Morgunblaðið - 16.08.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
f
37
eða í besta falli seinka varpinu.
Heiðlóan er einn af þeim fugfl-
um sem standa í ströngu um
þessar mundir og meðfylgjandi
myndir af heimilishaldi lóunnar
tók Sigurgeir Jónasson í Vest-
mannaeyjum fyrir skömmu.
Lóuna þarf vart að lýsa eða
kynna fyrir landsmönnum, varla
finnst það mannsbarn sem ekki
er komið til einhvers vits og ára
að það þekki ekki þetta eftirlæti
flestra sem gefa fuglum gayum á
annað borð. Hún er með fyrstu
farfuglum sem hingað koma vor
hvert og mörgum finnst vorið
ekki komið í raun fyrr en þeir
hafa heyrt lóukvak. Til er lítil
saga um uppruna lóukvaksins, en
mörgum heyrist lóan kytja stíft:
dýrðin, dýrðin. Sagan er svona:
sagan segir að lóan hafi ekki
verið til í árdaga, heldur hafi Jes-
ús Kristur sjálfur skapað hana
þegar hann var ungur drengur
að leika sér. Helgidag einn á hann
að hafa setið úti í steikjandi sól-
onni og dundað sér við að hnoða
fugla úr leir. Hnoðaði hann m.a.
lóur. En af því að það var helgi-
dagur, þá reiddist vegfarandi
nokkur er hann sá til hans og
vildi eyðileggja leirlóumar í bræði
sinni yfir helgidagabrotinu. Jesús
á þá að hafa brugðið ósjálfrátt
hendi yfír leikföngin sín til að
veija þau árásinni, en við það
kviknaði líf í leirlóunum og þær
flugu burt eins og skot syngjandi
hástöfum, dýrðin, dýrðin. Vegfa-
renda rann reiðin við þessa sýn,
en síðan hefur lóan að sögn verið
meðal vor og glatt menn með
þróttmiklum og fallegum sumar-
söng sínum.
Margir íslendingar telja lóuna
bráðgreindan fugl og benda á
m.a. hvemig hún afvegaleiðir
óboðna gesti frá ungum sínum
og eggjum. Reyndar gera margir
aðrir fuglar slíkt hið sama, en
þetta sama fólk telur það fram
til nokkurs sannindamerkis um
að lóan skipar hærri sess í fugl-
aríkinu en margir aðrir fuglar,
að hún á sér þjóna, lóuþræla.
Sannleikurinn er sá, að ótrúlega
algengt er að sjá lóuþræla fylgja
lóum og eru hlutföllin breytileg.
Einn sá 200 lóur saman á flugi.
Aftast í hópnum flaug einn lóu-
þræll.
Ein áhrfiamesta sagan sem til
er um vitsmuni lóunar er á prenti
í bókinni Hamingjudagar sem
Bjöm heitinn Jónsson Blöndal
skrifaði fyrir mörgum árum síðan.
Þar segir hann frá því að hann
hafi verið á ferð með Hvítá í Borg-
arfírði við annan mann, er þeir
sáu skyndilega hrafn gera aðsúg
að lóu. Sáu þeir, að lóunni fatað-
ist flugið og kmmmi gekk einkar
knálega á lagið og bjóst til að
bera lóuna ofurliði. Þá greip lóan
til örþrifaráðs sem kom þeim fé-
lögum vægast sagt á óvart. Hún
kastaði sér að fótum þeirra, horfði
tindrandi augum til þeirra og
sýndi þeim annan væng sinn. Þar
vantaði flugfjaðrir og þess vegna
gat hún ekki flogið sem skyldi.
Krummi kmnkaði ófagurlega og
gerði sig digran. Bjóst ekki til að
skilja við lóuna og mennina tvo.
Fór þá annar þeirra eftir skot-
vopni og vom dagar surts þar
með taldir, en lóan greri sára
sinna undir vemdarvæng mann-
anna tveggja.
Svo á lóan auðvitað sinn sess
í íslenskri þjóðtrú eins og vænta
mátti. Gömul er sú trú hérlendis,
spuming hvort einhver trúir því
enn, að lóan fljúgi ekki til suð-
rænna landa á haustin eins og
venjulegir farfuglar, heldur skríði
inn í hella, skúta og holur og falli
“tbúðin.“
þar í djúpan dásvefn. Auðvitað
em til sögur um menn sem hafa
fyrir slembilukku fundið steinsof-
andi lóur í slíkum felustöðum og
fuglamir hafi vaknað við það að
þeir væm færðir til. Ef einhver
skyldi rekast á sofandi lóu í kletta-
skúta um hávetur, ætti sá hinn
sami ekki að fjarlægja það sem
lóan er með í nefínu, sagt er að
það sé ýmist birki, víðikvistur eða
hreinlega laufblað. Sé þetta fjar-
lægt, getur lóan ekki vaknað aftur
og ekki dáið heldur, heldur sitji
hún föst í svefnástandi og em það
ömurleg örlög.
Þá er einhvers staðar skráð
saga um mann sem var á ferð á
Hellisheiði í niðaþoku og fór hann
fljótlega villur vega. Kom hann
um síðir að klettaborg og rataði
óvænt ofan í eitthvað gímald, inn
um dyr, og áður en varði sá hann
Leikhæfileikarnir fá að
njóta sín og oft hrífur
þetta bragð.
fyrir sér fagrar sveitir með blóm-
urn í haga. Undarleg tjöm þreif
athygli hans og er hann gekk að
henni, sá hann margar lóur liggja
í vatninu og virtust þær sofa. í
einhverri leiðslu fálmaði maðurinn
ofan í vatnið, greip eina lóu og
tók hana upp úr. Þar með rauf
hann einhver óútskýrð álög og
einhvert viðbjóðslegt skrímsli
gaus upp úr tjöminni og vildi
hafa hendur í hári mannsins.
Tókst honum með naumindum að
flýja kvikyndið, en er hann kom
aftur að dymnum semlágu upp í
þokuna á Hellisheiði, leit hanri
snöggt við. Logaði þá öll sveitin
og skyldist honum þá að hann
hefði á einhvem hátt verið dreg-
inn inn á aðra vídd af einhverjum
öflum sem höfðu verið heft með
töfmm, en vom af hinu illa og
vildu losna úr læðingi til að koma
hefndum yfir allt og alla. Ekki
var sagan lengri.
Það var ekki úr vegi að rifja
ofangreint upp. Ungar lóunnar
em að vaxa úr grasi og þess er
því miður ejcki langt að bíða að
fuglamir allir klæðist haustbún-
ingi. Þá er ekki langt í veturinn.
Prufu-hitamælar
-r 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
VESTURGÖTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480
Creda
tauþurrkarar
Compact R. kr. 15.645 stgr.
Reversair kr. 20.895 stgr.
Sensair kr. 27.859 stgr.
Creda
húshjálpin
Söluaðilar:
Viðja, Kópavogi, s. 44444
Rafbúðin, Hafnarfirðl, s. 53020
Stapafell, Keflavík, s. 2300
Vörumakaðurinn, Seltjn., s. 622200
Grimur og Áml, Húsavík, s. 41600
Rafsel, Selfossi, s. 1439
Sjónver, Vestmannaeyjum. s. 2570
Rafland, Akureyri, s. 2510
Creda-umboðið,
Raftækjaverslun íslands
hf., Reykjavík. S. 688660.