Morgunblaðið - 15.09.1987, Side 52
J52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
Stjörau-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Drekahöfuð
Þeir sem eiga stjömutöflur
hafa tekið eftir því að í reitn-
um á eftir tunglinu er tákn
sem líkja má við heymartól.
Þetta er drekahöfuðið svokall-
aða. Gegnt því, í 180 gráðu
fjarlægð, er síðan hali drek-
ans. A ensku er þetta kallað
Moons nodes, eða Dragons
Head og Dragons tail.
Skurðbraut
Stjamfræðiiega er Drekahöf-
uðið og halinn þeir punktur
þar sem braut Tunglsins sker
braut Sólarinnar. Höfuðið er
þar sem Tunglið fer norður
og uppfyrir sóiarbrautina en
halinn þar sem Tunglið sker
brautina á leið í suður og nið-
ur fyrir hana.
Gefandi útrás
Persónulega nota ég þessa
punkta lítið sem ekkert. Ég
get þó nefnt nokkrar möguleg-
ar túlkanir. Drekahöfuðið er
sagt vísa á gefandi athafnir,
vera nokkurs konar stefnu-
miðun fyrir jákvæðar athafnir
í þessu lífi. Drekahaiinn er
aftur á móti sagður tengst
fortíðinni, eða einhveiju sem
við gerðum áður, eða í fyrra
lífi. Framtíð og fortíð.
Sálarhjúpur
Aðrir segja að Drekahöfuðið
sé það sama fyrir Tunglið og
Rísandinn sé fyrir Sólina.
Hugsanlega er Drekahöfuðið
því framkoma og ytri hjúpur
sálarinnar.
. Söfnun og eyðing
Dane Rudhyar segir að Dreka-
höfuðið sé punktur jákvæðrar
heildunar, punktur aðsöfnunar
en halinn sé punktur upp-
lausnar og eyðingar, ekki
endilega þó í neikvæðri merk-
ingu.
Tengsl við
heildina
Ruhyar segir einnig í sam-
bandi við þessar punkta, en
þeir em til fyrir allar plánet-
ur, ekki einungis Tunglið, að
Sólin sé það afl sem sameini
allt í sól'terfinu, en skurð-
punktar plánetubrauta við
sólarbrautina sýni tengsl plá-
netana við heildina og það
hvar hver pláneta fái útrás
fyrir orku sína.
Dœmi
Þetta gæti þýtt að ef ákveðinn
maður hefur Drekahöfuð í
Steingeit getur hann fengið
jákvæða útrás fyrir tilfinning-
ar í gegnum það að aga tilfínn-
ingamar og setja þær í
ákveðið form. Það að Dreka-
halinn er í Krabba táknar
síðan að það er gert á kostnað
tilfínningalegs innileika.
Kannski má segja að viðkom-
andi fái tilfinningaútrás í
gegnum þjóðfélagsathafnir á
kostnað heimilis og tilfinn-
ingalegs innileika? Að Stein-
geitin sé framtíðin en
Krabbinn fortíðin?
Samskipti
Robert Hand segir að þessir
punktar hafí með samskipti
að gera. Að höfuðið tengist
því að sameinast fólki en hal-
inn því að skilja við fólk. Hann
segist hafa orðið var við mik-
inn félagslegan umgang þegar
aðrar plánetur mynda afstöð-
ur við þessa punkta. Hann
hefur einnig tekið eftir því
þegar Drekahöfuðið sé sterkt
milli tveggja korta verði sam-
bandið uppbyggilegt en nið-
urrífandi þegar Drekahalinn
sé mikið tengdur. Það að uppi
eru skiptar skoðanir í sam-
bandi við þessa punkta og að
sumir stjömuspekingar nota
þá ekki gefur til kynna að
þeir séu ekki jafn sterkir og
aðrir þættir í kortinu. Þeir
_ ættu samt sem áður að vera
verðir rannsóknar.
GARPUR
PA& ER | RAUNINNl L.ITIP
ryRiR gretti haft
J?M í,AV?& i-1
(KE.TTIR ERUSi/OHI?EINL'ATlR.. )
\ ALLTAF AP SLBMCJA OG FVO /
FOTA-
POPRlP
SVO Vip LkSöi
DR &ILUN
wmiHiiiiiniiiiiii.iiiiniMumnnniiniiinnM
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
DRATTHAGI BLYANTURINN
FERDINAND
SMAFOLK
'THAT MAY NEEP A
LITTLE WORK.. J
Nei, þið takið ykkur vel Ég er stórhrifin.
út saman!
Lofið mér að sjá eins og Það þarf víst að æfa þetta
eina lyftu.
atriði betur...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
ísland græddi 11 IMPa_ á
harðri slemmu sem Ásgeir Ás-
bjömsson og Aðalsteinn Jörg-
ensen sögðu í leiknum á móti
Austurríkismönnum á EM.
Leiknum lyktaði með jafntefli,
15-15.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ G9642
V7
♦ 102
♦ K7654
Vestur Austur
♦ - .. +103
VÁK9542 lllll ¥D1087
♦ 9753 ♦ KDG8
+ G108 +D93
Suður
♦ ÁKD875
V63
♦ Á64
♦ Á2
Ásgeir og Aðalsteinn voru í
NS gegn Kriftner og Feichting-
er.
Vestur Norður Austur Suður
Feicht. Ásgeir Kriftner Aðalst.
— — — 1 lauf
2hjörtu Pass 4 hjörtu 4 spaðar
Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Hörku sagnir, en kannski var
það fyrst o g fremst fyrir hindrun
Austurríkismanna, sem slemm-
an var sögð. Eina vinningsvonin
í spilinu var að laufið félli 3-3.
Sem þau gerðu.
Á hinu borðinu vom Guðlaug-
ur R. Jóhannsson og Öm
Amþórsson rólegri í tíðinni gegn
Kubak og Fucik:
yestur Norður Austur Suður
Öm Kubak Guðl. Fucik
— — — 1 lauf
2 hjörtu Pass 3 tíglar 3 spaðar
Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass •
Norður fékk tækifæri til að
reyna við slemmu á fjórða sagn-
þrepi, en Fucik taldi of mikið
vanta í spilið og lét geimið duga.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á brezka meistaramótinu í ár
kom þessi staða upp í skák Craw-
ley og enska stórmeistarans
Plaskett, sem hafði svart og átti
leik.
30. — Dxh4! (Vinnur lið, því hvítur
verður hrók undir eftir 31. Hxh4?
— Bxf3+) 31. Bxb7 — Dxh3, 32.
Rb6 - Bxh2, 33. Dg3 - De3,
34. Rd7+ - Ke7, 35. Dg7 -
Del+, 36. Kg2 — De2+ og hvítur
gafst upp. Nigel Short sigraði með
yfirburðum á mótinu.