Morgunblaðið - 16.08.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Frá Menntamála-
ráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Við Vélskóla íslands er staða kennara í raf-
magnsfræði laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 24.
ágúst.
Menn tamálaráðuneytið.
Kirkjuvörður
Starf kirkjuvarðar í Laugarneskirkju er aug-
lýst laust til umsóknar frá 1. október 1987.
Umsóknarfrestur er til 15. september.
Til greina kemur að skipta starfinu á milli
tveggja, jafnframt að ráða hjón.
Umsóknir sendist til Laugarneskirkju, 105
Reykjavík.
Sóknarnefnd Laugarnessóknar.
Snyrtivöruverslun
óskar eftir starfskrafti til afgreiðslustarfa.
Heilsdagsstarf.
Upplýsingar í síma 611529.
Blómabúðin Dögg
Óskum eftir að ráða konur til starfa sem fyrst.
Blómabúðin Dögg, Reykjavíkurvegi 60,
Hafnarfirði.
Kennarar
Kennara vantar að Grunnskólanum í Bolung-
arvík við ísafjarðardjúp. Um er að ræða
bekkjarkennslu hjá 7 og 8 ára börnum, er-
lend mál, náttúrufræði (þ.e. eðlis- og líffræði),
tónmennt, hand- og myndmennt og íþróttir.
Aðstaða til leikfimi- og sundkennslu er
mjög góð. Húsnæði er ódýrt og staðarupp-
bót verður greidd.
Hafið samband við skólastjóra, Gunnar
Ragnarsson, í síma 27353 og formann skóla-
nefndar, Einar K. Guðfinnsson, í síma
94-7540.
Skólanefnd.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið á
Blönduósi
Óskum að ráða eftirtalið starfsfólk:
• Hjúkrunarfræðinga 1. september eða eft-
ir samkomulagi.
• Sjúkraliða.
Hringið eða komið í heimsókn og kynnið
ykkur aðbúnað og starfsaðstöðu.
Við erum í alfaraleið.
Hjúkrunarforstjóri,
símar 95-4206 og 95-4528.
Bókarastörf
Óska eftir starfskrafti til bókarastarfa, inn-
kaupastarfa o.fl. í hálfsdagsstarf, fyrir
hádegi. Stúdentspróf á verslunarsviði æski-
legt. Góð vinnuaðstaða.
Starfsumsókn með upplýsingum um aldur,
starfsferil og menntun skilist á auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „Bókari — 6438“ eigi
síðar en 19. september nk.
Lögmannsstofa Ólafs Ragnarssonar hrl.,
Laugavegi 18.
Verkstjóri
Vélaumboð óskar að ráða verkstjóra að þjón-
ustuverkstæði sínu. Viðkomandi þarif að
uppfylla eftirfarandi:
★ Hafa meistarabréf í vélvirkjun, bifvéla-
virkjun eða öðrum greinum málmiðnaðar.
★ Hafa reynslu í viðgerðum á diesel- og
þungavinnuvélum.
★ Vera stjórnsamur og úrræðagóður, með
einhverja reynslu í verkstjórn.
★ Hafa sæmilega góða enskukunnáttu
vegna samskipta við erlenda umboðsaðila.
★ Vera reiðubúinn að sækja námskeið er-
lendis.
Fyrirtækið er traust og vaxandi vélaumboð
með góða verkstæðisaðstöðu. Fastur vinnu-
tími frá kl. 8.00-18.00. Mjög góð laun í boði
fyrir réttan mann.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Verkstjóri — 2429“ fyrir 19. þ.m.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál.
Lögreglumenn
Lausar eru til umsóknar tvær stöður lög-
reglumanna við embætti undirritaðs, með
aðsetri á Húsavík. Umsóknarfrestur er til 10.
september nk.
Stöðurnar veitast frá 1. október 1987.
Allar upplýsingar gefa Þröstur Brynjólfsson,
yfirlögregluþjónn og Daníel Guðjónsson,
varðstjóri í síma 96-41630.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu,
bæjarfógeti Húsavíkur.
Halldór Kristinsson.
Bókaverslunin
Veda
óskar eftir starfsfólki í heils- og hálfsdags-
störf (13-18). Upplýsingar í versluninni.
Viðgerðarmenn
Viljum ráða menn vana viðgerðum þunga-
vinnuvéla.
Upplýsingar í síma 622700.
ístakhf.,
Skúlatúni 4.
Verslunarstjóri
Tískuverslun á Akureyri óskar að ráða versl-
unarstjóra sem fyrst. Æskilegur aldur
23ja-35 ára. Góð laun í boði.
Skriflegar umsóknir sem tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „M — 5091“.
Lækjarborg
Við á leikskólanum Lækjarborg við Leirulæk
auglýsum eftir hressum og áreiðanlegum
starfskrafti helst með uppeldismenntun.
Vinnutími er frá kl. 13-17.
Upplýsingar í síma 686351.
Matvælafræðingur
Óskum eftir að ráða matvælafræðing eða
starfskraft með svipaða menntun til starfa
strax.
Nánari upplýsingar í símum 93-11133 og
93-11505.
Húsvörður í blokk
Húsfélagið Vesturbergi 78 óskar að ráða
húsvörð. í starfinu felst m.a. að sjá um rekst-
ur og viðhald í sameign. Launakjör ákveðin
í samráði við stjórn húsfélagsins. Starfinu
fylgir 2ja herb. íbúð en í húsinu eru 54 íbúð-
ir. Æskilegt væri að húsvörður hæfi störf frá
og með 1. september. Umsóknir sendist sem
fyrst til Kristjáns B. Ólafssonar,
Vesturbergi 78, 4d, 111 Reykjavík.
Símavarsla
Allstórt fyrirtæki í miðborg Reykjavíkur óskar
eftir að ráða starfsmann til símavörslu. Þarf
að geta hafið störf um miðjan september.
Leitað er að samviskusamri og röggsamri
manneskju með örugga og alúðlega framkomu.
Þeir sem hafa áhuga leggi nöfn sín og helstu
upplýsingar inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir
25. ágúst nk. merkt: „Símavarsla — 5292“.
Upplýsingar greini aldur, menntun, fyrri störf
og persónuhagi.
Með allar upplýsingar verður farið sem trún-
aðarmál. Ollum umsóknum verður svarað.
Staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra
óskar eftir að ráða starfsmenn í eftirgreindar
stöður:
1. Stöðu fulltrúa við fræðslu- og upplýsinga-
störf.
2. Stöðu lögfræðings.
3. Stöðu kerfisfræðings/tölvunarfræðings.
Um er að ræða áhugaverð störf sem gera 1
verulegar kröfur til skipulegra vinnubragða
við framkvæmd staðgreiðslu opinberra jj
gjalda.
Frekari upplýsingar veitir Skúli Eggert Þórð-
arson, forstöðumaður staðgreiðsludeildar, í
síma 623300.
Umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist í
staðgreiðsludeild ríkisskattstjóra, Skúlagötu
57, Reykjavík.
Ríkisskattstjóri.
Vélstjóri
Hraðfrystihús Grindarvíkur óskar eftir vél-
stjóra til vélgæslu og viðhaldsstarfa.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum.
Hraðfrystihús Grindarvíkur.
Vélstjórar
Vélstjóra með full réttindi, VF1, vantar á bv.
Má S.H. 127.
Upplýsingar gefur Garðar í síma 93-61440,
heimasími 93-61485 og um borð í skipinu í
síma 985-21278.
Verkamenn
Viljum ráða verkamenn strax. Mikil vinna.
Upplýsingar á Krókhálsi 1, sími 671210.
Gunnar og Guðmundursf.,
Krókhálsi 1, 110 Reykjavík.
Tannlækningastofa
Aðstoð óskast á tannlækningastofu mið-
svæðis í Reykjavík frá 1. sept.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir þriðjudagskvöldið 18. ágúst merktar:
„Stundvísi — 4616“.