Morgunblaðið - 23.10.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
25
Danmörk:
Tj æreborg-ferðaskrifstx)fan
seld á um milljarð d. kr.
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgfen Bruun, fréttaritara Morgfunblaðsins.
DANSKA ferðaskrifstofan
„Tjæreborg Rejser" hefur verið
seld tveimur af forstjórum fyr-
irtækisins. Verð ferðaskrifstof-
unnar og meðfylgjandi
flugfélags, Sterling Airways,
er nálægt einum milljarði dan-
skra króna (u.þ.b. 5,5 milljarðar
isl. kr.). Seljandinn er stofnandi
fyrirtækisins og eigandi, hinn
77 ára gamli prestur Eilif
Krogager.
Sterling Airways, sem er
stærsta flugfélag á Norðurlöndum
í einkaeigu, var selt dansk-sænsku
fjárfestingarfélagi. Aðalstjóm-
andi þess verður núverandi for-
stjóri flugfélagsins, Ejnar Lundt.
Tjæreborg-ferðaskrifstofumar í
Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi vom seldar forstjóra
samsteypunnar, Jens Veino.
Ekkert hefur verið gefíð opin-
berlega upp um kaupverðið, en
dönsk blöð sögðu í gær, að flugfé-
lagið hefði verið selt á 635 milljón-
ir og ferðaskrifstofan á u.þ.b. 300
milljónir.
Seljandinn, séra Eilif Krogager,
segir, að hann hafí viljað selja,
af því að hann sé orðinn 77 ára
gamall, kona hans 83 og dóttir
þeirra, sem er kennari, hafí ekki
áhuga á að halda rekstrinum
áfram. -Svo að nú hlakka ég til
að úthluta peningunum. Stofnað-
ur verður sjóður með u.þ.b. einum
milljarði danskra króna í höfuðstól
og eiga ailar tekjur hans að ganga
til góðgerðarmála.
Hjá Tjæreborg-samsteypunni
vinna 3200 manns, 1300 hjá Sterl-
ing Airways og afgangurinn hjá
ferðaskrifstofunni. Búist er við,
að Tjæreborg Rejser sendi um
410.000 manns í orlofsferðir á
þessu ári.
Angóla:
Skæruliðar
hrinda nýjustu
árás kommúnistastíómarinnar
Stjórnarherinn undir stjórn sovéskra hershöfðingja
Lúanda, Reuter.
AÐ SÖGN erlendra stjórnarerindreka í Lúanda, höfuðborg Angólu,
hafa skæruliðar UNITA, undir stjóm Jonasar Savimbi, hrundið ár-
legri sókn stjóraarhersins, en hann er undir stjórn sovéskra hers-
höfðingja. Angólastjóra nýtur dyggilegs stuðnings Sovétmanna og
Kúbumanna, en skæruliðar reiða sig á stuðning Suður-Afríku og
annarra vestrænna þjóða. Haft var eftir Savimbi að skæruliðar hefðu
stökkt stjórnarheraum á flótta eftir bardaga við Lomba-fljót.
ERLENT
Stórskotahríð Suður-Afríkana
skipti sköpum í viðskiptum hinna
stríðandi aðila, en sókn stjómar-
hersins er sögð ein sú öflugasta frá
því að frumskógarstríðið hófst árið
1975.
Savimbi hershöfðingi, sem er ein-
arður andkommúnisti, hefur m.a.
fengið vopn frá Bandaríkjunum og
stjómin í Pretoríu hefur veitt hon-
um mikinn stuðning. Hann hefur
nú tögl og hagldir í um þriðjungi
landsins. Að sögn hans vom um
18.000 manns f liði stjómarhersins,
en því stjómaði sovéski hershöfð-
inginn Konstantin Shagnovitch.
Erlendir stjómarerindrekar segja
að sókn stjómarhersins hafí verið
hæg í byijun, en hann hafi þó ver-
ið betur skipulagður og betur
vopnum búinn en áður. Hins vegar
mun hafa verið gmnnt á því góða
milli hermanna og sovéskra jrfir-
manna þeirra, sem stjómuðu
aðgerðunum úr fjarlægð, og mis-
skilningur og samskiptavandamál
mun ekki hafa bætt úr skák.
Suður-Afrikustjóm staðfesti fyrr
í mánuðinum að herlið á þeirra veg-
um væri í Angólu, en vildu ekki tjá
sig frekar um hlutverk þeirra.
Embættismenn, sem ekki vildu láta
nafns síns getið, hermdu að tvær
sveitir úr Suður-Afríkuher hefðu
barist í Angólu, önnur þeirra úr
„Buffla-fylkinu", en í því er fjöldi
Angólumanna, andsnúnum stjóm-
inni í Lúanda. Sagt er að enginn
standist þessu fylki snúning í fmm-
skógarhemaði.
Hinar nýju Stinger-flaugar UN-
ITA, sem Bandaríkjastjóm sendi
þeim, virðast hafa haldið flugher
stjómarinnar í flarlægð, en Kúbu-
menn þeir sem fljúga vélum stjóm-
arhersins hafa ekki lagt í
lágsprengjuflug, sem þó mun vera
árangursríkast.
Borgarastyrjöld hefur geisað í
Angólu frá því að landið hlaut sjálf-
stæði frá Portúgal árið 1975, en
stjómin selur olíu til Sovétríkjanna
og Kúbu gegn hemaðaraðstoð. Tal-
ið er að þessi síðasta sókn sljómar-
hersins muni kosta stjómina um tvo
milljarði Bandaríkjadala, en að sögn
ferðamanna er höfnin í Lúanda nú
yfírfull af flutningaskipum með
hergögn og aðrar vistir og daglega
lenda tvær sovéskar flutningavélar
af stærstu gerð með ýmis tæki og
búnað frá Sovétríkjunum.
Skoðanakönnun meðal sovéskrar æsku:
Vill marga frambjóð-
endur í kosningum
París. Reuter. ^
París, Reuter.
SOVÉSK æska viU geta valdið
um fleiri en einn frambjóðanda
Stj ómmálaferill Papandreous í
hættu veffna hneykslismáls?
Aþenu, New York Times.
SAMBAND Andreasar Pap-
andreous, forsætisráðherra
Grikklands, við fyrrum flug-
freyju hjá Olympic Airways
hefur valdið vinslitum milli
hans og eiginkonu hans, Marg-
aretar, sem fædd er í Banda-
ríkjunum, og stefnt pólitískri
framtið hans í tvísýnu.
Almennt er ekki litið svo á, að
grískum stjómmálamönnum stafí
pólitísk hætta af framhjáhaldi.
En sumir stjómmálaskýrendur
halda fram, að Papandreou hafí
þama brotið óskráðar reglur: með
því að sýna almenningi og fjöl-
skyldu sinni fyrirlitningu og með
því að gera Grikkland að athlægi
á alþjóðavettvangi.
„Hneykslið hefur nú náð út
fyrir landamæri Grikklands," seg-
ir stjómarandstöðublað íhalds-
manna, Kathimerini. „Það er orðið
ein af meginfréttunum frá Grikkl-
andi.“
Bandaríska sjónvarpsstöðin
NBC var með frétt um þetta mál
á mánudag.
Samband Papandreous, sem er
68 ára gamall, og Dimitm Liani,
sem er 33 ára, komst í hámæli,
þegar griski sósíalistaleiðtoginn
hætti við að vera viðstaddur minn-
ingarathöfn í bænum Kalamata í
ágúst síðastliðnum, en þar var
verið að minnast þess, að eitt ár
var liðið, frá því að 22 af íbúum
bæjarins fómst í jarðslqálfta.
Skrifstofa forsætisráðherrans
skýrði fjarveru hans með því, að
annríki væri um að kenna.
Fréttablöð sögðu hins vegar frá
því, að á þessum tíma hefði hann
sést með Dimitru Liani á
skemmtisiglingu á Eyjahafi.
Kathimerini sagði, að ráðher-
rann hefði „hlaupist frá eiginkonu
sinni eftir 36 ára hjónaband" og
„bmgðist bænum Kalamata, sem
er í sámm eftir jarðskjálftann, til
þess eins að fara í skemmtisigl-
ingu og lifa í vellystingum — og
stofna þannig leiðtogaembættinu
í hættu".
Dagblaðið Eleftherotypia, sem
venjulega styður stjómina, sagði:
„Verði þetta mál ekki til lykta
leitt, kann ríkisstjómin að falla.“
Þessir spádómar koma í engu
heim og saman við það, sem
grískir stjómmálaskýrendur og
vestrænir diplómatar hafa áður
sagt, sem sé að þetta mál mundi
undir engum kringumstæðum
geta haft svipaðar afleiðingar í
för með sér og meint framhjáhald
banadríska stjómmálamannsins
Gaiy Hart með fyrirsætunni
Donnu Rice.
„Lúktu þessu máli á hvem þann
hátt, sem þú kýst,“ sagði Elefthe-
rotypia, „en gerðu það af einlægni
og heiðarleika. Fólkið sem treysti
þér fyrir stjóm landsins, getur
ekki fyrirgefíð lítilmannlegar und-
anfærslur."
Papandreou hefur samt ekkert
látið frá sér fara um málið opin-
berlega og skipað talsmanni
sínum að vera þögull sem gröfin.
Kona hans, Margaret, er í
Belgíu, þar sem hún er oddviti
Papandreou með Liani í viðtalsþætti í sjónvarpinu.
sendinefndar Sambands grískra
kvenna. Hún hefur heldur ekkert
sagt opinberlega.
Papandreou er sagður hafa
stuðlað að því, að Dimitra Liani
fékk stöðu hjá ríkissjónvarpinu —
þar sem hún hefur verið með við-
talsþætti, sem nefnast „Miso-
Miso“. Gríski forsætisráðherrann
var með þeim fyrstu, sem hún
ræddi við í þættinum, og hefur
það og annað í svipuðum dúr ver-
ið tíundað í grisku blöðunum.
Vikublaðið Eikones, sem útg-
áfufélag (Ethnos) í eigu vinstri-
manna gefur út, birti forsíðumynd
af Papandreou, þar sem hann
heilsar Liani með handabandi.
Inni $ blaðinu birtir blaðið mynd
af Papandreou með konu sinni og
bömum. Einn sona hans, George,
situr í griska þinginu.
„Deilumar vegna einkalífs for-
sætisráðherrans em á allra vit-
orði,“ segir blaðið.
Sagt er, að Papandreou hafí
svarað þessum skrifum blaðsins
með því að skipa stuðningsmönn-
um sínum að sækja ekki íburð-
armikla veislu, sem haldin var í
tilefni af sex ára útgáfuafmæli
þess.
Þegar málið komst fyrst í há-
mæli, datt fáum stjómmálaskýr-
endum í hug, að stjóm
Papandreous mundi nokkru sinni
stsifa hætta af því. Nýjustu
vísbendingar virðast hins vegar
gefa til kynna, að vaxandi óróa
sé farið að gæta á stjómarheimil-
í kosningum og lítur svo á að
skrifræði í Sovétríkjunum
standi áfromum Mikhails
Gorbachev Sovétleiðtoga helst
fyrir þrifum, að þvi er kemur
fram í skoðanakönnun, sem
birtist í gær.
Könnunin, sem sovéska frétta-
stofan Novosti lét gera meðal
skólanema og ungra verkamanna,
birtist í franska vinstra blaðinu
Le Matin. Sagði í blaðinu að hver
einasti þeirra sem könnunin náði
til hefði viljað að fleiri en einn
maður byðu sig fram til embættis.
Sovétmenn gerðu ýmsar tilraunir
í sveita- og bæjastjómarkosning-
um í júní og á nokkmm stöðum
gátu kjósendur valið um frambjóð-
endur.
Sex af hveijum tíu aðspurðum
sögðu að skrifræðið væri helsta
hindmnin í vegi fyrir endurbótum
Gorbachevs. Tveir af tíu sögðu að
aðgerðar- og áhugaleysi fólksins
hamlaði endurbótum.
Þegar spurt var hvemig koma
mætti á endurbótum sögðu 40
prósent að það væri hægt með
auknum sósíalisma, 25 prósent
kváðu skynsamlegast að efia efna-
haginn og 14 prósent töldu aukið
frelsi vænlegast til árangurs.
í könnun Novosti var einníg
spurt hvaða erlent ríki heillaði
mest. Frakkland átti mestum vin-
sældum að fagna og i kjölfarið
sigldu Ítalía og Sviss. Vestur-
Þýskaland var óvinsælast. 40
prósent aðspurðra kváðust hafa
ýmugust á Vestur-Þýskalandi, en
aðeins 11 prósent sögðust hafa
illan bifur á Bandaríkjunum, sem
var í öðra sæti þegar spurt var
um óvinsælasta rikið.
Þess var hvorki getið til hve
margra nemenda könnunin hefði
náð, né hvenær hún hefði verið
gerð.