Morgunblaðið - 15.10.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
37
„Au-pair“
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Verkamenn
Okkur vantar verkamenn nú þegar.
Mikil vinna. Frítt fæði.
Upplýsingar í símum 671210 og 673490.
Gunnar og Guðmundursf.,
Krókhálsi 1,
110 Reykjavík.
Bryti - matráðskona
Sjúkrahú Vestmannaeyja vill ráða bryta eða
matráðskonu nú þegar eða síðar eftir nánara
samkomulagi. Menntun og/eða reynsla á
sviði sérfæðis sjúklinga æskileg.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri,
sími 98-1955.
Stjórn Sjúkrahúss Vestmannaeyja.
St. Jósefsspítali
Hafnarfirði
Laus er staða í ræstingu og býtibúri á hand-
lækningadeild spítalans. Um erað ræða 65%
starf.
Nánari upplýsingar veitir ræstingastjóri í
síma 54325.
Hafnarfjörður
Víðivellir
Stuðningsfóstra. Fóstra eða þroskaþjálfi
óskast í 37,5% starf.
Upplýsingar gefur Þórelfur Jónsdóttir, for-
stöðukona, í síma 52004.
Félagsmálastjórinn i Hafnarfirði.
Valhúsaskóli
Seltjarnarnesi
Vegna forfalla vantar strax starfsmann á
skólasafn Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi.
Æskileg menntun: Bókasafnsfræði eða kenn-
aramenntun.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 30871
(heima) og 612044 (í skólanum).
Skólastjóri.
NÁMSGAGNASTOFNUN
óskar að ráða:
- Afgreiðslustjóra
Starfið felst í umsjón með afgreiðslu náms-
efnis til skóla, verkstjórn þar að lútandi og
eftirlit með tölvubókhaldi.
- Birgðastjóra
Starfið felst í því að skipuleggja og sjá um
lager Skólavörubúðar, ásamt tilheyrandi
birgðabókhaldi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Námsgagnastofnun
fyrir 20. okt. nk.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri.
Við erum þrjár stelpur sem viljum komast út
til New York í byrjun næsta árs sem „au-pair“.
Upplýsingar í síma 74388 og 689130.
Síldveiðar
2. stýrimann og háseta vantar,á mb. Hafn-
arvík ÁR 113 sem er að fara á síldveiðar.
Upplýsingar í símum 99-3965 og 99-2729
(á kvöldin).
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
fólk til póstafgreiðslustarfa.
Um er að ræða dagvinnu og vaktavinnu.
Upplýsingar eru veittar hjá skrifstofu póst-
meistara, Ármúla 25 og í síma 687010.
Barnagæsla
í Þýskalandi
Ung hjón óska að ráða íslenska stúlku til
barnagæslu og aðstoðar við heimilisstörf, frá
og með janúar 1988, um óákveðinn tíma.
Húsbóndinn er íslenskur en húsmóðirin þýsk
og eins og hálfsárs drengur. Bindindi á
tóbak og áfengi er skilyrði.
Sú sem hefur áhuga á þessu starfi fær allar
nánari upplýsingar um kaup og annað sem
máli skiptir. Vinsamlega sendu auglýsingadeild
Mbl. nafn þitt, heimilisfang og símanúmer
merkt: „Þýskaland 31. október — 780".
Verslunarstjóri
Kaupfélag Saurbæinga óskar eftir að ráða
verslunarstjóra.
Ráðningartími er frá 1. janúar nk.
Leitað er að manni með reynslu í verslunar-
störfum. Húsnæði fyrir hendi.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist kaupfélagsstjóra sem veitir
nánari upplýsingar í síma 93-41501 eða
starfsmannastjóra Sambandsins.
Kaupfélag Saurbæinga
Skriðulandi
Breska sendiráðið
óskar eftir að ráða bílstjóra í fullt starf, auk
þess sem ætlast er til að hann sjái um við-
hald sendiráðsins.
Aksturinn felur í sér innanbæjarsendiferðir
og að vera einkabílastjóri breska sendiherr-
ans. Eitthvað verður um kvöld- og helgar-
vinnu því viðkomandi og verður hún að
sjálfsögðu að fullu greidd.
Ökuskírteini og akstursferill verður að vera
óflekkaður, auk þess að viðkomandi hafi fulla
stjórn á enskri og íslenskri tungu.
Umsóknir skulu vera handskrifaðar og
sendar umsjónarmanni breska sendiráðsins,
Laufásvegi 49, 101 Reykjavík, fyrir 23. októ-
ber 1987.
Starfsfólk óskast
Starfsfólk óskast nú þegar í verslun okkar á
Skemmuvegi 4A.
Upplýsingar veitir Hermann í síma 76522.
Svefnskálinn hf.
Fellaborg við
Völvufell
Fóstrur og fólk með aðra uppeldismenntun
óskast til starfa sem fyrst.
Um er að ræða hálfsdagsstörf.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 72660.
Byggingaverka-
menn
Vantar nú þegar nokkra byggingaverkamenn.
Mikil vinna farmundan.
Upplýsingar í símum 84542 og 685583 frá
kl. 9.00-17.00 virka daga.
(þPSteintak hf
VERKTAKI BÍLDSHÖFÐA 16, 112 REYKJAVlK
SÍMAR: (91) -3 47 88 & (91) -68 55 83
Endurskoðunar-
skrifstofa
í miðbænum vill ráða í eftirtalin störf:
Endurskoðun
Viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði.
Til greina kemur að ráða viðskiptafræðinema
af endurskoðunarsviði í hlutastarf.
Bókhald
Starfsmaður sem getur merkt bókhald fyrir
tölvuvinnslu og gert minniháttar uppgjör.
Hlutastarf kemur til greina.
Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl. eigi
síðar en föstudaginn 16. október nk. merktar:
„Endurskoðun - 2520".
Ljósritunarvélar
Vegna aukinnar sölu á Ijósritunarvélum og
telefaxtækum þá óskum við eftir að ráða
menn til vióhalds og eftirlits á Ijósritunarvél-
um. Rafeindavirkjun, rafvirkjun eða hliðstæð
menntun nauðsynleg.
Allar nánari upplýsingar gefur verkstæðis-
formaður, Þorvaldur Sigurðsson, á staðnum.
HLJOMBÆR
Hverfisgötu 103.
„— MKTfeJt.',, T-Jöfóar til XXfólksíöl] starfsgreinum lum •
i Ilfotpitifelfofrfö