þeir hefðu rétt fram fótinn þegar
þeir heilsuðu okkur. Þeir voru ekki
klæddip í nein þjóðleg föt heldur
skítuga larfa sem einhvem tímann
hafa verið vestræn föt. Það kom
okkur á óvart að einn dvergnegr-
anna talaði nokkur orð í ensku,
fylgdi hann okkur til höfðingjans
sem tók okkur fremur fálega.
Hýbýli þeirra vom fátækleg,
nokkur pálmablöð strengd á veik-
byggða grind, hálf erfitt var að
greina hreysin frá þéttum fmm-
skóginum. Hvergi sáust nokkrir
þeirra hluta sem maður telur sjálf-
sagða, hvorki pottar, pönnur né
önnur verkfæri. Hita þeir allan mat
á pálmablöðum, aðalfæða þeirra em
bananar, og þá ósætir bananar sem
þeir sjóða og stappa og nefnist
maukið Matoke, einnig veiða þeir,
en sífellt minna af villibráð. Sjálfír
bera þeir enga skartgripi, eina sem
þeir virtust eiga vom fáein vopn,
spjót, bogi og örvar og svo hljóð-
færi sem líktist litlum gítar og
glamraði höfðinginn sífellt á hann.
Allir, jafnt smákrakkar sem hmm
gamalmenni reyktu Taki, sem er
einskonar dóp og virtist það stíga
þeim töluvert til höfuðs.
Það var greinilegt að við vomm
ekki fyrstu ferðalangamir sem
heimsóttu þá, því þegar ég ætlaði
að taka upp myndavélina mmdi
eitthvað í höfðingjanum og þýddi
sá enskumælandi: „Money for
Photo". Já, þeir vom greinilega með
þetta allt á hreinu, og því þá að
vera eitthvað öðmvísi en aðrir og
geta ekki notið góðs af því. Við
buðum þeim brauð sem við höfðum
tekið með í nesti, virtust þeir vera
ánægðir með það, en gáfu mynda-
vélinni samt illt auga.
Eftir að hafa setið stutta stund
með þeim og reynt að rabba við
þá buðust þeir til að dansa fyrir
okkur. Eitthvað virtist nú annáiaðri
dansmenningu þeirra hafa hrakað.
Nokkrar unglingsstelpur skokkuðu
í hring, meira flissandi en syngj-
andi. Kannski var það tromman sem
vantaði, sú eina sem þeir höfðu átt
og hafði verið seld japönskum
ferða-
langi fyrir alllöngu. Eftir stuttan
dans hlupu stelpumar niðpr að lítilli
á sem var rétt hjá, stukku þær útí
og byijuðu að busla. Fyrst í stað
leit þetta út fyrir að vera venjulegt
busl, en svo fór maður að greina
takt í þessu sem skýrðist jafnt og
þétt. Vatnstrommuleik hafði ég
aldrei heyrt minnst á áður. Með því
að slá flötum lófanum eða krepptum
hnefanum á vatnsyfírborðið og
draga flatan lófann upp gátu stelp-
urnar myndað minnst þijú mismun-
andi hljóð. Það var athyglisvert að
hlusta á þetta, eftir að þær voru
komnar vel af stað gátu þær auð-
veldlega skipt um takt án þess að
fipast.
Fátækt dvergnegranna var
greinileg, bæði af veraldlegum
gæð-
um sem öðrum. Þeir höfðu ekki nóg
af góðum mat, fáa hluti, menningin
virðist vera að leysast upp og eng-
inn virðist hafa kraft eða vilja til
að gera neitt. Þeir eru mitt á milli
tveggja menninga. Aðstæðumar
bjóða þeim ekki að lifa samkvæmt
gömlu arfleifðinni, veiða villibráð
og týna ávexti þar sem þeir fínnast.
Ekki geta þeir heldur samlagast
nýju menningunni, til þess er hún
of ólík. Yfírvöld beita þá þrýstingi
til að taka sér fasta búsetu, senda
bömin í skóla og lúta almennt
landslögum. Sjálfsagt þykir
dvergnegmnum margt heillandi við
þessa vestrænu menningu, fram-
andi hlutir, góður bjór (sem þeim
líkar vel) og margt fleira. En það
er ekki bara það að bilið milli þess-
arra tveggja menninga sé stórt,
útlitið gerir þeim einnig mjög erfítt
að samlagast. Allstaðar þekkjast
þeir sem dvergnegrar og öðmm
afríkönum þykir lítið til þeirra
koma.
Texti og myndir: Victor H.
Sveinsson
byrjendanámskeið
Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt
byrjendanámskeið í notkun einkatölva
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-tölva
• Stýrikerfið MS-DOS
• Ritvinnslukerfið WordPerfect
• Töflureiknirinn Multiplan
• Umræður og fyrirspurnir
Leiðbeinandi.
Logi Ragnarsson,
tölvufrœðingur
Tími: 18., 20., 25. og 27. ágúst kl. 20-23.
Innritun í símum 687590 og 686790
BORGARTUN! 28