Morgunblaðið - 15.10.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
Árlegar við-
skiptavið-
ræður við
Sovétmenn
FULLTRÚAR íslenskra síjórn-
valda og ýmissa fyrirtœkja halda
á næstunni til Moskvu til árlegra
viðræðna við Sovétmenn um við-
skipti landanna. Með í ferð eru
fulltrúar Síldarútvegsnefndar og
er búist við að fyrirframsala síldar
verði sérstaklega rædd í ferðinni,
einnig sala ullarvarnings.
Valgeir Ársælsson sendifulltrúi er
formaður nefndarinnar. Einnig eru í
nefndinni Bjöm Tryggvason aðstoð-
arbankastjóri Seðlabankans og Jón
Ögmundur Þormóðsson deildarstjóri
í viðskiptaráðuneytinu. Þá eru í
nefndinni fulltrúar frá Síldarútvegs-
nefnd, Sölumiðstöð hraðfrystihú-
sanna, Sambandi íslenskra
samvinnufélaga, Álafossi hf., Sölu-
stofnun lagmetis, Verslunarráði
fslands, Félagi íslenskra iðnrekenda
og Bifreiðum- og landbúnaðarvélum.
Hinar formlegu viðskiptaviðræður
verða 26. — 29. þessa mánaðar.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Starfsmenn Nathan og Olsen hf. við Breiðholtskjör eftir að hafa
fjarlægt birgðir af Cheerios-pökkum úr versluninni i gær. Frá
vinstri: Svavar Geirfinnsson, Orvell Utley og Þorsteinn Gunnars-
son sölustjóri, sem heldur á einum boltanum.
Cheerios-pakk-
arnir fjarlægð-
ir úr verslunum
ALLAR birgðir af Cheerios-pökkum, sem innihalda litla bolta,
voru fjarlægðar úr verslunum á Stór-Reykjavíkursvæðinu í
gær. Eins og komið hefur fram i fréttum kafnaði smábarn í
Bandaríkjunum eftir að hafa gleypt slíkan bolta. Það voru
starfsmenn fyrirtækisins Nathan og Olsen hf., sem flytur inn
Cheerios, sem sáu um að fjarlægja pakkana af markaðnum,
en ákvörðun um það var tekin eftir fund innflytjandans og
Hollustuvemdar rikisins á þriðjudaginn.
Sölumenn Nathan og Olsen verslunum áðumefnda pakka enn
hringdu í gær í allar verslanir sem
selja Cheerios-kom og tilkynntu
um að verið væri að innkalla vör-
una. Síðan fóru starfsmenn fyrir-
tækisins í verslanir sem enn höfðu
pakkana til sölu og fjarlægðu þá.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar,
sölustjóra hjá Nathan og Olsen
hf., höfðu u.þ.b. 5 af hveijum 10
til ^sölu.
í dag verða allir Cheerios-
pakkar með boltum íjarlægðir úr
verslunum utan höfuðborgar-
svæðisins. Þorsteinn sagði að mun
færri verslanir úti á landi seldu
stóra Cheerios-pakka, en boltar
fylgdu ekki með í kaupunum í litlu
pökkunum.
VEÐUR
Marteinn Jónasson
VEÐURHORFUR í DAG, 15.10.87
| YFIRUT á hádegl f g»r: AII mlkll lœgö við Skotland fer norður
mllli (slands og Noregs en hæð yfir Grænlandi.
SPA: Auatan og norðaustanátt um land allt, viða stinningskaldi eða
allhva8st. Yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi, en annars skúrir.
i Hlti 2 til 7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Norðaustlæg átt og fremur
svalt í veörl. Skúrir vtða austanlands, él norðvestanlands en þurrt
og bjart veður á Suðvesturlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
a
■Qk
Á
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
S Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r r
r r r f Rigning
r r r
* r *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * #
^ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
— Þokumóða
’, > Súld
OO Mistur
Skafrenningur
|T Þrumuveður
xn. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl v.ður Akureyri 0 «njó4l Raykjavfk 0 anjókoma
Bergen 11 úrkomafásfð.
kl.
Helsínkl 8 léttskýjaö
Jan Mayan + 1 skýjað
Kaupmannah. 11 akýjað
Narssarssuaq + 3 ský|að
Nuuk +1 heiðskfrt
Osló 8 rigning
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn 8 skúráslö.kl.
Algarve 18 akýjað
Amstardam 12 léttskýjað
Aþena 24 léttskýjaö
Barcelona 21 skýjað
Bariín 14 akýjað
Chicago 7 skýjað
Feneyjar 16 skýjað
Frankfurt 13 skýjað
Qlatgow 10 skúr
Hamborg 12 hálfskýjað
Las Palmas 2S léttskýjað
London 12 skýjað
LosAngeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 10 skúrir
Madrfd 17 skýjað
Malaga 23 skýjað
Mallorca 23 skýjað
Montraal 3 léttskýjað
NewYork vantar
Parfs 13 skúrir
Róm 23 léttskýjað
Vfn 16 léttskýjað
Washlngton 6 helðskfrt
Winnlpag 0 halðskfrt
fv. skipstfórí látínn
Marteinn Jonasson fyrrverandi
skipstjóri og framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur lést
í fyrrinótt 71 árs að aldri.
Marteinn Jónasson fæddist 28.
september 1916 á Flateyri við
Önundarfjörð. Foreldrar hans
vom Jónas Hallgrímur Guð-
mundsson skipstjóri þar og kona
hans María Jónasína Þorbjamar-
dóttir. Marteinn lauk unglinga-
prófí 1932 og mótorvélstjóraprófí
árið 1933. Hann tók fiskimanna-
próf hið meira frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1939.
Marteinn var skipstjóri á togur-
um á árunum 1943 til 1962, en
árið 1964 tók hann við starfi fram-
kvæmdastjóra Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. Hann sat í stjóm
Hafrannsóknastofnunarinnar ffá
1965.
Fyrri kona Marteins var Agla
Þórunn Egilsdóttir, en hún lést
árið 1959. Seinni kona hans var
Helga Guðnadóttir. Hún lést árið
1979.
Marteinn Jónasson.
Marteinn lætur eftir sig tvær
dætur og eina stjúpdóttur.
Ur umferðinni í Reykjavík
þriðjudaginn 13. október 1987
Árekstrar bifreiða: 11.
Samtals 62 kærur fyrir umferðarlagabrot á þriðjudag.
Af hraðamælingum segir í skýrslum að ökumaður hafí verið kærður
fyrir að aka austur Skógarhlfð með 100 km/klst hraða laust eftir
miðnætti í myrkri, slyddu og á blautum vegi.
Ökumenn voru kærðir fyrir að aka með 93 og 96 km/klst hraða um
Ártúnsbrekku. Um Miklubraut með 90 km/klst hraða og 85 km/klst
hraða um Sætún.
Klippt voru númer af 14 ökutækjum fyrir vanrækslu á að færa til
aðalskoðunar.
Skyndiskoðun leiddi til þess að 16 ökumenn voru kærðir fyrir að aka
bifreiðum f slæmu ásigkomulagi. Klippt voru númer af 4 ökutækjum
en 12 var veittur frestur til lagfæringa.
Kranabifreið fjarlægði 9 bifreiðir vegna ólöglegrar og slæmrar stöðu.
í þriðjudagsumferðinni náðust 2 réttindalausir ökumenn og 1 ökumað-
ur var grunaður um ölvun.
Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.