Morgunblaðið - 03.09.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
íslenskur matvælaiðnaður
stendur erlendum Iangt að baki
eftirHilmiL.
Fjeldsted
Allt frá landnámsöld hefur físk-
verkun verið stunduð á íslandi.
Fyrr á tímum var fískur einkum
þurrkaður og verkaður í skreið eða
saltaður. Á seinni hluta 19. aldar
var farið að salta físk í miklum
mæli með tilkomu þilskipanna. Enn
jókst söltunin með aukinni sókn er
togaramir komu til sögunnar í upp-
hafí þessarar aldar. Á þriðja tugi
aldarinnar fór að gæta áhuga fyrir
frystingu fisks og tók fyrsta hrað-
frystihúsið til starfa í Reykjavík
1930, en það var Sænsk-íslenska
frystihúsið. Árið 1939 voru frysti-
húsin orðin 22 víðsvegar um landið
og tíu árum síðar voru þau 72 tals-
ins. Núna eru frystihúsin hátt á
annað hundrað og hefur framleiðsla
þeirra aldrei verið fjölbreyttari hvað
pakkningar snertir. Þróun full-
vinnslu hefír þó setið á hakanum
og er það miður. Fiskurinn sem hér
á landi er verkaður í dýrum og
vönduðum fiskvinnslustöðvum fer
að mestum hluta til fullvinnslu er-
lendis.
Undanfarin ár hefur færst í vöxt
að fískur sé fluttur óunninn úr landi
og fer obbinn til frekari vinnslu s.s.
söltunar, frystingar og síðast en
ekki síst til vinnsiu tilbúinna físk-
rétta.
Allar upplýsingar sem maður fær
erlendis frá benda til aukinnar físk-
neyslu og aukins áhuga á gæða-
físki. Því hlýtur það að vera okkur
keppikefli að leggja aukna áherslu
á þróun og uppbyggingu tilbúinna
rétta úr sjávarafurðum.
Fiskvinnsla hér á landi hefur
aldrei verið talin til matvælaiðnaður
af hálfu hins opinbera. Það er um-
hugsunarvert að sjálf höfuðgrein
íslenskrar matvælaframleiðslu,
fískvinnslan, skuli ekki teljast til
matvælaiðnaðar. Það segir okkur,
að sú hugsun hjá okkur Islending-
um sé of rík að fískvinnslan sé
aðeins til að bjarga verðmætum
frekar en að auka við verðmæti
hráefnisins, svo unnt verði að ná
markmiðum um betri efnahag sem
nær allir eru sammála um að beri
að stefna að.
Ég hefí undir höndum upplýsing-
ar frá Útflutningsráði íslands um
sænska markaðinn frá 1985. Þar
kemur m.a. fram að fólksfjöldi er
8.358.000 og fjöldi heimila
Hraðlestrarnámskeið
Fyrsta hraðlestrarnámskeið vetrarins hefst 9. september nk.
Námskeiðið hentar vel öllum sem vilja auka lestrarhraða sinn,
hvort heldur er við lestur fagurbókmennta eða námsbóka.
Nemendur HRAÐLESTRARSKÓLANS þrefalda að meðaltali
lestrarhraða sinn, jafnvel með meiri eftirtekt á innihald text-
ans, en þeir hafa áður vanist.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 611096.
Hraðlestrarskólinn
SIEMENS
Siemens Siwamat 640
Fyrirferðarlítil og lipur
topphlaðin þvottavél
h
• Aðeins 67 sm á hæð, á hjólum.
•Yfir 29 þvottakerfi.
•Vinduhraði: 350,700 og 850 sn./mín.
•Tekur4,5 kg eins og venjuleg vél.
Smith og Norland
Nóatúni4,
s. 28300.
4.503.100 sem þýðir að aðeins 1,85
eru að meðaltali á hveiju heimili.
Út af fyrir sig eru þetta ótrúlegar
tölur. Stærð heimilanna skiptist
þannig: Heimili með einum fullorðn-
um eru 2.342.700 eða 52%. Heimili
með einum fullorðnum og bami eða
bömum em 4,5%. Bamlaus heimili
með tveimur fullorðnum eru 24,4%
eða því sem næst fjórðungur. Og
heimili með tveimur fullorðnum og
bami eða bömum eru 19,1% allra
heimila í Svíþjóð.
Það sem sérstaka athygli vekur
er að 76,4% heimila eru bamlaus,
sem gæti bent til þess að Svíþjóð
sé æskilegur markaður fyrir mark-
aðssetningu skyndirétta.
Sænska þjóðfélagsmynstrið er
kannski sérstakt, en mér segir svo
hugur um að svipað sé upp á ten-
ingnum í öðrum löndum Norður-
Evrópu.
í fyrrgreindum upplýsingum Út-
flutningsráðs eru einnig upplýsing-
ar um inn- og útflutning Svía en
þær tölur eru frá 1982. Þar kemur
fram að Svíar flytja inn Iqöt fyrir
345,2 milljónir sænskra króna og
út fyrir 1.018,1 milljónir. Fisk,
krabbadýr og vörur úr þeim fyrir
1.328,7 milljónir króna og út fyrir
489,1 milljónir króna.
Af þessum tölum sjáum við að
Svíar flytja gífurlega mikið inn af
físki og fískmeti og tiltölulega lítið
út. Það sem þeir flytja út er þó að
líkindum fullunnin vara úr þeim
hráefnum sem þeir flytja inn. Við
þekkjum til sfldarverkunar þeirra
þar sem íslenska sfldin er keypt sem
hráefni til fullvinnslu og að hluta
til útflutnings aftur.
Athyglisvert er að útflutningur á
matar- og salthrognum hefur vaxið
um 94% á tímabilinu í magni talið.
Hrognin fara auðvitað beint í full-
vinnslu og síðar til útflutnings að
miklu leyti.
í upphafí máls míns gat ég um
Sænsk-íslenska frystihúsið sem tók
til starfa 1930 í Reykjavík.
Nýlega lásum við í Morgunblað-
inu að hafín er uppsetning rækju-
verksmiðju í Keflavík sem kostuð
er af sænska stórfyrirtækinu
ABBA.
Sagan endurtekur sig. Hvenær
lesum við um sænskt fyrirtæki á
íslandi sem fullvinnur sfldina og
hrognin? Hversu langt er að bíða
eftir sænskri verksmiðju á íslandi
sem framleiðir tilbúna rétti að öðru
Skrúfuloftþjöppur
Þú ert öruggur með
Atlas Copco
FYRIRLIGGJANDI í VERSLUN OKKAR:
Loftþjöppur, lofthamrar, handverkfæri, borstál,
borkrónur, málningarsprautur, sandblásturstæki,
loftstýribúnaður, loftstrokkarog margtfleira.
Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
MtUmCofHn EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Ármúla23 - Sími (91)20680
Hilmir L. Fjeldsted
„Það er okkar að hefj-
ast handa og taka
frumkvæðið í eigin
hendur. Við þurfum
eðlilega hjálp frá því
opinbera eins og gerist
hjá siðmenntuðum þjóð-
um.
Það er okkur til háð-
ungar að hingað til
lands skulu fluttir til-
búnir fiskréttir frá
nágrannalöndum okkar
sem jafnvel eru unnir
úr íslenskum fiski.“
leyti úr íslenskum sjávarafurðum?
Ég hefí á tilfínningunni að ekki
sé langt að bíða eftir þeim tíðindum.
Sænskir tilbúnir réttir eru þegar
seldir hér á landi. Er það heildversl-
un Gunnars Kvaran sem hefur hafíð
innflutning á tilbúnum fískréttum
frá sænska stórfyrirtækinu FIND-
US.
Við höfum séð í sjónvarpsfréttum
að FINDUS kaupir íslenskan gáma-
físk í Bretlandi og er það því vel
við hæfí að selja þennan fisk full-
unninn til íslands á hérlend sjúkra-
hús.
Skyldu þeir ekki hlæja dátt
Svíamir?
íslenskur matvælaiðnaður stend-
ur erlendum langt að baki.
Undantekningar eru þó mjólkur-
iðnaður og sælgætisiðnaðurinn.
Mjólkuriðnaðurinn hefur frá upp-
hafí byggt á erlendri þekkingu.
Upphaflega komu til landsins
danskir mjólkurfræðingar og tóku
að sjálfsögðu upp þau vinnubrögð
sem tíðkuðust í þeirra heimalandi.
Þegar íslendingar hófu nám í þess-
ari grein kom ekki annað til greina
en allir færu utan til náms annað
hvort til Danmerkur eða Noregs.
Er svo enn. Mér hrís hugur við er
stofnaður verður íslenskur skóli
sem á að sjá alfarið um menntun
mjólkurfræðinga. Er ég fullviss um
að þá hefst hnignun í greininni.
Sælgætisiðnaðurinn stóð frammi
fyrir því fyrir all nokkrum árum
að innflutningur erlends sælgætis
var gefínn frjáls. Margir hugðu að
þá yrði íslenskum sælgætisiðnaði
veitt banahöggið. Svo varð aldeilis
ekki. Menn ruku upp til handa og
fóta og lögðust í víking til að kynna
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar
Byrjum aftur eftir sumarfrí. Fjögurra vikna námskeið hefjast 7.
september.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun —-
mæling — sturtur — gufuböð — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.