Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
6LACK
NEMENDUR! HINGAÐ OG EKKI LENGRA.
HITTIST Á „SKEMWITISTAÐ" SKÓLAFÓLKS í SÍÐUMÚLA.
ir
g
Æ
. -p~-1 \
■ - <Í,\X .'(■
Mál IMIog menning
Ritföng.
Síðumúla7-9.Sími 68 9519.
SKÓLABÆKURNAR
SKÓLATÖSKURNAR
RITFÖNGIN
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í góðri bók stendur:
— Eptirþví sem gamlir fuglar súngu
kvökuðu þeir úngu. —
Þessum sannmælum er fylgt úr
hlaði með rétti sem ætlaður er
íslenskum karlmönnum — þessum
elskum — sem fundið hafa það upp
hjá sjálfum sér að hvíla sína heitt
elskuðu frá eldstónni kvöldstund og
elda sjálfir. Rétturinn getur ekki
mistekist svo auðveldur er hann. En
ef læðist að mönnum vanmat á eig-
in hæfni, þá má hafa hugfast
gullkom úr hinni góðu bók, en þar
segir:
— Flest étur svángur prestur og
soltinn djákni. —
Rétturinn er hinn þjóðlegasti,
hann nefnist stutt og laggott
„Lati Geir“
2 matsk. matarolía
1 stór laukur
1—2 hvítlauksrif
400 gr lambahakk
1 rauð paprika
1 græn paprika
2 dósir tómatkraftur 70 gr.
og 4 dósir (sömu) af vatni
2 teningar kjötkraftur
salt og malaður pipar
1. Laukurinn er skorinn niður
fremur smátt, hvítlaukurinn (1 stórt
rif eða 2 Iítil) er skorinn smátt eða
pressaður í hvítlaukspressu. Paprik-
umar eru skolaðar vel og þerraður,
þær eru skomar í sundur og eru fræ
og hvítar himnur fjarlægðar. Paprik-
umar em síðan skomar í litla bita.
2. Matarolían er hituð á pönnu
og er niðurskorinn laukur, hvítlauk-
ur og hakkað kjötið steikt við meðal
hita á meðan kjötið er að losna í
sundur. Paprikubitunum er bætt út
í kjötið í steikingu svo og tómat-
krafti, vatni, kjötkrafti, salti (1—2
tsk. eða eftir smekk) og möluðum
pipar.
3. Kjöt og grænmeti er síðan soð-
ið saman við fremur vægan hita,
annað hvort í pönnu með loki eða í
lokuðum potti, í 20 mínútur. Hrært
er í öðm hvom á suðutíma. f lok
suðutíma á kjötrétturinn að hafa
fengið þykknun af tómatkraftinum
og bragðið jafnast.
„Lata Geir“ má bera fram með
þvf að setja 2—3 matsk. á brauð-
sneið. Það má bera hann fram sem
spagettisósu og það má hafa hann
í pizzafyllingu.
Rétt sem þennan má einnig
geyma í frysti. Hann má útbúa í
stærri skammti og setja í hæfilega
stórar umbúðir og frysta til notkun-
ar síðan.
Verð á hráefni:
Lambahakk
400 gr ......... kr. 120,00
1 laukur ....... kr. 7,00
1 græn paprika .... kr. 48,30
1 rauð paprika . kr. 52,50
2 dós tómatkr... kr. 20,20
Kr. 248.00
A
Wterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!