Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
Sölusýning Sambands ísl. myndlistarmanna:
Áhersla lögð á hagsmunamál
SAMBAND islenskra myndlistar-
maiina heldur myndlistarsýningn
í FÍM salnum, Garðarstræti 6
dagana 3. til 27. september. Þetta
er sölusýning og hafa félagar i
SÍM gefið myndverk til sýningar-
innar og hyggjast með þvi
styrkja samband sitt.
„Samband íslenskra myndlistar-
manna hefur verið að marka stefnu
sína og munum við einbeita okkur
að hagsmunamálum mjmdlistar-
manna,“ sagði Guðný Magnúsdóttir
formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna. „Fagleg umræða
um listir fer fram í aðildarfélögun-
um en sambandið er að he§a
baráttu fyrir málum eins og höfund-
arrétti listamanna, sem oft er óljós,
og lífeyrissjóði listamanna."
Sambandið hefur opnað skrif-
stofu og ráðið lögfræðing til að
vinna að málefnum þess. Islenskir
listamenn eru aðilar að Sambandi
Norrænna myndlistarmanna sem
rekur gesta vinnustofur fyrir lista-
menn víða um Norðurlönd. Ein slík
stofa er í Hafnarfírði en sambandið
vonast til að fleiri vinnustofum verði
komið upp hér á landi. „Allt er
þetta óhemju mikil vinna og fjárfrek
sem að mestu er unnin í sjálfboða-
vinnu af félagsmönnum. Það er því
von okkar að sýningin bæti okkar
hag og til að tryggja það, er verð
myndverkanna haldið í lágmarki,"
sagði Guðný.
Eftirtaldir listamenn eru meðal
þeirra sem eiga myndverk á sýning-
unni: Hringur Jóhannesson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Borghildur
Óskarsdóttir, Ágúst Petersen, Ásta
Ólafsdóttir, Jón Reykdal, Jóhanna
Bogadóttir, Guttormur Jónsson,
Björg Þorsteinsdóttir og Guðbergur
Auðunsson.
Félag fsl. myndlistarmanna, ís-
lensk Grafík, Textílfélagið, Mynd-
höggvarafélagið í Reykjavík,
Leirlistarfélagið og Listafélagið
Grýta eru aðilar að Sambandi
fslenskra mjmdlistarmanna.
Morgunblaðið/Bjami
Frá vinstri Guðný Magnúsdóttir formaður SÍM, Kolbrún Björgólfs-
dóttir með Elsu Björg Magnúsdóttur, Eyjólfur Einarsson, Daði
Guðbjörnsson og fyrir framan, þær Anna Þóra Karlsdóttir og Sóley
Eiríksdóttir.
VGRCLD! N 'S7
SR-2 TEKUR12FARÞEGAISÆTI
VERCLD! N B7
innan veggja
LAUGARDALSHÖLL
ÆVINTYRALEGAR
FERÐIR
SR-2TÆKIÐERÁ
SÝNINGUNNI
VERÖLDIN87
Þetta tæki, SR-2 er í raun miklu meira
en flughermir. Þú flýgur um himin-
geiminn, brunaráfram í rússíbana,
þýtur niður snarbrattar fjallshlíðar,
flýgur orrustuþotu á ofsahraða, en
ert alltaf á sama stað.
STÓRSÝNING
FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA.
Opið: Virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22.