Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987 Geirþrúður Guðjóns- dóttir - Minning Fædd 16. ágúst 1907 Dáin 15. júlí 1987 Þann 15. júlí 1987 andaðist í Borgarspítalanum frænka mín, Geirþrúður Guðjónsdóttir. Geirþrúður fæddist 16. ágúst 1907 á Saurum í Helgafellssveit og hefði því orðið áttræð í dag. For- eldrar hennar voru Guðjón Guð- mundsson og Kristín Jóhannesdótt- ir og var hún ein af átta systkinum sem upp komust, en sex þeirra eru nú látin. Geirþrúður ólst upp í föður- húsum og hjá móðursystur sinni, sem bjó á Saurum og síðar í Drápuhlíð í sömu sveit. Æviferill Geirþrúðar verður ekki rakinn hér, en rétt er að minnast á, að um margra ára skeið bjó hún á Saurum ásamt bræðrum sínum. Hún unni alla tíð mjög sveit sinni og dvaldist þar oft á sumrin eftir að hún fluttist á mölina. Geirþrúður giftist ekki og var bamlaus, en hún var mjög bamgóð og nutu margir þess, ekki síst við systkinin. Frænka mín hafði mjög gaman af að ferð- ast og dvaldist hún m.a. um tíma í Englandi og Danmörku. Geirþrúður las mikið og var allt- af reiðubúin að miðla okkur af reynslu sinni og þekkingu. Ég minnist með þakklæti margra ánægjustunda sem ég átti með henni. Síðustu 20 árin bjó hún á Reyni- mel 76 og gat dvalist heima að mestu uns hún þurfti að fara á sjúkrahús í nóvember 1986. Geir- þrúður bar alla tíð mikla umhyggju fyrir frændfólki sínu og fylgdist vel með öllu fram á síðasta dag. Ég og fjölskylda mín viljum þakka frænku samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Matthildur Jónsdóttir Steinunn Gróa Bjama- dóttir - Minning Á morgun fer fram frá Fossvogs- kirkju útför vinkonu minnar og samstarfskonu, Steinunnar. Það var á jólaföstu fyrir nærri tuttugu og tveimur árum að fundum okkar Steinunnar bar fyrst saman. Hún hafði ráðið sig til vinnu fyrir jólin á Saumastofuna Verið, þar sem ég hafði unnið í eitt ár. Ég man enn bros hennar er hún heils- aði mér og hlýtt handtak. En þetta var upphaf tuttugu og eins árs sam- starfs er aldrei bar skugga á. Eftir svo langa samveru fer ekki hjá því að margar minningar komi upp í hugann á kveðjustund. Margt höfum við talað í gegnum árin. Oft vorum við tvær í matartím- um vikum og mánuðum saman, sögðum hvor annarri sögur úr dag- lega lífínu og hlógum dátt. Ræddum IDNFYRIRTÆKI? FISKVINNSLA? NIATVÆIAIDNADUR? ASIACOHF. REKSTRARVÖRUDEILD BÝDUR FJÖLBREYTTA ÞJÓNUSTU! Sölumenn rekstrarvörudeildar: Sig. óttar Hreinsson, Eyjólfur Karlsson, Sverrir Fjeldsted, Anton Pálsson, og Gróta Ingólfsdóttir. um bömin og síðari ár voru bama- bömin efst á blaði, stundum lagður kapall. Þetta leið allt svo ótrúlega fljótt. En fyrir kom að við ræddum alvarlega hluti. Trúmál voru okkur báðum kærkomið umræðuefni og trúðum við báðar á líf í öðmm og betri heimi. Ifyrir utan vinnu áttum við saman marga ánægjustund hvor heima hjá annarri og hjá dótturinni á Hamraendum. í góðra vina hópi var Steinunn manna glöðust. Hún sem hér er kvödd hét fullu nafni Steinunn Gróa Bjamadóttir, fædd á Reykjafírði við ísaijarðar- djúp 9. september 1924, dóttir hjónanna Guðrúnar Ólafsdóttur, af vestfírskum ættum, og Bjama Há- konarsonar frá Reykhólum. Stein- unn var gift Trausta Eyjólfssyni, lögreglumanni er lést langt um ald- ur fram árið 1971 eftir erfíð veik- indi. Þetta_ var erfitt tímabil fyrir Steinunni. I veikindum Trausta kom fram hversu sterk hún var, róleg og yfirveguð. Steinunn og Trausti eignuðust tvö böm, Inger Oddfríði, fædda 13. janúar 1951, og Bjarna Hákon, fæddan 25. mars 1953. Inger er gift Magnúsi Magnússyni, bónda á Hamraendum, og eiga þau 5 böm. Bjarni var kvæntur Sigríði Georgsdóttur en þau hafa slitið samvistir. Flestar helgar og hátíðir fór Steinunn upp að Hamraendum. Dótturbömin voru miklir sólargeisl- ar í lífi hennar. Steinunn var lagleg kona, frekar smávaxin, með dökkt hár er gránað hafði með ámnum, skær og falleg augu, fallegt bros og hlý í viðmóti. Hún hafði létta lund, en var föst fyrir ef því var að skipta, mjög þægileg í umgengni. Hún var vel hraust þar til fyrir 5 ámm að sjúk- dómur sá gerði vart við sig er leitt hefír til vistaskipta er hér hafa orð- ið, en hún lést í Landspítalanum að morgni 7. ágúst. Ég fylgdist vel með því hvernig veikindi Steinunnar ágerðust. Oft mætti hún sárþjáð til vinnu. Hún kvartaði aldrei og svar hennar var ætíð: „Það er ekkert að mér.“ Henni þótti sælla að gefa en þiggja. Það varð að ráði að Elín, dóttir mín, fór í sveit að Hamraendum og var þar í 6 sumur í góðu yfírlæti. Hún tók miklu ástfóstri við fólkið og ekki síst Steinurtni, er hún kallaði jafnan ömmu Steinu. Hún flytur hér sínar bestu þakkir fyrir alla umhyggju og ástríki og flytur Inger, Magnúsi og bömum ásamt Bjama einlægar samúðarkveðjur. Nú er komið að kveðju um sinn. Eftir er minningin um góða konu. Stóllinn í hominu er hnípinn. Ég veit ég mæli fyrir munn margra samstarfsstúlkna okkar og þakka ánægjuleg kynni. Ég geymi hinsta bros hennar til mín í hjarta mínu og trúi á endurfundi. Við hjónin færum öllu venslafólki innilegar samúðarkveðjur. Bjama, Inger, Magnúsi og bömum fæmm við bestu kveðjur. Megi Guð styrkja þau í sorginni. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V.Briem) Erna Hreinsiefni Á öllum vinnustöðum þarf eitthvað að hreinsa: áhöld, tæki, vélar, gólf... Við bjóðum fjölbreytt úrval hreinsiefna frá RJW inc í Bandaríkjunum og fleiri viðurkenndum framleiðendum. Þú segir okkur hváð þarf að hreinsa - við finnum rétta hreinsiefnið fyrir þig og kennum þér að nota það. Olíuvörur Hjá Asiaco hf. - rekstrarvörudeild færðu olíuvörur, m.a. frá Oil Re- search Center og Vickers, jafnt fyrir fíngerðustu tæki sem stærstu véla- samstæður: smurolíur, gírolíur, brunahvata í eldsneyti, ryðolíur, ryð- leysi og ótal margt fleira. Við leiðbein- um við val á réttu efni. asiaco hf Vesturgötu 2, Pósthótf 826, 121 Reykjavik, Sími: 91-26733 Hafðu samband við Asiaco hf. - rekstrarvörudeild! Við veitum þér allar nánari upplýsingar. Sérfræðileg þekking okkar er trygging fyrir þeirri þjónustu sem þú leitar eftir. Asiaco hf. - rekstrarvörudeild auðveldar þér reksturinn! Frá upphafi höfum við lagt okkur fram um að bjóða aðeins úrvals vörur og efni og aðstoða við val þeirra og notkun. Þannig teljum viö að okkur takist best að þjóna fyrirtækjum í öll- um starfsgreinum. Kynntu þér þjón- ustu okkar. Hjá Asiaco hf. - rekstrar- vörudeild færðu réttu rekstrar- vörurnar í fyrirtækið. Perfect olíusían Perfect olíusían er ekki aðeins fádæma endingargóð, heldur sparar hún einnig smurolíu til mikilla muna. Perfect oiíusían er nú í notkun í tug- um íslenskra skipa. Tork þurrkur Hvort sem er á bílaverkstæði eða hárgreiðslustofu, skrifstofu eða sjúkrahúsi, alls staðar er þörf fyrir einhvers konar þurrkur. Tork kerfið samanstendur af hylkjum og grindum ásamt einnota þurrkum af ýmsu tagi. f úrvalinu frá Asiaco hf. finnur þú þurrkurnar sem þú þarft að nota. ^Nn,>NA,xiK *v*« r-tnSlA Lyftibúnaður Kuplex keðjuáslættir úr stáli eru hannaðir til að þola mikið álag við erfiðar aðstæður. Búnaðurinn er þjáll í meðförum og tekur lítið geymslu- rými. Við bjóðum einnig Deeweld gámaklær, SpanSet stroffur, borða og strekkjara og allar gerðir af víra- stroffum frá eigin víraverkstæði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.