Morgunblaðið - 15.10.1987, Síða 48

Morgunblaðið - 15.10.1987, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987 fclk í fréttum Prince vill eignast barn með Whitney Houston að er nýjast af Prince að frétta að hann vill ólmur komast í hnapphelduna. Dís drauma hans er engin önnur en Whitney Houston, sem er að eig- in sögn ennþá hrein mey. „Whitney er eina konan í lífi mínu“ segir hann, en það er ekki öldungis rétt því örstutt er síðan hann gaf Sheenu Easton reisup- assann. Nú gerir hann allt sem í hans valdi stendur til að þóknast Whitney, þegar hún sagði að gallaföt myndu líklega klæða hann best, rauk hann upp til handa og fóta og keypti sér gallaalklæðnað. En frö- kenin lætur sem ekkert sé þó hann flytji henni mansöngva, „ég er ekki sú listakona sem hann þarfn- ast. Vinir prinsins hafa skýringar á hrifni hans á reiðum höndum, segja að hann þurfi einhveija til að sýna sig með. Það getur svo sem vel staðist, því hún er 1,72 en hann aðeins l,58...eða var það öfugt? Reuter Hún þyrfti ekki að vera svona stúrin blessunin. John Galliano hann- aði kjólinn sem sýningarstúlkan íklæðist. Einar S. Einarsson heiðraður af norrænum skáksamböndum Einar S. Einarsson fyrrverandi forseti Skáksambands ís- lands og núverandi aðalritari Skáksambands Norðurlanda var nú í sumar heiðraður fyrir störf að samnorrænum skákmálum. Það var á þingi Skáksambands Norðurlandanna í Þórshöfn í Fær- eyjum sem honum voru veitt viðurkenningarskjal og heiðurs- merki Danska skáksambandsins, og Sænska skáksambandið sæmdi hann Collijn skákorðunni. Hún er eingöngu veitt fyrir störf að fé- lagsmálum skákhreyfingarinnar og var fyrst slegin árið 1928. Einar hefur verið ötull baráttu- maður fyrir því að Norðurlöndin yrðu viðurkennd sem sjálfstætt skáksvæði innan FIDE. A síðasta þingi FIDE í Dubai komst það mál í höfn og eykur það mjög áhrif Norðurlandanna innan FIDE. Það er norrænum skák- mönnum á ýmsan hátt til hags- bóta, til dæmis hvað varðar þáttöku í svæðamótum og milli- svæðamótum og hefur meðal annars komið Jóhanni Hjartarsyni til góða á þessu ári. Þá hefur Einar einnig tekið saman yfírlit um skákstyrkleika einstakra landa og svæða og er staða íslands og Norðurlandanna sterk um þessar mundir því langf- lestir skákmeistarar á hveija milljón íbúa eru hérlendis og það sama er að segja um Norðurlönd- in í samanburði við önnur skák- svæði. Einar S. Einarsson með viðurkenning- arnar sem hann hlaut fyrir störf sín að samnorrænum skákmálum. Tjallinn tollir í tískunni Breskir tískufrömuðir eru nú þegar farnir að huga að sum- artískunni fyrir næsta ár, enda ekki seinna vænna. Þessar myndir voru teknar í Bretaveldi á tískusýningar- viku sem þarlendir héldu ekki alls fyrir löngu og sýna það besta sem breskir hönnuðir hafa upp á að bjóða. Það vakti athygli manna að fulltrúar Fremanns og Kays mættu ekki og fékkst engin skýring á fjar- veru þeirra. Það er ekkert lát á stuttum pilsum, þetta eintak er gjört af Betty Jackson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.