Morgunblaðið - 15.10.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 15.10.1987, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987 Ólafsfjarðarhöfn: Skemmdimar nema hundmðum þúsunda Siglfirskar konur styðja aknreyrskar YFIR 800 undirsknftir hafa safnast til stuðnings ráðningar kvenmanns í 60% stöðu kvensjúk- dómafræðings við heilsugæsluna á Akureyri sem jafnframt hefði aðgang að Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Konurnar munu af- henda Guðmundi Bjarnasyni heilbrigðisráðherra undir- skriftalistana eftir næstu helgi, en á þein er skorað er á yfirvöld að ráða konu í auglýst starf sér- fræðings. Aðalheiður Alfreðsdóttir, form- aður jafnréttisnefndar Akureyrar, sagði í samtali við Morgunblaðið að henni hefði borist ánægjulegt bréf frá Siglufirði í vikunni sem undirritað væri af 47 konum þar í bæ. Bréfið hljóðar svo: „Við undirritaðar, sem búum á Siglufirði, höfum fylgst með að- gerðum ykkar varðandi starf kvensjúkdómalæknis á Akureyri. Okkur langar til að taka þátt í þess- ari herferð með ykkur svo við hleyptum af stað undirskriftasöfn- un meðal vinnufélaga ogkvenna, sem við erum kunnugar. Arangur- inn er á meðfylgjandi blöðum sem við vonum að unnt sé að nota til stuðnings ykkar sjónarmiðum." Aðalheiður sagði að búast mætti við að undirskriftimar yrðu mun fleiri, því ennþá er verið að safna undirskriftum á Akureyri. Þá hefur jafnréttisnefnd ritað stjómum heil- sugæslunnar og FSA bréf, þar sem farið er fram á að þær taki áskorun- ina til umfjöllunar. Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Forseti bæjarstjórnar, Birna Friðgeirsdóttir, virðir fyrir sér landbrot eftir brimið. Kartöflubændur: Krefjast innfiutnings banns á kartöflur — segirbæjar- tæknifræðingur Ólafsfjarðar TÖLUVERÐAR skemmdir urðu á gijótvarnargarði við Vestur- höfn á Ólafsfirði í illviðrinu sem gekk yfir Norðurland um helg- ina. Skarð hefur myndast í garðinn og lentu menn í erfið- leikum með báta sina og skip. Einnig urðu nokkrar skemmdir á bryggjum við Norðurgarð og í innsiglingaropi í Vesturhöfn- ina. Baldur Einarsson, bæjartækni- fræðingur á Ólafsfírði, sagði að von væri á fulltrúum frá Hafnarmála- stofnun til að meta skemmdimar, en sér sýndist þær vera upp á hundruð þúsunda. Baldur sagði að gerðar hefðu verið endurbætur á höfninni fyrir nokkrum árum, en eftir hefði verið að ganga frá inn- siglingunni í Vesturhöfnina. Keyrður var út garður í Vestur- höfnina og mynduð höfn. Gert var síðan op í eldri trégarð, sem fyrir var, til að mynda innsiglinguna, en hinsvegar var aldrei gengið frá honum sökum fj'árskorts. Áætlaður kostnaður við fráganginn nam 10 til 15 milljónum króna, að sögn Baldurs. Höfnin í Ólafsfírði var dýpkuð í sumar og nam kostnaður 12 millj- ónum króna. Nú standa yfir framkvæmdir á vegum OLÍS á Ól- afsfirði í um 300 metra fjarlægð fyrir utan höfnina. Fyrirtækið er að reisa nýja olíutanka og sökum þeirra framkvæmda hefur nokkur moldarfylling borist inn í höfnina. Baldur sagði það hinsvegar ekki áhyggjuefni með tilliti til hafnarinn- ar. Skarð í vamargarð í Vesturhöfn. r Fjórðungsmót hestamanna '87 Myndband Myndbandið af F.M. '87 á Melgerðismelum er til- búið til dreifingar. Lengd 2 klst. og 20 mín. Verð kr. 1.800,- Spólan er til sölu hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar ásamt dómum og mótsskrá. Tekið verður við pöntunum í síma 24477 f.h. og 27384 á kvöldin. PÓSTSENDUM UM LAND ALLT. Framkvæmdaráð. Akureyri óskar eftir fólki á öllum aldri til að bera út Morgunblaðið strax og það kemur íbæinn. „Hressandi morgunganga" Hafið samband! 2Horc)iml»InÍ»íÍ> Hafnarstræti 85, Akureyri, sími 23905. og ríkisaðstoðar vegna hugsanlegs útf lutnings LANDSSAMBAND kartöflu- bænda hefur sent landbúnaðar- ráðuneytinu bréf þar sem farið er fram á að kartöfluinnflutning- ur verði stöðvaður. „Við viljum að kartöflur heyri undir sömu lög og aðrir garðávextir og að innflutningsnefnd garðávaxta fái að fjalla um það hveiju sinni hvort leyfa eigi innflutning eða ekki með tilliti til markaðs- ástands hérlendis," sagði Guðmundur Þórisson í Hléskóg- um sem einnig á sæti í stjórn landðsambandsins. Guðmundur sagði að kartöflu- bændur teldu að innflutningurinn væri ekki í anda þeirra laga sem í gildi væru og hefði verið leitað að- stoðar lögfræðinga í því sambandi. „Við höfum oft farið fram á inn- flutningsbann, en erum harðari í afstöðu okkar nú en endranær vegna þeirrar miklu uppskeru sem fékkst í sumar. Venjulega hefur því verið borið við að ísiensku kartöfl- umar væru síðri að gæðum en þær innfluttu. Hinsvegar hefur véla- kostur verið mikið endurbættur í verksmiðjum hérlendis upp á síðkastið og því er ekki hægt að bera því við lengur," sagði Guð- mundur. Útflutningnr Á fundi landssambandsins, sem haldinn var sl. miðvikudag í Bænda- höllinni, voru einnig ræddar leiðir til útflutnings á kartöflum og hefur verið farið fram á aðstoð frá ríkinu við flutningskostnað. Að sögn Sveinbergs Laxdal í Túnsbergi, sem á sæti í stjóm kartöflubænda við Eyjafjörð, er aðallega verið að ræða um kartöfluútflutning til Svíþjóðar og hugsanlega til Noregs og Finn- lands. Hann sagði að uppskera hefði verið léleg í Svíþjóð og því væri hugsanlegt að verð þar myndi stíga nokkuð frá því sem verið hefur. Samkvæmt upplýsingum frá Svíum munu þeir þurfa að flytja inn um 50.000 tonn af kartöflum um og eftir áramót. Tuttugnföld uppskera „Við höfum fengið heldur dræm- ar undirtektir í ráðuneytinu þegar rætt er um niðurgreiðslu með út- flutningnum, en ég held það hljóti að vera fjárhagslega hagkvæmara að gera pening úr offramleiðslunni heldur en að keyra hana á haug- ana, auk þess sem nokkurgjaldeyrir mun skapast. Ég býst við að niður- greiðslur þurfi að nema allt að tíu krónum á kg svo útflutningur borgi sig. Kartöflubændur fá þetta frá 15 og upp í 25 krónur á kg, en eðlilegt verð ætti að vera 25 til 30 krónur. Menn sætta sig hinsvegar við að vera ekki á toppnum úr því uppskeran var þetta góð. Uppsker- an hér við Eyjafjörð hefur verið hátt í 8.000 tonn og þýðir það að hún hefur tuttugufaldast frá því í fyrra," sagði Sveinberg. Hann sagði að ef innflutningur yrði stöðvaður þýddi það verulega aukningu á framleiðslu franskra kartaflna hjá Kjörlandi og Þykkva- bæjarkartöflum og munaði þar allt að 3.000 tonnum. „Uppskera hefur ekki verið undir 20.000 tonnum um land allt. Búast má við að helming- urinn fari á almennan markað og um 3.000 tonn fari í verksmiðjum- ar, en þá eru 7.000 tonn eftir. Ef miðað er við 30 krónur á kg þýðir það í krónum talið 210 milljónir, en ef miðað er við 20 krónur á kg, fara 140 millj. kr. á haugana verði ekkert að gert til að hjálpa bændum við útflutning eða stöðva innflutn- ing kartaflna erlendis frá," sagði Sveinberg. Bókauppboð á Akureyri BÓKAUPPBOÐ fer fram á Akur- eyri á vegum fornbókaverslunar- innar Klausturhóla laugardaginn 17. október nk. og hefst það kl. 14.00 á Hótel Varðborg, Geisla- götu 7. Bækumar verða til sýnis á hótelinu þann sama dag frá kl. 10.00 til 13.00. Guðmundur Axelsson sagði í samtali við Morgunblaðið að bó- katitlar yrðu 100 til 150 talsins og væri um að ræða rit, sem öll hefðu verið prentuð á Akureyri. Það eru ýmis merk rit sem verða til sölu. Boðin verða upp búnaðarrit, kosn- ingablöð, minningarrit, æviminn- ingar og æviskrár, blöð og tímarit.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.