Morgunblaðið - 03.09.1987, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
Joy Fielding: Kiss Mommy Go-
odbye
ÚTG. Signet books 1986
MÉR skilst, að þetta sé fyrsta
bók Joy Fielding, að minnsta kosti
sú, sem hefur aflað henni mestrar
frægðar. Nú fer því fjarri, að ég
sé sérfræðingur í þessum höf-
undi, en maður þarf ekki að lesa
lengi í þessari bók til að átta sig
á, að höfundi er einstaklega lagið
að búa til samtöl. Ótrúlega lifandi
samtöl, sem skila sér fullkomlega.
Þetta er ekki á allra færi.
Almennt er Joy Fielding leikinn
höfundur, því að söguþráðurinn
er trúverðugur, og hvergi farið í
meiri hasar en boðlegt verður að
teljast. Donna er aðalpersóna bók-
arinnar, hún vinnur á auglýsinga-
stofu og kynnist Victor, sem er
starfsmaður hjá tryggingafyrir-
tæki. Victor er rómantískur og
það sem meira er, vitur maður
og undurgóður. Skyldi maður
ætla til að byrja með. Ekki skað-
ar, að hann er hið mesta glæsi-
menni. Þau gifta sig, þó svo að
mjóróma efasemdarraddir séu
famar að gera vart við sig hjá
Donnu; eitthvað er ekki eins og
það á að vera. Þegar þau eru gift
fer að bera á þessu í vaxandi
mæli. Þau deila um furðulegustu
smáatriði, sem Donna fær ekki
séð, að skipti neinu máli, en samt
verður rifrildi út af. Og þessi
smáatriði virðast hafa þýðingu f
augum Victors. Og fyrir utan að
hann nær að einhverju leyti fram
þeim tilgangi, sem virðist vaka
fyrir honum með því að hefja
þessar deilur. Donna verður rugl-
uð í ríminu og þar sem rimmumar
em svo fráleitar, að þær misbjóða
í raun og veru skynsemi hennar,
em eðlileg þau viðbrögð að fyllast
af sektarkennd.
Lýsingamar á hjónabandinu og
hvemig Victor - án þess sennilega
að ætla það í alvöru - brýtur
Donnu hægt og rólega niður,
vemlega vel gerðar um flest. Það
á margt eftir að gerast þegar hér
er komið sögu og ekki ástæða til
að fara út í það nákvæmlega. En
bókin er læsileg. Það er kannski
til of mikils mælzt í svona reyf-
ara: það fannst mér þó á skorta,
að engin tilraun er gerð til þess
af hendi höfundar að benda á,
hvemig Victor varð að þessum
tilfinningalega ísklumpi.
Joy Fielding: The Other Woman
ÚTG. Signet Books 1986
Söguefnið er ekki frumlegt, en
alltaf forvitnilegt í sjálfu sér.
Hvaða bækur eigum við að lesa
í sumarleyfinu?
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
Hjónabandið, framhjáhaldið og
Hin konan. Það ræður svo auðvit-
að miklu, hvemig höfundur setur
þetta fram og matreiðir ofan í
lesendur.
Jill hafði unnið við sjónvarp,
þegar hún komst í kynni við lög-
HE STOLE THE CIULDREN-• AN
EX-HUSBAND'S RUTHLESS VENGEANCE.
A MOTHER'S TERROR-EILLED QUEST...
' “AKNOCKOUTr
-THE NEW YORK TIMKS
GOODBVE
..........-a kovxi. nv
JOYFIELDING
fræðinginn David Plumey. Hún
naut þar hins mesta álits og var
á flakki út um allan heim. David
er giftur Elaine og á með henni
tvö böm. Hjónabandið hlýtur að
vera mjög vont, að dómi Jill, því
að það er ekki hægt að eyðileggja
gott hjónaband. Með Jill og David
takast nú ástir og hún fylgist með
þvf, hvemig hann leikur tveimur
skjöldum og hún heyrir trúlegu
skýringamar, sem hann gefur eig-
inkonunni. Og hún lokar augunum
og lætur allt gott heita. Jill er það
næsta óskiljanlegt, hvemig hún
fær sætt sig við þetta. En David
unir náttúrlega prýðilega við
ástandið og væntanlega er hann
ekkert á þeim buxunum að skilja
við Elaine. Það er Jill sem krefst
að hann velji, þegar hún - en ekki
eiginkonan - geta ekki fellt sig
við þetta öllu lengur.
Móðir Jill bendir henni á, að
fyrst David hafí skilið við eina
eiginkonu sé eins líklegt, að hann
muni síðar meir fara frá þeirri
næstu þ.e. Jill. En það er óhugs-
andi, þvf að hamingjan er mikil
og þó að bömin séu erfíð og fyrri
konan tryllt af beizkju skyggir
ekkert á hamingju Jill, að ráði,
fyrr en í garðveizlu, að ung kona,
Nicole Clark, gengur til hennar
og gefur þá yfírlýsingu, að hún
ætli að giftast eiginmanni hennar.
David slær þessu frá Jill og sér
sem gríni. Þau eru ánægð, góð
og glöð og Nicole Clark er bara
pía með skrítna kímnigáfu. Jill
er ekki alveg eins ánægð og hún
vill vera láta, hún hafði neyðzt til
að hætta í sjónvarpinu, því að
David var á móti ferðalögunum
og hefur tekið að sér kennslu f
íjölmiðlun. Og hundleiðist.
Þau hafa samskipti töluvert við
A1 og Beth Wetherby. A1 er yfír-
maður og vemdari Davids og þau
Wetherbyhjón lifa í þessu líka
fyrirmyndarhjónabandi. Það verð-
ur mikið áfall þegar A1 finnst
myrtur og Beth stórslösuð og enn
flækist málið, þegar Beth játar
að hafa myrt Al. Samtímis er
hjónaband þeirra Jill og Davids
að fara fyrir lítið. Nicole Clark
hefur ekki látið deigan síga og
það lítur út fyrir, að David geti
ekki gert upp við sig, hvað hann
vill. Hann elskar þær báðar, að
eigin sögn. Hann vill ekki skilja,
en hann getur ekki látið Nicole
róa.
Það er óhugsandi annað en
uppgjör eigi sér stað milli þeirra
hjóna. Og eins og segir í umsögn-
inni um hina fyrstu bók Joy
Fielding lætur henni vel að skrifa
A WIC.KCOLY HOMKSr
Í10VELAB0UTAWI/TS
ULTINATCCrWUXnCifi
THE
OTHER
mm
samtöl og ná andrúmslofti þeirra.
Það á einnig við í þessari bók.
En sums staðar teygir Fielding
lopann um of.
Báðar þessar bækur eru auð-
lesnar og á allan hátt læsilegar.
Og ekki tormeltar. Það er engin
ástæða til að búast við því af
þessari gerð afþreyingarbóka.
George á flakki
um heiminn
Erlendar baakur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leslie Thomas:The Adventures
of Goodnight and Loving
Útg. Penguin 1987
George Goodnight er lögfræði-
legur ráðunautur hjá brezku
dagblaði. Hann er kominn á fimm-
tugsaldur, giftur Felicity og á
stjúpdótturina Tinu. Líf þeirra Ge-
orge og Felicity er í föstum og
eiginlega bara farsælum skorðum.
Þau hafa komið sér á þurrt, pen-
ingalega. Starf Georges er senni-
lega hvorki leiðinlegra né
skemmtilegra en gengur og gerist.
Það er allt í lagi. Og þó er George
vansæll. Og verður vansælli með
hverjum degi. Þegar hann vaknar
morgun hvem veit hann nákvæm-
lega, hvað dagurinn muni bera í
skauti sér; hann hittir alltaf sama
fólkið í lestinni og allir segja alltaf
það sama. í vinnunni er eitthvað
ámóta uppi á teningnum. Hjóna-
bandið er ekki æsandi lengur,
raunar fjarri því, það er orðið svo
leiðinlegt. Þau hjón vita alltaf hvað
hitt segir.gerir og hugsar og einn
dagur er öðrum, ekki bara líkur,
dagamir eru allir eins.
George vill upplifa ævintýri, ferð-
ast um heiminn í staðinn fyrir að
fara í þessa sömu sumarleyfisferð
til Comwall og hann og Felicity
hafa gert í tíu ár. En hann orkar
ekki almennilega að bijótast út.
Samt vottar á viðleitni. Upp á
síðkastið er hann orðinn hreinasta
plága með víni og nú kórónar hann
vandræðin með því að drekka sig
pöddufullan í virðulegu samkvæmi
og fara með dónalegar limrur. Felic-
ity hótar að skilja við hann snarlega.
Henni er sjálfsagt ekki alvara, en
þetta verður þó til, að George lætur
til skarar skríða. Hann pakkar sam-
an og leggur af stað til að lenda í
ævintýmm.
En í fyrstu atrennu kemst hann
ekki langt, því að það springur á
bílnum og meðan hann leitar eftir
aðstoð, koma bíræfnir þjófar, skipta
um dekk og stela bílnum og far-
angri Georges. Þetta lítur ekki vel
út, en George lætur ekki hugfallast
og eftir friðsæla og hressandi vem
í litla þorpinu þar sem óhappið átti
sér stað, heldur hann ótrauður ferð-
inni áfram. Verður skipreika við
Frakklandsströnd, þegar bátur sem
hann er að hjálpa fólki að koma
yfír sundið sekkur eins og steinn.
Hann er að verða peningalaus, en
sem betur fer á hann dýrgrip heima
þar sem frímerkjasafnið hans er og
Leslie Thomas
það fleytir honum áfram um stund.
Hann lendir í ástarævintýri með
Janine, sem er raunar erfíngi að
merkilegu frímerkjasafni. Og svo
er nú samt að halda áfram og leik-
urinn berst sannarlega um heiminn,
hann flækist í samsæri að myrða
arabiskan höfðingja, lendir í fang-
elsi í Ástralíu og svo mætti lengi
telja. Alltaf er hann rekinn áfram
af þörf fyrir að lenda í ævintýmm,
en stundum taka þau af honum
ráðin og lífið er sannarlega ekki
dans á rósum.
En einhvem tíma tekur allt enda.
Loks hefur hann sennilega fengið
sig fullsaddan og þá er að snúa
heim. Kannski er bezt að taka upp
sambúð við Felicity aftur, alltjent
er frímerkjasafnið farið og ekki að
neinu öðm að hverfa en gamla
lífínu. Kannski er það líka gott.
Þegar heim kemur býst George
að allt sé meira og minna eins og
þegar hann fór. En það kemur ann-
að í ljós. Og þeir fáu sem muna
eftir honum, virðast ekkert upp-
veðraðir að sjá hann.
Stundum er meira gaman en í
annan tíma. Að lesa þessa bók, sem
er nýkomin út í vasabrotsútgáfu
hjá Penguin, er einhver mesta lestr-
arskemmtun mín í langan tíma.
Frásögnin er hlægileg, hlý og hisp-
urslaus. George verður eftirminni-
leg persóna, aldrei aumkunarverður
eða spaugilegur, svo yndislega
manneskjulegur og skiljanlegur.
Það er vonandi, að þessi bók
verði fáanleg hér sem fyrst. Hún
er ekki bara skemmtileg og vel
gerð, hún segir okkur ótal sann-
indi, sem eru þörf og sönn.
Stór útsala
á gólfteppum og teppabútum
12 til 50% afsláttur
jjj- w _
Teppi frá kr.
290
pr fm.
Teppaverslun Friðrik Bertelsen hf.
Síðumúla 23, sfml 686266.
Genglð Inn frá Selmúla.