Morgunblaðið - 23.10.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 23.10.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 23 eldri ílokkshestum illa og hann átti fáa góða vini i flokknum. Hann mætti mótlæti ( stjómmálum i fyrsta skipti I bæjar- og sveitar- stjómakosningum 1986. Kristilegir demókratar töpuðu þá verulegu fylgi og forsætisráðherrann þótti sýna litla reisn þegar hann kenndi stjómmálaástandinu i Bonn um tap- ið. Barschel lenti í alvarlegu flug- slysi i mai á þessu ári. Báðir flugmenn leiguþotu, sem hann var um borð í, og öryggisvörður létust, en hann komst einn lifs af. Hann var í sjúkrahúsi í tvo mánuði og gekk við staf i kosningabaráttunni fyrir þingkosningamar í Slésvík- Holstein i september. Enginn veit hvaða sálrænu áverka hann hlaut í slysinu. Hann var einrænn og fiikaði ekki tiifinningum sínum. Heisti andstæðingur hans i kosn- ingunum, Bjöm Engholm, forsætis- ráðherraefni sósialdemókrata, þykir hins vegar hlýr maður og átti per- sónulegum vinsældum að fagna. Kristilegir demókratar höfðu setið eiriir í stjóm í áratugi, en meiri- hluti þeirra í þinginu var í hættu í kosningunum 13. september. Dag- inn fyrir kosningar fréttist að Spiegel væri með forsíðugrein um kosningahneyksli. Tímaritið greindi frá því að Barschel hefði fengið Reiner Pfeiffer, blaðafulltrúa sinn, til að leigja leynilögreglumenn til að fylgjast með ástalífi Engholms og látið hann senda bréf til skatt- yfirvalda með ábendingu um skattsvik andstæðingsins. Greinin í Spiegel vakti mikla athygli og leiddi til falls Barschels. Kristilegir demókratar töpuðu meirihluta i kosningunum, eins og búist var við. Formaður frjálsra demókrata, sem CDU hófu stjómar- myndunarviðræður við, neitaði að hafa nokkuð saman við forsætisráð- herrann að sælda. Barschel sór að ásakanir Spiegels væm ósannar á blaðamannafundi áður en hann sagði af sér embætti og fór í frí til Kanaríeyja. Stuðningsmenn hans trúðu honum og kölluðu Spiegel öllum illum nöfrium. Sérstök þingnefnd var skipuð til að rannsaka fullyrðingar tímarits- ins. Það kom í ljós að fréttir þess áttu við rök að styðjast og dreng- skaparorð Barschels reyndist einskis virði. Þingflokksbræður hans snem að lokum við honum baki og samþykktu að hann ætti að segja af sér þingmannsembætti. Það var föstudaginn 9. október. Blaðamaður Bild hafði samband við hann á Kanaríeyjum og greindi honum frá samþykkt þingmann- anna. Hún kom Barschel mjög á óvart. „Trúir mér enginn lengur," spurði hann blaðamanninn. „Hvað á ég þá til bragðs að taka?“ Tveimur dögum síðar fannst hann látinn í Genf. England: Hélt upp á aldarafmælið ári of snemma Birming'ham, Reuter. MAGGIE Aston hélt hún ætti hundrað ára afmæli i vikunni, en við nánari athugun komst hún að þvi, sér til mikillar ánægju, að hún er ekki nema 99 ára. Fjölskylda Maggiear hafði undir- búið heljarmikla veislu og meðal annars átti flugvél að fljúga yfír bæinn Sedgley á Englandi, þar sem Maggie býr, skreytt borða með heillaóskum. Þegar ljóst var að Maggie var ekki 100 ára var ákveð- ið að sleppa flugvélinni en veislan var haldin. Maggie sjálf var harla ánægð með að hafa komist að raun um að hún væri ekki orðin hundrað ára. „Mig langaði ekkert að verða hundrað ára, mér finnst ég verða svo gömul við það,“ sagði Maggie við blaðamenn um leið og hún sýndi þeim fæðingarvottorðið þar sem staðfest er að hún er aðeins 99 ára. P.S. Meistari eða byrjandi á skíðum - það eru allir jafnir í austurrísku brekkunum! FLUGLEIÐIR -fyrír þíg- Vetrarfrí í austurrísku Ölpunum, á skíðum í heimsins bestu brekkum... það er sannarlega engu líkt! í hinum dýrlegu fjallabæjum er loftið tært og heilnæmt og þar muntu kynnast heillandi stemningu sem líður þér seint úr minni. Mayrhofen, Zell am See og Kitzbúhel eru staðirnir þrír sem Flugleiðir bjóða ferðir til í vetur. Beint áætlunarflug er til Salzburg vikulega, en þaðan er stutt til allra áfangastaða. Fararstjórar verða sem fyrr hinn góðkunni Rudi Knapp, sem er innfæddur Tíróli og íslenskumælandi, og Ingunn Guðmundsdóttir. Verðdæmi: A. Kr. 30.113 á mann í tvíbýli á Landhaus Heim. Jólaferð í tvær vikur, brottför 19/12 ’87. B. Kr. 23.237 á mann, miðað við 4 saman í íbúð á Landhaus Heim. 2ja vikna ferð, brottför 2/1, 9/1, 16/1, 23/1 ’88. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingasími: 25100. AUK hf. 110.42/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.