Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
23
eldri ílokkshestum illa og hann átti
fáa góða vini i flokknum. Hann
mætti mótlæti ( stjómmálum i
fyrsta skipti I bæjar- og sveitar-
stjómakosningum 1986. Kristilegir
demókratar töpuðu þá verulegu
fylgi og forsætisráðherrann þótti
sýna litla reisn þegar hann kenndi
stjómmálaástandinu i Bonn um tap-
ið.
Barschel lenti í alvarlegu flug-
slysi i mai á þessu ári. Báðir
flugmenn leiguþotu, sem hann var
um borð í, og öryggisvörður létust,
en hann komst einn lifs af. Hann
var í sjúkrahúsi í tvo mánuði og
gekk við staf i kosningabaráttunni
fyrir þingkosningamar í Slésvík-
Holstein i september. Enginn veit
hvaða sálrænu áverka hann hlaut
í slysinu. Hann var einrænn og
fiikaði ekki tiifinningum sínum.
Heisti andstæðingur hans i kosn-
ingunum, Bjöm Engholm, forsætis-
ráðherraefni sósialdemókrata, þykir
hins vegar hlýr maður og átti per-
sónulegum vinsældum að fagna.
Kristilegir demókratar höfðu setið
eiriir í stjóm í áratugi, en meiri-
hluti þeirra í þinginu var í hættu í
kosningunum 13. september. Dag-
inn fyrir kosningar fréttist að
Spiegel væri með forsíðugrein um
kosningahneyksli. Tímaritið greindi
frá því að Barschel hefði fengið
Reiner Pfeiffer, blaðafulltrúa sinn,
til að leigja leynilögreglumenn til
að fylgjast með ástalífi Engholms
og látið hann senda bréf til skatt-
yfirvalda með ábendingu um
skattsvik andstæðingsins. Greinin í
Spiegel vakti mikla athygli og leiddi
til falls Barschels.
Kristilegir demókratar töpuðu
meirihluta i kosningunum, eins og
búist var við. Formaður frjálsra
demókrata, sem CDU hófu stjómar-
myndunarviðræður við, neitaði að
hafa nokkuð saman við forsætisráð-
herrann að sælda. Barschel sór að
ásakanir Spiegels væm ósannar á
blaðamannafundi áður en hann
sagði af sér embætti og fór í frí til
Kanaríeyja. Stuðningsmenn hans
trúðu honum og kölluðu Spiegel
öllum illum nöfrium.
Sérstök þingnefnd var skipuð til
að rannsaka fullyrðingar tímarits-
ins. Það kom í ljós að fréttir þess
áttu við rök að styðjast og dreng-
skaparorð Barschels reyndist
einskis virði. Þingflokksbræður
hans snem að lokum við honum
baki og samþykktu að hann ætti
að segja af sér þingmannsembætti.
Það var föstudaginn 9. október.
Blaðamaður Bild hafði samband við
hann á Kanaríeyjum og greindi
honum frá samþykkt þingmann-
anna. Hún kom Barschel mjög á
óvart. „Trúir mér enginn lengur,"
spurði hann blaðamanninn. „Hvað
á ég þá til bragðs að taka?“
Tveimur dögum síðar fannst
hann látinn í Genf.
England:
Hélt upp á
aldarafmælið
ári of snemma
Birming'ham, Reuter.
MAGGIE Aston hélt hún ætti
hundrað ára afmæli i vikunni,
en við nánari athugun komst hún
að þvi, sér til mikillar ánægju,
að hún er ekki nema 99 ára.
Fjölskylda Maggiear hafði undir-
búið heljarmikla veislu og meðal
annars átti flugvél að fljúga yfír
bæinn Sedgley á Englandi, þar sem
Maggie býr, skreytt borða með
heillaóskum. Þegar ljóst var að
Maggie var ekki 100 ára var ákveð-
ið að sleppa flugvélinni en veislan
var haldin. Maggie sjálf var harla
ánægð með að hafa komist að raun
um að hún væri ekki orðin hundrað
ára. „Mig langaði ekkert að verða
hundrað ára, mér finnst ég verða
svo gömul við það,“ sagði Maggie
við blaðamenn um leið og hún sýndi
þeim fæðingarvottorðið þar sem
staðfest er að hún er aðeins 99 ára.
P.S. Meistari eða byrjandi á skíðum - það eru allir jafnir
í austurrísku brekkunum!
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Vetrarfrí í austurrísku Ölpunum, á skíðum í heimsins
bestu brekkum... það er sannarlega engu líkt! í hinum
dýrlegu fjallabæjum er loftið tært og heilnæmt og þar
muntu kynnast heillandi stemningu sem líður þér seint
úr minni.
Mayrhofen, Zell am See og Kitzbúhel eru staðirnir
þrír sem Flugleiðir bjóða ferðir til í vetur. Beint
áætlunarflug er til Salzburg vikulega, en þaðan er stutt
til allra áfangastaða.
Fararstjórar verða sem fyrr hinn góðkunni Rudi Knapp,
sem er innfæddur Tíróli og íslenskumælandi, og Ingunn
Guðmundsdóttir.
Verðdæmi: A. Kr. 30.113 á mann í tvíbýli á Landhaus
Heim. Jólaferð í tvær vikur, brottför
19/12 ’87.
B. Kr. 23.237 á mann, miðað við 4 saman
í íbúð á Landhaus Heim. 2ja vikna ferð,
brottför 2/1, 9/1, 16/1, 23/1 ’88.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og
Kringlunni. Upplýsingasími: 25100.
AUK hf. 110.42/SlA