Morgunblaðið - 16.08.1987, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
4i % t Dóttir mín, GUÐRÚN ELÍSABET ÁGÚSTSDÓTTIR, Aðalstrœti 25, ísaflrði, * andaðist í Landspítalanum 14. ágúst. Fyrir hönd aöstandenda, , Agust Pótursson.
t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALBORG JÚLÍUSDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum hinn 31. júlf. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auösýnda samúð. Arndfs Egilson, Egill Egilson, * Júlíus Egilson, Egill Egilson yngri, tengdabörn og barnabörn.
t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og iangafi, KRISTÓFER KRISTÓFERSSON, Sörlaskjóli 11, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 13. ágúst. Guðbjörg Kristjánsdóttir, Kristrún Kristófersdóttir, Styrmir Gunnarsson, Oddrún Kristófersdóttir, Guðmundur Magnússon, Smári Kristófersson, Þóra Valentinusdóttir,
t Elsku dóttir okkar og systir, HRUND JÓNSDÓTTIR, Sævangi 40, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13.30. Halldóra Valdimarsdóttir, Valur Svavarsson, Vilhjálmur Gunnar Jónsson, Bjarney Valsdóttir.
t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HANSÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Njálsgötu 12, Reykjavík, er lést laugardaginn 8. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju þriöjudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Jarðsett verður í Hafnar- fjarðarkirkjugarði. Karl K. H. Ólafsson, Sveinbjörg Karlsdóttir, Guðmundur Guðbergsson og barnabörn hinnar látnu.
. t Útför ömmu okkar, SIGRÚNAR EINARSDÓTTUR hárgreiðslumeistara, Lönguhlfð 3, Reykjavfk, verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ásta Skaftadóttir, Sigrún H. Gunnarsdóttir, Ólafur R. Gunnarsson.
t > Móðir okkar, STEINUNN GRÓA BJARNADÓTTIR, Háaleitisbraut 117, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á líknar- stofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Inger T raustadóttir, Bjarni Traustason.
Móðursystir mín og fósturmóður okkar,
MARÍA S. HJARTAR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 17. ágúst kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hinnar látnu vinsamlega láti góðgerðar-
stofnanir njóta þess.
Svava Proppé,
Ólafía Ágústsdóttir,
Hans Bjarnason.
Minning:
Liihr Oldigs
Fæddur 14. febrúar 1907
Dáinn ll.júlí 1987
Til okkar hefur borist sú frétt,
að hann Herr Oldigs okkar sé dáinn.
Sonur hans, Onno, átti þess kost
að koma hingað til lands í stutta
heimsókn í tengslum við Natófund-
inn nú fyrir skömmu. Hann sagði
okkur frá uppskurði, sem faðir hans
hafði gengist undir skömmu eftir
80 ára afmælið, sem var 14. febrú-
ar. Þessi uppskurður hafði tekist
vel og allir voru bjartsýnir, en eftir
stutta sjúkrahúsvist að nýju lést
hann 11. júlí og mun banameinið
hafa verið krabbamein.
Okkur, sem áttum þess kost að
kynnast honum og hans ágætu
konu, Enke Oldigs, er ljúft að
minnast hans.
í fallegu, litlu þorpi, Lunden í
Dietmarschen í Norður-Þýskalandi,
er gamalt, virðulegt hús sem lengi
var notað sem skóli. Þarna var
heimavistarskóli í lýðháskólastíl
fyrir ungar stúlkur. í hartnær ald-
arfjórðung var Liihr Oldigs skóla-
stjóri þar. Á hverju námskeiði voru
um 30 stúlkur búsettar þar og
skólastjórahjónin tóku þeim opnum
örmum og sameinuðu sinni eigin
fjölskyldu. Þau létu sér mjög annt
um útlendingana, sem hjá þeim
dvöldu, og áttum við flestar góð jól
og góða hátíðisdaga með þeim hjón-
um og bömum þeirra fimm. Þetta
voru mannvænleg og góð böm og
gott að vera eins og einn af fjöl-
skyldunni.
Herr Oldigs var stór og myndar-
legur maður og raungóður að sama
skapi. Það er mannbætahdi að fá
að kynnast fólki eins og þessum
ágætishjónum og fá að njóta hand-
leiðslu þeirra um tíma. Það var
þannig af hendi leyst að þau verða
alltaf minnisstæð og maður býr
lengi að handleiðslu þeirra. Það var
fyrir tilstilli hans að nokkuð margar
íslenskar stúlkur fengu fría skóla-
vist. Honum fannst það ávinningur
fyrir skólahaldið og fyrir þýsku
stúlkumar að fá jafnframt náminu
að kynnast erlendum gestanemend-
um.
Vegna vinfengis við íslandsvin-
inn Reginu Dinse kom hann því til
leiðar að bjóða íslenskum stúlkum
til námsdvalar. Lengi var það von
okkar, að ósk þeirra hjóna rættist
og að þau kæmu í heimsókn til ís-
lands. Við ætluðum svo sannarlega
að taka vel á móti þeim og endur-
gjalda þeim eftir bestu getu. Því
miður mun það ekki rætast héðan
af. Þó getum við enn vonað að hún
Enke okkar treysti sér til ferðar,
ef hún á eitthvað eftir af sínum
mikla krafti og dugnaði. Mikill
mannvinur og góður fræðari er nú
r
genginn, blessuð sé minning hans.
Megi Guð styrkja Enke og börn
þeirra, svo og tengdaböm og barna-
bömin 9.
F.h. íslenskra
Lunden-námsmeyja.i
Dóra Jónsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
Minning:
Jóhann Játvarður Franksson
(Jean le Sage de Fontenay)
Fæddur 12. júní 1929
Dáinn ll.júlí 1987
Jean var sonur Franks le Sage
de Fontenay, sendiherra Dana hér
á landi, og konu hans, Guðrúnar
Eiríksdóttur, jámsmiðs í Reykjavík,
Bjarnasonar.
Jean varð stúdent frá Rungsted
í Danmörku 1949. Gegndi svo her-
þjónustu þar og hefur hún vafalaust
mótað.hugarfar hans og framkomu.
Búfræðingur frá Hvanneyri 1953
og kandidat þaðan 1955. Var ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Borgarfjarðar frá 1955 til 1960 og
verksmiðjustjóri hjá Grasköggla-
verksmiðjunni á Stórólfshvoli til
dánardægurs.
Þegar menn eru á góðum aldri
eru ævilok víðs §arri í hugum sam-
ferðafólksins og þess vegna koma
þau jafnan samferðafólkinu á óvart.
Fundum okkar Jeans bar fyrst
saman á Hvanneyri. Maðurinn vakti
strax athygli mína vegna þess að
hann bar af öðrum. Framkoma hans
var fáguð og yfírbragð annað en
okkar hinna. Enda kom það á dag-
inn að hann var heimsborgari í allri
sinni hegðun. Jean féll strax inn í
hóp okkar. Hann hafði tekið þá
ákvörðun að verða íslenskur sveita-
maður og kom hingað til Islands
til þess að læra búfræði. Ásetningur
hans var að helga íslenskum bænd-
um krafta sína.
í hópi skólapilta var Jean hrókur
alls fagnaðar og bætti hann hvern
fund með hógværð sinni og
skemmtilegri fyndni. Alltaf var gott
að leita til Jean því að hann var
ekki nískur á þá visku er hann bjó
yfír.
Árin liðu og samfundir voru frek-
ar fáir enda langt á milli. Svo lágu
leiðir okkar saman aftur veturinn
1972 til 1973 er ég var kennari á
Hvolsvelli. Þann vetur opnuðu þau
hjón heimili sitt og mátti, ég þar
koma þegar ég vildi. Stundum var
slegið í spil og lomber spilaður við
Kristófer Ólafsson, tengdaföður
Jeans, bónda í Kalmannstungu í
Hvítársíðu. Þennan vetur kynntist
ég konu hans og þá sá ég að Jeaní
hafði valið sér traustan og góðan
lífsförunaut. Með þeim hjónum var
jafnræði.
Ekki minnist ég þess að Jean
leggði nokkrum manni illt til. Hann
var einn þeirra sem allt vildi bæta.
Allar umræður hans um menn og
málefni voru grundaðar af góðvild
og hlýhug.
Nú hefur Jean verið kallaður yfír
landamærin og frá sjónarhóli
skammsýnna manna hefði sú ferð
mátt dragast. Kallinu verður að
hlýða þegar það kemur.
Við hjón sendum konu hans,
Ólöfu Sesselju Kristófersdóttur,
Útgörðum, og bömum þeirra hjóna
innilegar samúðarkveðjur.
Góður íslendingur er genginn.
Þökk fyrir samfylgdina.
Sveinn Guðmundsson,
Miðhúsum.
Blömostofa
Friöfmns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opí^ öll kvöld
tll kl. 22,- éínnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 681960