Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
59
Unnur Jóhanna
Brown - Minning
Fædd 24. maí 1965
Dáin 24. júlí 1987
Okkur langar til að minnast
Unnar, vinkonu okkar, með fáum
orðum.
Við kynntumst 6 ára gömul þeg-
ar leiðir okkar lágu saman í
Austurbæjarskóla og höfum verið
vinir síðan. Á síðustu árum liðu
stundum mánuðir án þess að við
hittumst — en þó var eins og við
hefðum aldrei skilið.
Ég sakna þín
og á tröppum húss þíns
situr þrá mín
situr glitrandi þrá mín.
Þegar hrímið blandast birtu hennar
staldra augu mín við
svo hún sofnar um stund
aðeins um stund.
(Nína Björk Ámadóttir)
Unnur er dáin, en í sorginni eig-
um við minninguna um skemmti-
lega og góða vinkonu.
Gröfin er ekki hellisbyrgi heldur opið hlið.
í ljósaskiptunum um kvöldið er hliðinu læst,
en opnað aftur í dögun.
(V. Hugo)
Elsku Dísa, Matti, Rögnvaldur
afi, Röggi og Stína, Gísli og Mar-
grét, sem nú hefur misst góða
móður, megi Guð gefa ykkur styrk
í sorg ykkar.
Anna María, Atli og Elísabet
Mig langar í fáum orðum að
minnast elskulegrar vinkonu
minnar, sem lést þann 24. júlí
síðastliðinn. Við Unnur kynntumst
fyrir rnörgum árum, líklega einum
tólf, Qórtán, í skólanum. Ég man
ekkert hvernig, því í minningunni
er eins og við höfum alltaf þekkst.
Og þannig var vinátta okkar líka,
eitthvað svo sjálfsagður hluti af til-
verunni. Ég man samt, að við
gerðum einu sinni hressilega tilraun
til að ógna þessum sjálfsagðheitum,
en auðvitað tókst það ekki, og fyrr
en varði vorum við aftur farnar að
hittast og ærslast saman. Við gát-
um alltaf manað hvor aðra til að
gera allt mögulegt, sem öðrum vin-
um okkar leist ekki par á. Við
Unnur bara gutum augum á hvor
aðra, skelltum upp úr og hentumst
af stað, saman til útlanda, settum
auglýsingu í Tímann og réðum okk-
ur í sveit, hjóluðum í heita lækinn
á öllum árstímum (og ætluðum
auðvitað aldrei að komast uppúr
fyrir hlátri og kulda), löbbuðum
saman upp í hesthús, riðum út sam-
an, saman á hestamannamót, böll
og skemmtanir af öllu tagi, Já, og
öll skiptin, sem við bara hittumst
til að tala saman um lífið og tilver-
una, hross og menn, sameiginlega
vini og upplifanir. Já, elskuleg vin-
kona og fyrrum samstarfsmaður í
ærsla- og upplifunardeild lífsins, ég
mun sannarlega sakna hennar og
minnast sem kjarnorkuvinkonu,
manneskju framkvæmda, dugnaðar
og orðheldni. Þegar ég hugsa til
baka, koma setningar eins og:
Ættum við að?!! Já, gerum það!!!
Núna, komum!!! upp í hugann. Allt-
af eitthvað að ske. Og svoleiðis er
tilveran og dagarnir líka. Allt held-
ur áfram og alltaf er eitthvað að
ske og eftir allar stundirnar með
þér kom líka að síðasta kossinum.
Hann var fyrir mér eins og hún,
eitthvað, sem aldrei gleymist. . .
í nótt skulum við vaka
og vera okkur sjálfum
eldar í himni ásta
Þá öll við getum orðið
eldar sem dá og njóta
ástar sem öðrum var gefin.
Hver má gráta gæfu
sem gefin var á burt
og kemur aldrei aftur.
Diýpur líf, diýpur líf á jörð.
(Vilmundur Gylfason.)
Vala Ólafsdóttir
HUSEIGANDI GÓÐUR!
UIV MEVTIUt
A VWHUDINU?
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
# Alkalí-skemmdir # Vaneinangrun
# Frost-skemmdir # Sprunguviðgerðir
# Lekirveggir # Síendurtekin málningarvinna
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti
Sfb -utanhúss-klæðningarinnar:
SÍD-klæðningin er samskeytalaus.
StO-klæðningin er veðurþolin.
Sto-klæðningin er litekta og fæst í yfir 300
litum.
Sfo -klæðningin er teygjanleg og viðnám gegn
sprungumyndun er mjög gott.
sfo -klæðningin leyfir öndun frá vegg.
Sto-klæðningin gefur ótal möguleika í þykkt,
áferð og mynstri.
Sto-klæðninguna er unnt að setja beint á vegg,
plasteinangrun eða steinull.
Sto-klæðninguna er hægt að setja á nær hvaða
byggingu sem er, án tillits til
aldurs eða lögunar.
sfo-klæðningin endist — Vestur-þýsk gæðavara
RYDIf
Bíldshöfða 18 — 112 Reykjavík
Sími 673320
«1
*Al ....... i,! k