Morgunblaðið - 23.10.1987, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 23.10.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 7 M KIÐLINGAPELS Ljós. Þægilegur, hlýr ogfallegurpels. Ekki mikill um sig. ÉVerðaðeins kr. 49.000. Útborgun aðeins kr. 19.000. ' Eftirstöðvar :yá6mán. Hafrannsóknastofnun: Loðnuleiðangurinn mistókst Lagt er til að annar leiðangur verði farinn í nóvember NÝAFSTAÐINN loðnuleiðang- ur Hafrannsóknastofnunar mistókst og hefur stofnunin lagt til að annar leiðangur verði farinn, þegar aðstæður til leitar hafa breytzt til batn- aðar, að öllum líkindum um miðjan næsta mánuð. Sá leið- angur er hins vegar ekki á fjárhagsáætlun stofnunarinn- ar. Hjálmar Vilhjálmsson, físki- fræðingur, var leiðangursstjóri í árlegum leiðangri á skipunum Áma Friðrikssyni og Bjama Sæ- mundssyni, sem stóð yfír fyrri- hluta þessa mánaðar. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að í sumar hefði loðnan leitað norðu- reftir í ætisleit og kæmi seinna að norðan nú en venjulega. Hún kæmi suðureftir með landgmnn- skantinum við Grænland og sú hegðan hennar sýndi of lága mæl- ingu. Auk þess hefði ekki verið hægt að komast að loðnunni að miklum hluta vegna íss, þar hún væri svo norðarlega sem raun bæri vitni. Tillaga stofnunarinnar væri því sú, að nýr leiðangur yrði farinn. Hins vegar væri slíkur leiðangur ekki inni á fjárhagsáætlun stofn- unarinnar og til hans þyrfti að afla §ár, yrði ákveðin að hann yrði farinn. Staðan væri því sú, að veiðum yrði haldið áfram, þar til annar leiðangur hefði verið far- inn og endanlegur kvóti gefínn út þá. Annar möguleiki væri sá, að menn tækju mælingar, sem gæfu til kynna að veiðar væru óráðleg- ar, alvarlega og stöldmðu við. Niðurstöður þessa leiðangurs yrðu lagðar fram á fundi fiskifræðinga í Kaupmannahöfn í næstu viku og þá kæmi afstaða annarra hlutað- eigandi þjóða eins og Noðrmanna fram. Útbreiðsla og dreifing loðnu samkvæmt októberleiðangrinum. Skörð- ótta línan út af austurströnd Grænlands táknar ísbrúnina. veiðistofn- inn hélt sig á Grænlandssundi og norður með grænlenzka landgrunnskantinum. Á svæðunum út af Norður- og Norðausturl- andi var eingöngu ársgömul loðna. Þrjú skip seldu í Hull og Grimsby Páll Pálsson seldi alls 138 lestir í Grimsby. Heildarverð var 10,4 milljónir, meðalverð 75,24 krónur. Páll heldur síðan til Póllands um Bremerhaven til breytinga, en hann er einn 6 togara, sem smíðaðir vom í Japan og samið hefur verið um að breytt verði í Póllandi. Frár VE seldi einnig í Hull sam- tals 24 lestir fyrir 1,4 milljónir króna, en Frár er að fara í breyting- ar þar. Loks seldi Vöttur SU 57 lestir í Hull. Heiidarverð var 4 millj- ónir, meðalverð 69,64. Verð á Frá 19.000,- kr. útborgun. Vegna sérlega hagstæöra innkaupssamninga getum við nú boðið þrjár gerðir af pelsum á svo góðu verði og með svo hagstæðum greiðsfuskil- málum að te(ja má til sérstakra tíðinda! Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla.þá sem dreymt hefúr um að eignast fallegan pels, til að láta nú drauminn rætast. Við bjóðum þessa glæsilegu pelsa í öllum stærðum fyrir konur á öllum aldri - en í takmörkuðu magni! Einnig þjóðum við að sjálfsögðu mikið úrval annarra pelsa auk þessara þriggja - í öllum stærðum fyrir allar konur á öllum aldri! Æ A bræðslusíld gefið frjálst VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs- ins hefur ákveðið að gefa fijálsa verðlagningu á síld og sQdarútgangi tU bræðslu á nú- verandi haustvertíð. Verð á síld til bræðslu í fyrra var einnig frjálst og var þá mun hærra en á loðnu. Líklegt er að vaxandi hluti síldarinnar fari í bræðslu, þar sem leyfílegur veiði- kvóti er meiri en til þessa hefur farið í vinnslu til manneldis. Með hass innanklæða TVEIR ungir menn voru handteknir á Keflavíkur- flugvelli á mánudag. Annar þeira reyndist hafa falið um 560 grömm af hassi innan klæða. Tollverðir og starfsmenn ffkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík handtóku mennina, sem voru að koma frá Amst- erdam. Við leit á þeim fannst hassið í pakkningum, sem ann- ar hafði límt á sig innan klæða. Mennimir voru í haldi í nokkra tíma og er málið að fullu upp- lýst. Það hefur nú verið sent ríkissaksóknara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.