Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
55
Miinkuriim sem #
fann upp kampavínið
U
m aldaraðir hefur
maðurinn kunnað þá
list að brugga vín til
drykkju. Ekki er ljóst
hvenær víngerð
hófst, en vitað að það var löngu
áður en Gamla testamentið var
skráð, því í fyrstu bók Móse er
sagt að upphafsmaður víngerðar
hafi verið Nói, svo líklega hefur
hann haft með sér vín á kút þeg-
ar hann gekk um borð í örkina
sína.
Fomgrikkir höfðu sín vín, aðal-
lega dökk vín sem drukkin voru
blönduð vatni. Kemur þetta meðal
annars fram hjá gríska skáldinu
Þeókrítosi, sem fæddist á þriðju
öld fyrir Krist, þegar hann lof-
syngur sérstakt fjögurra ára
gamalt vín þeirra tíma. Rómveijar
til forna voru einnig þekktir fyrir
víndrykkju sína, og hvar sem þeir
komu leituðu þeir heppilegra land-
svæða til vínræktar.
Framan af var vínið látið geij-
ast í tunnum, belgjum úr geita-
skinni eða leirkrukkum, en full
geijun fékkst ekki fyrr en með
tilkomu flöskunnar og korktapp-
ans á sautjándu öld. Frumkvöðull-
inn að notkun glerflöskunnar og
korktappans við lokageijun víns
var munkurinn Pierre Perignon
kjallarameistari við klaustrið í
Hautvilliers í Champagne-héraði
í Frakklandi, eða Dom Perignon
eins og hann var jafnan nefndur
í samræmi við siði munkareglunn-
ar. Og Dom Perignon er jafnframt
viðurkenndur sem faðir
kampavínsins.
Dom Perignon fæddist árið
1648, sama árið og Lúðvík 14.,
og hann andaðist sama ár og
konungurinn, eða árið 1715.
Tvítugur að aldri varð hann kjall-
arameistari í Hautvilliers, og
næstu 47 árin vann hann að
margvíslegum tilraunum til að
bæta árangurinn af víngerðinni.
Hann varð brátt þjóðsagnaper-
sóna, og héldu sumir því síðar
fram að hann hafi verið tvíburi
Sólarkonungsins Lúðvíks 14. og
réttborinn konungur landsins.
Hann er viðurkenndur fyrir að
hafa fyrstur notað korktappa í
vínflöskurnar, og í því sambandi
spannst saga um hvernig á því
stóð. Þótt sagan sé að sjálfsögðu
uppspuni, sakar ekki að segja
hana hér. En þannig var, sam-
kvæmt sögunni, að abbadísin
'elskaði Dom Perignon á laun, og
eitt sinn var hún að flýta sér frá
stefnumóti þeirra í vínkjallaran-
um. Þá vildi svo illa til að
korkhællinn á öðrum skó hennar
brotnaði af. Dom Perignon á svo
að hafa fundið hælinn, og stungið
honum í einn flöskustútinn . . .
Hvað sem öðru líður var það
án efa Dom Perignon sem komst
að því að unnt var að brugga af-
bragðsvín með því að blanda
saman vínum frá ýmsum ræktun-
arsvæðum, sem brugguð höfðu
verið úr mismunandi tegundum
Vínberin tínd í Champagne-héraði.
Kampavinsflöskunum snúið til að safna botnfallinu í tappana.
vínbeija, og með því að blanda
stundum saman vínum úr fyrri
uppskerum. Og hann var trúlega
fyrstur til að læra að ef blá vínber
voru pressuð og hratið fjarlægt
strax varð vínið hvítt.
Víngerðarmönnum hafði lengi
verið ljóst að getjun gat farið af
stað á ný þegar hlýna tók í veðri
á vorin. Mynduðust þá kolsýruból-
ur í víninu og aukinn þrýstingur
í flöskunum, sem oft leiddi til
þess að tapparnir þeyttust úr stút-
unum eða að flöskurnar brotnuðu.
Datt Dom Perignon þá í hug að
þessi síðari geijun gæti aukið
gæði vínsins, og til að minnka
líkurnar á að tappamir þeyttust
úr flöskunum reyndi hann að nota
korktappa og binda þá fasta með
snæri. En þá sprungu flöskurnar,
svo hann fékk glerblásara sína til
að gera flöskur úr þykkara gleri.
Og þar sem rottur áttu það til að
naga snærin og tappana greip
hann til þess ráðs að vefja blý-
þynnu yfir stút og háls á flöskun-
um.
Sagt er að þegar Dom Perignon
hafi ætlað að smakka á fyrstu
uppskerunni sinni eftir allan þenn-
an viðbúnað hafi hann alls ekki
átt von á því að vínið væri enn
freyðandi. En þegar hann hafði
bragðað á því á hann að hafa
hrópað upp: „Bræður mínir, kom-
ið fljótt, ég er að drekka stjörnur!"
Eftir þessa fýrstu tilraun hófu
önnur víngerðarhús bruggun
kampavíns, og hefur bmggunin
litlum breytingum tekið á liðnum
ámm. Vín úr vínbeijum sem notuð
em til hvítvínsgerðar em látin
geijast í ámum frá uppskem á
haustin fram á vetur. Aðallega
em notuð þrennskonar vínber,
Pinot, Meunier og Chardonnay.
Þegar hlé verður á geijuninni um
veturinn kemur að vínsmökkumn-
um. Þeir verða að velja saman
þá blöndu af vínum, sem bezt .
hæfa í kampavínið, og er blandan
svo sett í sterkar flöskur til fram-
haldsgeijunar. Næstu þijá
mánuðina er flöskunum snúið
smátt og smátt þar til í lokin að
þær standa á haus. Það botnfall
sem eftir var í víninu sezt þannig
í tappana. Svona em flöskumar
látnar standa minnst í hálft ár,
oft mun lengur, en þá er vínið
fullgetjað. Nú er tappinn tekinn
úr, og botnfallið með, flöskunni
lokað með nýjum tappa og
kampavínið er tilbúið.
Áður en flöskunum er lokað í
seinna skiptið er bætt út í vínið
smá skammti af sykri, sem
bræddur hefur verið í gömlu
kampavíni. Fer það eftir sykur-
magninu hvernig kampavínið
verður flokkað. Vín með minnsta
sykurmagninu verður þurrt og
yfirleitt merkt bmt eða extra dry,
örlítið sætari vín em merkt sec,
og vín með meira sykurmagni em
flokkuð sem demi-sec eða doux.
Eins og gefur að skilja veltur
mikið á því að vínsmakkai-arnir,
eða blandaramir, kunni sitt fag,
og Dom Perignon þótti fráhær á
því sviði. Síðustu ár æfinnar var
hann blindur, en þegar vínræktar-
bændumir komu með uppskemna
til hans fann hann strax á bragð-
inu af beijunum hvaðan þau
komu, og sagði til um hvemig
ætti að blanda þeim saman til að
fá sem bezt vín. Og alla tíð síðan
hefur starf vínsmakkaranna verið
eitt það mikilvægasta hjá hveiju
víngerðarhúsi.
(Úr Encyclopædia Britannica, 23. bindi,
bls. 662-663)
Keflavík:
Þroskaheft
börn á hestbaki
Keflavík.
ÞROSKAHEFT börn í
Keflavík áttu þess kost að
reyna nokkra reiðskjóta hjá
félögum í Hestamannafélag--
inu Mána um daginn.
Mikil spenna var meðal þátt-
takenda sem allir voru ungir að
árum og í upphafi voru hestam-
ir sumum ógnvekjandi skepnur.
En að lokum varð forvitnin
hræðslunni yfirsterkari og eftir
nokkrar fortölur fóm allir á bak
og héldu ánægðir heim að lokum.
Þetta er að verða árviss við-
burður hjá þeim Mánamönnum,
sem hefur mælst ákaflega vel
fyrir.
- BB
Að lokum fengu allir merki Þá er sú þraut að baki og allir komust í mark heilir á húfi.
hestamannafélagsins að gjöf til
minningar um ánægjulega stund.