Morgunblaðið - 03.09.1987, Side 68
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
F/l/A T
^SUZUKI
ptorgttttMiiMfr
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Bandaríkjastjórn;
Þjóðarörygg-
isráðið fundar
um hvalamál
Þjóðaröryggisráð Banda-
ríkjanna hefur tekið þátt í
viðræðum við íslendinga um
hvalamálið og fulltrúar þess fund-
uðu á þriðjudag með fulltrúum
annara ráðuneyta Bandaríkja-
stjórnar eftir að ákvörðun
fslensku rfldsstjórnarinnar um
áframhald hvalveiða i visinda-
skyni var gerð opinber. Stein-
grimur Hermannsson utanrflds-
ráðherra staðfesti þetta við
Morgunblaðið og sagði þetta sýna
mjög eindregið hve bandaríkja-
stjóm telur þetta mál mikilvægt
utanríkismál.
Steingrímur sagði að fjallað hefði
verið mjög ýtarlega um þetta mál í
utanríkisráðuneytinu bandaríska.
Það hefði þó ekki gefíð íslendingum
neina formlega eða óformlega stað-
festingu á að ekki yrði jgripið til
viðskiptaþvingana gegn Islending-
um en viðbrögðin við ákvörðun
íslensku stjómarinnar, að draga úr
vísindaveiðunum, hefðu verið já-
kvæð.
Afleiðingar þurrká-
sumarsins:
Vatnsból víða
uppþornuð í
Borgarfirði
Grund, Skorradal.
ÓVENJU þurrviðrasamt hefur
verið um vestanvert landið i sum-
ar og eru nú viða þrotið vatn i
vatnsbólum á bæjum. Til dæmis
er þetta i fyrsta skipti síðan 1928
að vatnsból á Fitjum í Skorradal
þornar, að sögn Stefáns Stefáns-
sonar fyrrverandi bónda þar.
Morgunblaðið/Einar Hólm
'%^'Séí
YFIR 50 TONNA HAL
Stálvík SI var við veiðar í Reykjafjarðarál nýverið og var þessi Hólm, sá ástæðu til að festa það á fílmu. Skipstjóri í þessum
mynd tekin þegar trollið var dregið inn eftir vel heppnað tog. túr var Sigurður Helgi Sigurðsson.
Reyndist þetta vera yfír 50 tonna hal og yfírvélstjórinn, Einar
Tilboðsgjafar ræða sameigin-
leg kaup á Utvegsbankanum
Úrkomumælingar eru við Anda-
kflsárvirkjun og er mánaðarúrkom-
an í ágúst einungis 25,9 mm, í júlí
45,1 mm og í júní 9,1 eða alls 80,1
mm þessa þrjá mánuði, og er það
aðeins brot af meðalúrkomu.
— Davíð
Hugsanlegt að allir bankar nema Landsbankinn komi inn í myndma
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra tilkynnti í gær að tilboðs-
gjafarnir i hlutabréf rikisins i
Utvegsbankanum hefðu sam-
þykkt að taka þátt i viðræðum
Sigri fagnað
íslendingar sigruðu Austur-Þjóðveija í undankeppni Ólympíuleikanna
á Laugardalsvelli í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn engu. Guð-
mundur Torfason og Ólafur Þórðarson skoruðu mörk Islands í síðarí
hálfleik. íslenska liðið lék vel og þeir sjást hér fagna að leikslokum
og klappa áhorfendum lof í lófa fyrir stuðninginn.
Sjá umfjöllun á íþróttasíðum 45 og 47.
um hugsanlegt samkomulag
þeirra i milli. Auk þess er gert
ráð fyrir að fleiri geti komið
síðar inn i þessar viðræður og
er þar átt við starfsmenn og við-
skiptamenn bankans og spari-
sjóði sem lýst hafa yfir áhuga á
kaupum á hlutafé Útvegsbank-
ans. Viðræðumar munu einnig
snúast um endurskipulagningu
bankakerfisins og er hugsanlegt
að allir bankarnir nema Lands-
bankinn komi inn í þessar
viðræður. Sett eru tímamörk til
septemberloka en ef viðræðurn-
ar hafi ekki borið árangur
verður leitað annarra leiða til
lausnar málsins.
Fyrsti fundur Sambands
íslenskra samvinnufélaga og hóps
33 aðila verður klukkan 16 í dag
í viðskiptaráðuneytinu. Báðir þessir
aðilar, sem hafa gert tilboð í hluta-
fé ríkisins í Útvegsbankanum hf.,
samþykktu þátttöku í viðræðunum
eftir að viðskiptaráðherra hafði
farið þess á leit. Samvinnuhreyf-
ingin setti 4 forsendur og skilyrði
fyrir þátttöku sinni og tekur þar
m.a. fram að sú afstaða að hún
hafl þegar fest kaup á hlutafénu í
Útvegsbankanum sé óbreytt. Valur
Amþórsson stjómarformaður Sam-
bandsins sagði þó í gær að æskilegt
væri að menn leituðu leiða til að
leysa þann hnút sem málið væri
komið í og að fundin verði leið í
þessum viðræðum sem gæti verið
nothæfur samningsgrundvöllur
milli þessara aðila. Kristján Ragn-
arsson talsmaður aðilanna 33 sagði
að hópurinn væri fús að ræða þetta
mál án skilyrða eða forsenda.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði á fréttamannafundi í
gær að með þessum viðræðum
væri verið að leita að farsælli lausn
á málinu sem góður friður geti tek-
ist um bæði á stjómmálasviðinu
og viðskiptasviðinu. Hinsvegar
réðu viðskiptahagsmunir mestu og
ekki væri aðeins um að ræða að
áðurgreindir aðilar næðu saman
heldur þyrfti að tryggja hagsmuni
almennings, ríkissjóðs og viðskipta-
manna bankans.
Viðskiptaráðherra sagði einnig
að hann skildi undirtektir tilboðs-
gjafa þannig að þeir væm reiðu-
búnir að ræða sameiningu
Útvegsbankans og annarra lána-
stofnana. Hann sagði aðspurður
að ef Búnaðarbankinn yrði til sölu
væri hugsanlegt að þessir aðilar,
eða fleiri, kaupi saman bæði Út-
vegs- og Búnaðarbankann.
Sjá nánar viðtöl við Kristján
Ragnarsson og Val Arnþórs-
son á bls. 4.
Norska fyrirtækið Dyno Industríer:
Leitar eignarhluts í
íslenskum plastidnaði
FULLTRÚAR norska stórfyrirtækisins Dyno Industrier hafa óskað
eftir viðræðum við a.m.k. tvö íslensk fyrirtæki, sem hafa sérhæft
sig í framleiðslu f plastvörum til sjávarútvegs, um samstarf eða
jafnvel hugsanlega eignaraðild. Fyrirtæki þessi eru Plasteinangrun
hf. á Akureyri og Sæplast hf. á Dalvík.
Dyno Industrier er stórt fyrir-
tæki sem er í meirihlutaeign Norsk
Hydro. Jón Sigurðarson stjómar-
formaður Plasteinangrunar hf.
staðfesti það við Morgunblaðið að
fulltrúar fyrirtækisins hefðu leitað
eftir samstarfí við Plasteinangrun.
Jón sagði að fyrirhugað væri að
eiga fund með forráðamönnum
Djmo Industrier f þessum mánuði
til að ræða þessi mál frekar.
Pétur Reimarsson fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf. stað-
festi einnig að fulltrúar norska
fyrirtækisins hefðu óskað eftir
samvinnu og hugsanlegri eignar-
aðild að Sæplasti en engin afstaða
hefði verið tekin til þeirra óska af
hálfu Sæplasts.