Morgunblaðið - 23.10.1987, Síða 29
Ráðherra einn getur
leyst málið með því
að heimila slátrun
- segir Matthías Bjarnason alþingismaður um sláturhúsdeiluna á Bíldudal
Hljómar frá Keflavík.
Keflavík:
Þekktir tónlistar-
menn frá Suðurnesjum
skemmta í Glaumbergi
FJÓRTÁN þjóðkunnir tónlistar-
menn, allir frá Suðurnesjum,
skemmta matargestum Glaum-
bergs í Keflavík í dag, föstudag,
frá klukkan 19. Dagskráin nefn-
ist Tekið á loft f Glaumbergi og
verður endurtekin næstu föstu-
dags- og laugardagskvöld.
í tengslum við skemmtunina útveg-
ar skemmtistaðurinn hópferðabfla
fyrir stærri hópa frá höfuðborgar-
svæðinu og gerir tilboð fyrir fyrir-
tæki og félagasamtök utan af landi.
Hótel á Suðumesjum veita einnig
gestum skemmtistaðarins afslátt.
Meðal Keflvísku tónlistarmann-
anna verða: Einar Júlíusson, Anna
Vilhjálmsdóttir, Jóhann G. Jóhanns-
son, Gunnar Þórðarson, Rúnar
Júlíusson, Engilbert Jensen, Erling-
ur Bjömsson, Magnús Kjartansson,
Magnús Þór Sigmundsson, Jóhann
Helgason, Finnbogi Kjartansson og
fleiri.
Húsið opnar fyrir aðra en matar-
gesti klukkan 23.00 og þá leikur
Hljómsveit Magnúsar Kjartansson-
ar fyrir dansi.
„ÉG GERÐI það alls ekki með
glöðu geði að flytja þetta frum-
varp, en úr þvf sem komið var,
eftir að embættismenn höfðu hag-
að sér jafn illa og þeir gerðu, var
ekki hægt að vekja athygli á þessu
máli með öðrum hætti,“ segir
Matthfas Bjamason alþingismaður
er rætt var við hann um slátur-
húsmálið á Bfldudal. „Málið er í
óefni komið, reyndar fyrir löngu,
og landbúnaðarráðherra einn get-
ur leyst úr þvf með. því að heimila
slátrun og fá dýralækni til að fara
þegar f stað vestur og þá mun
ekki standa á mér að draga frum-
varpið til baka.“
Matthías er fyrsti flutningsmaður
frumvarpsins um að heimila slátrun
á Bfldudal í haust. Frumvarpið er
nú til umfjöllunar í landbúnaðar-
nefnd neðri deildar. Nefndin fundaði
um málið í gærmorgun og kallaði
þá til ýmsa umsagnaraðila. Ekki er
búist við að frumvarpið komi til ann-
arar umræðu fyrr en eftir helgi.
Matthías sagði að á sínum tíma
hefði verið tilbúið leyfísbréf í land-
búnaðarráðuneytinu fyrir sláturhúsið
á Bfldudal og þar með hefði ráðu-
neytið verið búið að fullnægja heil-
brigðiskröfum. Bréfíð hefði hins
vegar aldrei verið undirritað þar sem
dýralæknirinn sem búið var að fá til
að heilbrigðisskoða kjötið hefði hætt
við að fara.
„Ég tel að ef það var alltaf ætlun
setts jnfirdýralæknis að veita ekki
meðmæli með sláturleyfí f ár hefði
héraðsýralæknir ekki átt að gera
kröfur um lagfæringar," sagði Matt-
hías. „Sfðan kom annar dýralæknir
með nýjar kröfur, sem heimamenn
uppfylltu tafarlaust að því leiti sem
þeir gátu. Eigendumir eru bændur
sem hafa ekki verið taldir tekjuhá
stétt og hafa þeir orðið fyrir miklum
útgjöldum við endurbætur hússins.
Meirihluti sláturhúsa
með undanþáguleyfi
18 löggild sláturhús og 29 með undanþágu
INNLENT
MEIRIHLUTI sláturhúsa lands-
ins störfuðu samkvæmt undan-
þágu í sláturtíðinni í haust. 48
sláturhús sóttu um leyf i til slátr-
unar og fengu öll leyfi nema eitt,
sláturhús Sláturfélags Arnfirð-
inga á Bíldudal. 18 sláturhús
hafa löggildingu til sauðfjár-
slátrunar og 29 til viðbótar fengu
undanþágu þar sem þau full-
nægja ekki öllum þeim kröfum
sem gerðar eru til sláturhúsa.
Löggiltu sláturhúsin em: Slátur-
félag Suðurlands á Selfossi, Kirkju-
bæjarklaustri, Vík í Mýrdal,
Laugarási og Hvolsvelli, Kaupfélag
Borgfirðinga í Borgamesi, Kaup-
félag Hvammsfjarðar í Búðardal,
Kaupfélag Dýrfírðinga á Þingeyri,
Kaupfélag Steingrímsfj arðar á
Hólmavík, Kaupfélag Hrútfírðinga
á Borðeyri, Kaupfélag Vestur-
Húnvetninga á Hvammstanga,
Sölufélag Austur-Húnvetninga á
Blönduósi, Kaupfélag Skagfírðinga
á Sauðárkróki, Kaupfélag Eyfirð-
inga á Akureyri, Kaupfélag Þingey-
inga á Húsavík, Kaupfélag
Norður-Þingeyinga á Kópaskeri,
Sláturfélag Suðurfjarða á Breið-
dalsvík og Kaupfélag Austur-Skaft-
fellinga á Höfn.
Undanþágusláturhúsin eru: Slát-
urfélag Suðurlands við Laxá,
Hóimkjör hf. í Stykkishólmi, Kaup-
félag Saurbæinga á Skriðulandi,
Kaupfélag Króksfjarðar á Króks-
§arðamesi, Sláturfélag Vestur-
Barðstrendinga á Patreksfirði,
Kaupfélag Önfirðinga á Flateyri,
Verslun Einars Guðfinnssonar í
Bolungarvík, Kaupfélag ísfírðinga
á ísafírði, Kaupfélag Strandá-
manna á Norðurfirði, Kaupfélag
Bitmflarðar á Óspakseyri, Verslun
Sig. Pálmasonar á Hvammstanga,
Slátursamlag Skagfírðinga á Sauð-
árkróki, Kaupfélag Eyfirðinga á
Dalvík, Kaupfélag Langnesinga á
Þórshöfn, Kaupfélag Vopnfirðinga
á Vopnafirði, Verslunarfélag Aust-
urlands í Fellabæ, Kaupfélagið
Fram á Neskaupstað, Kaupfélag
Héraðsbúa á Reyðarfírði, Egilsstöð-
um og Fossvöllum, Kaupfélag
Fáskrúðsfjarðar, Kaupfélag Aust-
ur-Skaftfellinga, Kaupfélag Bem-
flarðar á Djúpavogi, Sláturhúsið
Vík hf. í Vík í Mýrdal, Versl. Frið-
riks Friðrikssonar í Þykkvabæ,
Búrfell á Minni Borg, Höfti hf. á
Selfossi, Kaupfélag Suðumesja í
Grindavík og Kaupfélagið Þór á
Hellu.
Selfoss:
Kór Fjölbrauta-
skólans með Sinfóní-
unni í íþróttahúsinu
Sdfoaii.
KÓR Fjölbrautaskólans á Sel-
fossi syngur með Sinfóníuhjjóm-
sveit íslands á tónleikum hennar
í iþróttahúsinu á Selfossi í kvöld
klukkan 20.30.
Kórinn mun syngja tvö kórverk eft-
ir Verdi, Fangakórinn úr Nabuko
og Sígaunakórinn úr II Trovatore.
í kómum em 50 manns, þar á
meðal nokkrir fyrrverandi kórfélag-
Stjómandi kórsins, Jón Ingi Sig-
urmundsson, hefur æft kórinn af
kappi undanfamar 3 vikur fyrir
þessa tónleika og tónleika hljóm-
sveitarinnar í Keflavík í gær þar
sem kórinn söng.
Það er Páll P. Pálsson sem stjóm-
ar Sinfóníuhljómsveitinni og
kómum á tónleikunum í kvöld.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/SigurðurJónsson
Jón Ingi Sigurmundsson stjómandi kórsins.
Kór Fjölbrautaskólans á sfðustu æfingunni fyrir tónleikana með Sinfónfuhþ'ómsveitinni.
Siðan er það samþykkt, eftir að ég
hreyfí þessu máli utan dagskrá á
Alþingi, að þeim er boðið að slátra
fé sínu á Patreksfirði. Nú liggur það
fyrir að sauðfjárslátrun er búin á
Patreksfírði, eins og víða í slátur-
húsum landsins, og starfsfólkið hætt- -
og fólkið sem ætlaði að vinna í slátur-
húsinu á Bfldudal ekki tilbúið til að
fara að vinna við slátmn á Patreks-
firði. Hvað á þá að gera við þessar
skepnur? Á að láta þær ganga úti í
vetur?
Út yfír allt taka þó viðbrögð ein-
stakra þingmanna, jafnvel í bænda-
stétt, og Stéttarsambands bænda,
sem taka alveg undir með yfirdýra-
lækni og ganga þvert á hagsmundi
og réttindi þessarra fjölskyldna við
Amarflörð.
En mest af öllu gremst mér þó
það bréf sem settur yfírdýralæknir
sendi alþingismönnum og ákveðnir
þingmenn hafa smjattað á eins og
sælgæti. Það virðist hafa komist inn
hjá þeim sem ekki þekkja til að mik-
ill sóðaskapur sé í þessu kauptúni.
Ég vil mótmæla vinnubrögðum bréf-
ritara og þessarra sögumanna. Ég
þekki miklu betur til Bfldudals en
þeir og fullyrði að þar er snyrtilegt
og gaman að koma. Fólkið sem þar
býr er samheldið í að fegra staðinn.
Þar er rekið frystihús sem er til fyrir-
myndar og rekið af myndarskap. Öll
starfsemi þaraa fær vatn úr sömu
vatnsleiðslu og sláturhúsið og fólkið
sem staðinn byggir.
Starfsemin í siáturhúsi Sláturfé--1^
lags Amfírðinga hefur verið til
fyrirmyndar þau ár sem ég hef þekkt
þar til. Þar hefur verið dugmikill og
hirðusamur sláturhússtjóri sem og
annað starfsfólk sem hefur unnið
þama árum saman. Afurðir slátur-
hússins hafa verið eftirsóttar og
sömu viðskiptamenn árum saman.
Ég get því vel skilið þá mikiu gremju
sem er á Bfldudal eftir þessi óverð-
skulduðu ummæli um sláturhúsið og
staðinn í heild. Hvaðan yfirdýralækn-
ir fær upplýsingar um rottugang á
Bfldudal væri gaman að vita. Ef ég
væri landbúnaðarráðherra myndi ég
krefja hann skýringa á þessu og bréf-
inu í heild," sagði Matthías Bjama-
son.
Brotist inn í
Verknámshús
Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
BROTIST var ínn f verknáms-
hús Fjölbrautaskóla Suðurnesja
víð Iðavelli aðfaranótt miðviku-
dags og þaðan stolið 7 þúsund
krónum.
Að sögn lögreglunnar komst
þjófurinn eða þjófamir inn í húsið
með því að losa um stormjám í
glugga sem var notaður sem inn-
komuleið. Engin teljandi spjöll voru
unnin i innbrotinu. Lögreglan biður
þá sem hafa orðið varir við grun-
samlegar mannaferðir í nágrenni
skólans þessa umræddu nótt að
hafa samband við rannsóknarlög-
regluna í Keflavík. _ gjj
Leiðrétting
í GREIN sem birtist í blaðinu á
miðvikudaginn, 21. október, um
ræðukeppni milli Verslunarskól-
ans og Fjölbrautarskólans f
Garðabæ, var rangt farið með
föðumafn eins keppandans.
Var ein þeirra er héldu ræður
sögð heita Margrét Einarsdóttir.
Hið rétta er að Margrét er Hrafns-
dóttir og biðst blaðið velvirðingar á
þessum mistökum.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987