Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
197. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflói:
Árásir stríðsaðilja
stigmagna spennu
Bahrain, Reuter.
ÍRAKAR og íranir skiptust í gær
á árásum, en nú er mesti liðssöfn-
uður Bandaríkjaflota síðan í
Víetnamstriðsins samankominn á
Persaflóa. Mjög er nú lagt að
írökum að láta af skipaárásum
sínum, sem hófust um síðustu
helgi eftir 45 daga hlé. Þá vör-
uðu íranir Bandaríkin við þvi að
Aquino:
Yissi um
uppreisnina
fyrirfram
Manilu, Reuter.
FORSETI Filippseyja, Corazon
Aquino, sagði í gær að stjómin
hefði haft vitneskju um uppreisn-
ina á dögunum, tveimur vikum
áður en hún var gerð. „í þetta
skipti brást upplýsingaþjónustan
mér ekki. Við höfum búist við
byltingartilraun um nokkra
hríð,“ sagði Aquino í sjónvarps-
ávarpi.
Þrátt fyrir að öldur hafi lægt á
Filippseyjum leikur Gregorio
„Gringo“ Honasan, höfuðsmaður,
enn lausum hala, en hann var for-
sprakki byltingarmanna. Talið er
að hann hafí 2.000 hermenn á
sínum snærum og telja yfírmenn
stjómarhersins að hann sé til alls
líklegur.
Aquino sagði að tveimur vikum
fyrir uppreisnina hefði aðallífvörður
hennar komið að máli við hana og
skýrt henni frá því að enn ein valda-
ránstilraunin væri í bígerð. Þrátt
fyrir þetta útskýrði Aquino ekki
hversvegna uppreisnarmönnum
hefði verið leyft að koma jafn nærri
forsetahöllinni og raun bar vitni eða
hvemig þeim var unnt að hreiðra
um sig í Aguinaldo-herbúðum,
stærstu herbúðum Manilu.
ef í odda skæríst með þjóðunum
yrði mannfall Bandaríkjamanna
gífurlegt.
Stjómvöld í Bagdað hafa vísað á
bug öllum kröfum Bandaríkja-
stjómar um að láta af skipaárásun-
um, en þau telja að þær séu eina
leiðin til þess að íranir fallist á
vopnahlé það, sem Öryggisráð SÞ
fyrirskipaði. Bandaríkjafloti hefur
nú um 30 herskip á flóanum til
þess að veija skipalestir þeirra skipa
sem lögskráð em í bandarískum
höfnum. Til þess að þrýsta enn frek-
ar á írani hyggst Bandaríkjastjóm
hvetja til alþjóðlegs vopnasölubanns
gegn íran í von um að klerkastjóm-
in fallist á vopnahléskröfu Örygg-
isráðsins.
Reuter
Mathias Rust við upphaf réttarhaldanna í gær. Honum til sitt hvorrar handar eru sovéskir dómverðir.
Mathias Rust við réttarhöldin í Moskvu:
Fór til Moskvu vegna
Reykj avíkurfimdarins
VESTUR-ÞÝSKI flugmaðurínn, Mathias Rust, bar fyrir hæstarétti
Sovétríkjanna að hann hefði afráðið að fljúga til Moskvu vegna
vonbrígða með niðurstöður Reykjavíkurfundarins í október á
síðasta ári. Sagðist hann hafa vonast tíl þess að hann gæti hitt
Mikhail Gorbachev og rætt um nauðsyn heimsfriðar við hann.
Rust flaug sem kunnugt er óhindraður til Moskvu hinn 28. maí sl.
í 80 mínútna langri ræðu sinni gekkst Rust við öllum ákæruatríðum.
Rust, sem er 19 ára gamall, getur
átt von á allt að 10 ára fangelsi
verði hann sekur fundinn. Niður-
staða er talin liggja fyrir á föstudag.
Hann sagði réttinum að hann
hefði lengi dreymt um að byggja
réttlátt þjóðfélag sem væri laust við
galla vestræns og kommúnísks þjóð-
skipulags og vildi hann segja
Gorbachev hug sinn.
Dómarinn Robert Thikhomirov
spurði hann hvers vegna hann hefði
lent á Rauða torginu. „Á Vestur-
löndum vita menn ekki mikið um
Sovétríkin, en þeir þekkja Rauða
torgið, svo ég lenti þar,“ svaraði
Rust. Dómarinn benti honum á að
hann hefði getað lent við embættis-
bústað kanzlarans Helmuts Kohl í
Bonn ef hann vildi velqa á sér heims-
athygli. Rust svaraði hins vegar: „Ég
var að leita uppruna friðar og hann
er ekki að finna í Bonn heldur í
Moskvu."
Móðir Rusts, Monika, sagði að
Rust væri „ungur maður með göfugt
hjarta, en hann er einnig ungur
maður og reynslulítill."
Þegar Rust flaug frá Helsinki til
Vestur-þýska þingið:
Kohl ver tilboð um upp-
rætingu Pershing 1A
Rnnn Routor
Bonn, Reuter.
HELMUT Kohl, kanzlari Vestur-Þýskalands, varði í gær tilboð
sitt um upprætingu 72 flauga vestur-þýska hersins, en Genfar-
viðræður risaveldanna um skamm- og meðaldrægar flaugar
hafa einkum strandað á þeim. Kohl var harðlega víttur af
mörgum samheijum sinum í samsteypustjórn sinni, sem sögðu
að Kohl hefði varpað öryggishagsmunum Sambandslýðveldis-
ins fyrir róða, en einnig sárnaði þeim að Kohl skyldi ekkert
samráð hafa við aðra um þessa mikilvægu ákvörðun.
Á þingfundi í gær, sem stóð í
þijá tíma, sagði Kohl að tilboð sitt
hinn 26. sl. væri framlag Vestur-
Þýskalands til sögulegs afvopnun-
arsáttmála risaveldanna.
„Ákvörðun mín og frumkvæði vísar
til framtíðar, en er jafnframt í sam-
ræmi við grundvallar öryggisstefnu
okkar,“ sagði Kohl.
Umræðan fór fram að beiðni sósí-
aldemókrata, sem eru í stjómarand-
stöðu, en þeir höfðu sig lítt sem
ekki í frammi og eftirlétu stjómar-
þingmönnum að deila um ágæti
tilboðs Kohl. Krötum mistókst þó
að knýja fram atkvæðagreiðslu um
málið og telja fréttaskýrendur að
stjóminni hafí tekist að gera eins
lítið úr ágreiningi sínum og unnt
var.
Fjölmargir stjómarþingmenn
stigu samt í pontu og gagnrýndu
Kohl ákaflega, en aðrir létu sér
nægja framíköll úr sætum sínum.
Helst átöldu þeir hann fyrir að gefa
eftir í því skyni að flýta fyrir samn-
ingsgerð sem kæmi öllum til góða
nema Þjóðveijum, þar sem áfram
verða skammdræg vopn f Evrópu,
sem vart verða notuð annars staðar
en í Vestur-Þýskalandi.
Reuter
Helmut Kohl, kanzlarí Vestur-
Þýskalands bfður átekta í
ræðustól eftir þvf að framíköll-
um þingmanna linni.
Moskvu flaug hann 800 km leið yfír
sovéskt landsvæði, en þar em öflug-
ustu loftvamir heims. För hans leiddi
til afsagnar Sergeis Sokolov, vama-
málaráðherra, og yfirmaður loft-
vama var rekinn.
Sjá ennfremur bls. 33.
Afghanistan:
Uppþot í
stjórnar-
hernum
Islamabad, Reuter.
í sfðustu viku gerðu flugmenn
i afghanska stjómarhemum upp-
reisn í herbúðum f Bagram
norður af Kabúl. Að sögn vest-
rænna sendiráðsstarfsmanna
eyðilögðust 15 flugvélar f átök-
um þegar uppreisnin var bæld
niður.
35 flugmenn stóðu að uppreisn-
inni en þeir höfðu gert verkfall til
að mótmæla aukinni áhættu vegna
fullkominna loftvamareldflauga
sem vestræn ríki hafa látið skæm-
liðum í té. Stinger-eldflaugar frá
Bandaríkjunum hafa stóraukið
viðnámsþrótt skæmliðanna og hafa
þeir að undanfömu gert harða hríð
að Bagram. Þegar Sovétmenn
bældu uppreisnina niður vora 15
flugvélar eyðilagðar á jörðu niðri
og fjöldi óbreyttra borgara féll í
loftárásum.