Morgunblaðið - 23.10.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
7
M KIÐLINGAPELS
Ljós. Þægilegur, hlýr
ogfallegurpels. Ekki
mikill um sig.
ÉVerðaðeins
kr. 49.000.
Útborgun aðeins
kr. 19.000.
' Eftirstöðvar
:yá6mán.
Hafrannsóknastofnun:
Loðnuleiðangurinn mistókst
Lagt er til að annar leiðangur verði farinn í nóvember
NÝAFSTAÐINN loðnuleiðang-
ur Hafrannsóknastofnunar
mistókst og hefur stofnunin
lagt til að annar leiðangur
verði farinn, þegar aðstæður
til leitar hafa breytzt til batn-
aðar, að öllum líkindum um
miðjan næsta mánuð. Sá leið-
angur er hins vegar ekki á
fjárhagsáætlun stofnunarinn-
ar.
Hjálmar Vilhjálmsson, físki-
fræðingur, var leiðangursstjóri í
árlegum leiðangri á skipunum
Áma Friðrikssyni og Bjama Sæ-
mundssyni, sem stóð yfír fyrri-
hluta þessa mánaðar. Hann sagði
í samtali við Morgunblaðið, að í
sumar hefði loðnan leitað norðu-
reftir í ætisleit og kæmi seinna
að norðan nú en venjulega. Hún
kæmi suðureftir með landgmnn-
skantinum við Grænland og sú
hegðan hennar sýndi of lága mæl-
ingu. Auk þess hefði ekki verið
hægt að komast að loðnunni að
miklum hluta vegna íss, þar hún
væri svo norðarlega sem raun
bæri vitni.
Tillaga stofnunarinnar væri því
sú, að nýr leiðangur yrði farinn.
Hins vegar væri slíkur leiðangur
ekki inni á fjárhagsáætlun stofn-
unarinnar og til hans þyrfti að
afla §ár, yrði ákveðin að hann
yrði farinn. Staðan væri því sú,
að veiðum yrði haldið áfram, þar
til annar leiðangur hefði verið far-
inn og endanlegur kvóti gefínn út
þá. Annar möguleiki væri sá, að
menn tækju mælingar, sem gæfu
til kynna að veiðar væru óráðleg-
ar, alvarlega og stöldmðu við.
Niðurstöður þessa leiðangurs yrðu
lagðar fram á fundi fiskifræðinga
í Kaupmannahöfn í næstu viku og
þá kæmi afstaða annarra hlutað-
eigandi þjóða eins og Noðrmanna
fram.
Útbreiðsla og dreifing loðnu samkvæmt októberleiðangrinum. Skörð-
ótta línan út af austurströnd Grænlands táknar ísbrúnina. veiðistofn-
inn hélt sig á Grænlandssundi og norður með grænlenzka
landgrunnskantinum. Á svæðunum út af Norður- og Norðausturl-
andi var eingöngu ársgömul loðna.
Þrjú skip
seldu í Hull
og Grimsby
Páll Pálsson seldi alls 138 lestir
í Grimsby. Heildarverð var 10,4
milljónir, meðalverð 75,24 krónur.
Páll heldur síðan til Póllands um
Bremerhaven til breytinga, en hann
er einn 6 togara, sem smíðaðir vom
í Japan og samið hefur verið um
að breytt verði í Póllandi.
Frár VE seldi einnig í Hull sam-
tals 24 lestir fyrir 1,4 milljónir
króna, en Frár er að fara í breyting-
ar þar. Loks seldi Vöttur SU 57
lestir í Hull. Heiidarverð var 4 millj-
ónir, meðalverð 69,64.
Verð á
Frá 19.000,- kr. útborgun.
Vegna sérlega hagstæöra innkaupssamninga
getum við nú boðið þrjár gerðir af pelsum á svo
góðu verði og með svo hagstæðum greiðsfuskil-
málum að te(ja má til sérstakra tíðinda!
Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla.þá sem
dreymt hefúr um að eignast fallegan pels, til að
láta nú drauminn rætast. Við bjóðum þessa
glæsilegu pelsa í öllum stærðum fyrir konur á
öllum aldri - en í takmörkuðu magni!
Einnig þjóðum við að sjálfsögðu mikið úrval
annarra pelsa auk þessara þriggja - í öllum
stærðum fyrir allar konur á öllum aldri!
Æ A
bræðslusíld
gefið frjálst
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefur ákveðið að gefa
fijálsa verðlagningu á síld og
sQdarútgangi tU bræðslu á nú-
verandi haustvertíð.
Verð á síld til bræðslu í fyrra
var einnig frjálst og var þá mun
hærra en á loðnu. Líklegt er að
vaxandi hluti síldarinnar fari í
bræðslu, þar sem leyfílegur veiði-
kvóti er meiri en til þessa hefur
farið í vinnslu til manneldis.
Með hass
innanklæða
TVEIR ungir menn voru
handteknir á Keflavíkur-
flugvelli á mánudag. Annar
þeira reyndist hafa falið um
560 grömm af hassi innan
klæða.
Tollverðir og starfsmenn
ffkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík handtóku mennina,
sem voru að koma frá Amst-
erdam. Við leit á þeim fannst
hassið í pakkningum, sem ann-
ar hafði límt á sig innan klæða.
Mennimir voru í haldi í nokkra
tíma og er málið að fullu upp-
lýst. Það hefur nú verið sent
ríkissaksóknara.