Morgunblaðið - 03.09.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
Finnland:
Norrænir ráðherr-
ar funda í Helsinki
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd til umræðu
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
FUNDUR utanríkisráðherra
Norðurlanda hófst á þriðjudag i
Helsinki. Ráðherramir munu
m.a. ræða stöðu mála með tilliti
til þess að Norðurlönd verði lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Skýrsla embættismannanefndar-
innar sem skipuð var eftir fund
ráðherranna í Reykjavík í vor hefur
verið lögð fram munnlega en engar
Morgunblaðsins.
ákvarðanir hafa verið teknar um
beinan framgang málsins.
Ráðherramir voru sammála um
að hægt hefði miðað og að svo
myndi verða áfram. Þó svo hlut-
lausu ríkin tvö Finnland og Svíþjóð
væru tilbúin til að hraða undirbún-
ingsvinnu yrði að taka tillit til þess
að NATO-ríkin þrjú, ísland, Noreg-
ur og Danmörk gætu ekki upp á
Flotaæfingar NATO:
Spænskar her-
sveitir þjálfaðar
Brtissel, Reuter.
HERSVEITIR frá Spáni taka í
fyrsta skipti þátt í umfangsm-
iklum flotaæfingum Atlants-
hafsbandalagsins er nú fara
fram á Noregshafi. Að sögn
Roys Breivik aðstoðarflotafor-
ingja lúta spænsku sveitirnar
stjórn spænskra herforingja.
Æfíngamar hófust á þriðjudag
og bera kenniheitið „Ocean Safa-
ri. Æfingar sem þessar fara
tvívegis fram á ári hveiju.
Spánveijar samþykktu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu árið 1986 að eiga
áfram aðild að Atlantshafsbanda-
laginu hins vegar hefur verið deilt
um hvert eigi að vera hlutverk
sveita þeirra innan bandalagsins.
Þeir sem gagnrýna aðildina að
NATO hafa fullyrt að verið sé að
þrýsta Spánveijum til hemaðar-
samstarfs á vegum bandalagsins
en um það var ekki kosið í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni.
Að sögn Roys Breivik óskuðu
stjómvöld á Spáni eftir því að
spænskar hersveitir yrðu þjálfaðar
með sveitum annarra aðildarríkja.
sitt eindæmi markað stefnu sem
væri algjörlega andstæð sjónarmið-
um Atlantshafsbandalagsins.
Ákveðið var að embættismanna-
nefndin héldi áfram að vinna að
málinu og mun hún skila af sér
skýrslu á næsta fundi utanríkisráð-
herranna sem fram fer í Osló í
mars á næsta ári. Utanríkisráð-
herrar Norðurlanda koma saman
tvisvar á ári og var síðasti fundur
haldinn í Reykjavík í vor.
Áður en fundurinn hófst á þriðju-
dag var búist við að Sten Anderson,
utanríkisráðherra Svíþjóðar, myndi
hvetja hina fulltrúana til að sýna
meiri hörku gagnvart yfírvöldum í
Frakklandi vegna þeirrar ákvörðun-
ar að krefja íbúa þeirra landa sem
standa utan Evrópubandalagsins
um vegabréfsáritanir til Frakk-
lands. Anderson stakk nýlega upp
á því í sænskum fjölmiðlum að Svíar
krefðust þess að fundarstaður Evr-
ópuráðsins yrði fluttur frá Stras-
borg þar til fulltrúar Norðurlanda
gætu mætt á fundi ráðsins án þess
að afla sér vegabréfsáritunar. Mál
þetta var ekki tekið til formlegrar
meðferðar _á fundi utanríkisráð-
herranna. í viðræðum kom hins
vegar fram að menn voru sammála
um að einungis vel undirbúin rök
kæmu að notum ef takast ætti að
fá Frakka til að breyta afstöðu sinni
og að lítt stoðaði að hafa í frammi
hótanir.
Reuter
Frelsinu fegnir
Nokkrir fangelsisstarfsmannanna, sem haldið var í gíslingu á eyjunni
Elbu, skála í kampavíni við ættingja sína eftir að þeim var sleppt í
fyrradag. Gíslamir fyrrverandi sögðu að ekki hefði verið farið illa
með þá, en þeir hefðu óttast allan tímann að öryggissveitir myndu
ráðast inn í fangelsið og að fangamir, sem héldu þeim í gíslingu,
myrtu þá. Reyndar munu samskipti vígamannanna og gíslanna hafa
batnað eftir því sem á leið. „Þegar öllu var lokið, tókumst við öll í
hendur," sagði fangelsissálfræðingurinn, Carlo Antonelli.
Tyrknesk stjórnvöld
viðurkenna pyntingar
London, Reuter
PYNTINGAR viðgangast enn í
Tyrklandi að sögn mannréttinda-
hóps alþjóðasamtakanna Am-
nesty. Þetta kemur fram í
fréttabréfi samtakanna sem gef-
ið er út mánaðarlega.
Tyrknesk stjómvöld hafa viður-
kennt að pyntingar eigi sér stað en
aðeins í sérstökum tilvikum. í
fréttabréfínu segir að samtökin
hafi fengið hundruð ábendinga um
pyntingar á áttunda áratugnum en
síðan hafí dregið úr þeim þar til
eftir valdatöku herstjómarinnar í
september 1980. Borgaraleg stjóm
hefur verið við völd síðan 1983.
Alþjóðasamtökin Amnesty hafa
sent tyrkneskum yfírvöldum nöfn
yfír hundrað manns sem vitað er
að hafa látist í varðhaldi. Svör hafa
borist frá stjómvöldum um 82 þess-
ara manna og hafa í flestum tilvik-
um verið ófullnægjandi að mati
samtakanna.
TEYGJUFl OGÞFEK W GÓÐARAÐSTÆÐUR
MEÐ VBURKENNDUMKENNURUM
KOMA ÞÉRÍFlNTFORM
Á SKEMMRLEGAN HÁTT
Haustnámskeiðin hefjast 14. september. - Fjörugar hópæfingar (og núna sérstakir hjónatímar)
fyrir hresst fólk á öllum aldri, morgun, kvölds og um miðjan dag.
BARNAGÆSLA
Minnum á leikhomið okkar og einnig er gæsluvöllur við Gullteig,opinn kl. 9:30-12 og 13:30-17.
Innritun er hafin í símum 687801 og 687701 frá kl. 10-19 alla daga nema sunnudaga.