Morgunblaðið - 03.09.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
15
•$|i%
Dagsbrúnar-
menn
Myndllst
Valtýr Pétursson
Vitur maður hefur sagt: Menn-
ing er að gera vel. Því mætti
segja í þessu tilfelli, að listsýning
fjórmenninganna úr Dagsbrún sé
fýrst og fremst vitnisburður um
menningu erfíðismanna á ís-
landi. Á sama tíma og ASÍ opnar
þessa skemmtilegu sýningu
skrifar formaður Dagsbrúnar
Guðmundur J. sérlega skemmti-
lega og listræna grein á síður
Morgunblaðsins og segir þar frá
kynnum sínum af Þorbergi og
Laxness.
íslendingar eru nokkuð sér-
stæð þjóð hvað menningu snertir.
Alþýða hér á landi hefur ætíð
verið sérlega tengd listrænni
menningu, og mun hvergi í heimi
vera eins almennt, að fólk sanki
að sér listaverkum í rituðu máli
og myndum og geri sér far um
að njóta þeirrar andlegu upp-
byggingar, sem má öðlast af
slíku. Erfíðisfólk á íslandi hefur
hingað til verið í sérflokki, hvað
þetta snertir, og vart mun heim-
ili til í landinu, sem ekki á til bók
og málverk af einhveiju tagi.
Listamenn eru mýmargir í okkar
litla þjóðfélagi, og flestir þeirra
verða að vinna eitt og annað til
að hafa í sig og á, en stunda
engu að síður listgreinar sínar
af mikilli elju hveija stund, sem
gefur, jafnt nótt sem nýtan dag.
Það er því erfítt að gera skil á
atvinnulistamönnum og frístund-
un í þessum efnum, en auðvitað
eru margir kallaðir en fáir útvald-
ir eins og annars staðar.
Fjórir erfiðismenn hafa verið
valdir til að sýna á þeirri sýn-
ingu, sem stendur í ASÍ-salnum
við Grensásveg. Þetta er bæði
fróðleg og skemmtileg sýning,
sem hefur verið valin á breiðum
grundvelli, og ég efast um að
ljölmennari þjóðfélög hefðu get-
að komið saman betri sýningu
af þessu tagi, og er þá mikið
sagt. Sumir þessara manna hafa
aflað sér nokkurrar menntunar á
sviði myndlistar, aðrir hafa fyrst
og fremst treyst á sína náttúru-
gáfu, og þannig hafa verkin í
ASÍ-salnum orðið til á nokkuð
mismunandi forsendum.
Fyrst skal frægan telja Eggert
nokkum Magnússon, en hann er
mörgum og góðu kunnur eftir
að hafa haldið einkasýningar á
málverkum sínum og tekið þátt
í samsýningum. Hann er í fáum
orðum sagt hörku málari og
byggir algerlega á sinni með-
fæddu listrænu tilfínningu. Hann
er að mínu áliti einn fremstur
af ólærðum málurum, sem fram
hafa komið hér á landi. Myndir
hans eru bókstaflega geisla af
lífsþrótti og frásagnargleði. Pét-
ur Hraunfjörð er mjög sérstæður
listamaður, sem tfnir steina á
fömum vegi og skeytir þá saman
til að fá á þá plastískt form,
málar síðan og kallar með því
alls konar verur og fyrirbæri
fram á sjónarsviðið. Hann er
mjög frumlegur í verkum sínum
og stendur sig vel á þessari sýn-
ingu. Birgir Nurmann Jónsson
málar landslag samkvæmt sinni
innri skynjun og er stundum afar
næmur á hina óspilltu náttúru.
Hann er náttúrudýrkandinn í
hópnum. Jón Haraldsson er sá
skólaðasti í fræðunum og hefur
valið sér pastelkrít til að útfæra
myndröð af furðufuglum fyrri
daga og litríkum samtíðarmönn-
um. Hann nær ágætlega svið-
brigðum og sérkennum hvers og
eins og er þægilegur í litameð-
ferð sinni. Jón virðist hafa hitt
naglann á höfuðið með þessari
myndröð sinni og seldi allar sínar
myndir sama manni, er mér sagt,
og geri aðrir betur.
Eg hef þessar línur ekki lengri,
en vil endilega hvetja fólk til að
sjá hvað þessir erfíðismenn eru
að bauka við, þegar tími til gefst
frá amstri hversdagsins. Dags-
brún getur verið ánægð með það
listræna framlag, sem hér birtist
frá hennar félagsmönnum.
30 toirn
af barnahúsgögnum tökum við heim og þau
munu seljast upp á nokkrum dögum
Hér erverðið!
$'tý Uxi ý.
Svefnbekkur m. dýnu og 3 púðum.
Kr. 8.320,-
Svefnbekkur m. yfirhillu, dýnu og 3
púðum. Kr. 13.770,-
tl I
Svefnbekkur m. endahillu, dýnu og
3 púðum. Kr. 11.710,-
Bókahilla há. Kr. 3.670,-
Bókahilla lág. Kr. 2.450,-
Kommóða 8 sk. mjó.
Kr. 4.240,-
Kommóða 8 sk. m. skáp.
Kr. 6.490,-
Kommóða 8 sk. Kr. 5.380,-
Kommóða 6 sk. Kr. 4.250,-
Kommóða 4 sk. Kr.3.250,-
Skritborð nr. 53. Lengd 120 cm.
Kr. 4.590,-
Skrifborð nr. 54.
Lengd 120 cm. Kr. 4.120,-
Skrifborð nr. 55.
Lengd 150 cm. Kr. 5.730,-
Skrifborð nr. 56. Lengd 150 cm.
Kr. 5.380,-
Öll húsgögnin eru spónlögð með slitsterkri
plastfilmu í kvistafuru eða hvítu
húsgagna>höllin
M0BLER
REYKJAVlK