Morgunblaðið - 23.10.1987, Side 42
42
MORGUNBLAÐB), FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
Mitt í öllu fjölmiðlafárinu sem
hefur dunið yfir landslýð
stendur gamla gufan, rás 1, lítið
breytt. Hún á sér tryggan hlust-
endahóp og sá hópur hefur án efa
tekið eftir þvf að nýir þulir eru að
taka við. Fólki í fréttum lék for-
vitni á að kynnast einum þeirra
örlítið náuar og brá sér í vikunni
upp í Efstaleiti. Þar hitti blaðamað-
ur Sigríði Guðmundsdóttur í þula-
stofu og ræddi við hana á milli
kynninga undir dunandi harmón-
ikkutónlist.
Sigríður er ein af fjórum nýjum
þulum sem hófu störf um miðjan
október og hefur því fengið nasa-
sjón af þularstarfínu.
Hvemig Ukar þér starfíð?
„Mér lfkar það vel enn sem kom-
ið er, en þetta er dálítið einmana-
legt. Því er heldur ekki hægt að
neita að ég er ennþá óskaplega
taugaóstyrk og hrædd um að eitt-
hvað fari úrskeiðis. En það lagast
þegar ég er byijuð að lesa. Það
getur verið snúið að bera fram sum
erlend nöfn og heiti en auðvitað á
maður að vera búinn að kynna sér
það sem maður er að lesa upp.
Þulurinn er nokkurs konar verk-
stjóri þeirrar dagskrár sem fer í
loftið, hann þarf að vera fljótur að
átta sig ef eitthvað fer úrskeiðis.
Vonandi minnkar svo taugaóstyrk-
urinn þegar starfíð kemst upp í
vana, en maður má ekki slappa al-
veg af, því þá eykst hættan á að
maður gleymi sér.“
Jívað starfaðiru áður?
„Ég varð stúdent frá MA 1956
og átti mitt fyrsta barn það ár. Á
sama ári bauðst mér að verða skóla-
stjóri í forföllum í Öngulstaðahreppi
sem ég þáði. í skólanum voru
fímmtíu böm í tveimur deildum á
aldrinum 8 til 14 ára. Þar var ég
í tvö ár og fékk mína eldskím sem
kennari, en þetta var þó eitt ljúf-
asta tímabil lffsins. Ég ákvað að
taka próf upp á kennsluna og fór
f kennaraskólann. Lauk prófí þaðan
1959, gifti mig sama ár og varð
heimavinnandi húsmóðir allt til árs-
ins 1972, þegar ég fór að kenna
við Fossvogsskólann. Ég byrjaði að
vinna þar fyrst og fremst vegna
þess að þar er opinn skóli, en þann-
ig hefði ég viljað hafa kennsluna í
Ongulstaðahreppi."
Hvað varð til þess að þú sóttir um
þularstarfið?
„Ég var ryksuga heima hjá mér
þegar ég heyrði auglýst f útvarpinu
eftir þulum og ákvað að fara S
prufu. Ég hef alltaf haft áhuga á
útvarpi og hef áður lesið fram-
haldssögur fyrir böm í útvarp. Ég
var byijuð að kenna og ætlaði ekk-
ert að fara f þessa vinnu þegar mér
var boðið starfið. Ég er ennþá í
forfallakennslu vegna þess að þörf-
in fyrir kennara er mikil.
Þó kemur að því að ég þarf að
skilja við bömin og það er ekki
átakalaust. Mér fínnst ég hálfþart-
inn vera að svíkja þau. En kennslan
er kre^andi starf og maður verður
að fínna þegar maður er orðinn
staðnaður og hlutimir ganga of
vel. Sú staða var komin upp, nú
og langi konu á mfnum aldri til að
Sigrfður fylgist með timannm í
þularstofunni:„Ég er ennþá að
reyna að læra á klukkuna
héma."
Morgunblaðið/BAR
takast á við nýtt starf, þá er það
ekki seinna vænna því að konur um
fímmtugt em ekki eftirsóttustu
starfskraftamir á vinnumarkaðn-
um. Ég er elst þeirra sem ^ögurra
sem byijuðu núna en það háir mér
alls ekki. Þularstarfíð á margt skylt
við kennslu, maður þarf að vera
fljótur að átta sig og að taka
ákvarðanir. Það hefur án efa komið
mér til góða að ég hef kennt lengi
og hef mikinn áhuga á íslensku,
en hann þakka ég fyrst og fremt
föður mínum sem var mikill mál-
vöndunarmaður og talaði um
málvillur sem rassbögur. Hann
kenndi mér að lesa þegar ég var
fjögurra ára.“
Tveir íslendingar
við Viðskiptaaka-
demíuna í Osló
En hvað finnst fjölskyldunni um.
nýja starSð?
„Móður minni sem býr á Akur-
eyri fínnst óskup notalegt að fá
mig inn f stofu til sín og bömunum
mínum fínnst frábært að gamla
konan sé komin ínn í Qölmiðlaheim-
inn.“
Kvikmyndastjömur
Nýtt par á
stj örnuhimninum
Námsmenn
Demi Moore er búin að losa
sig við Emilio Estevez. Þau
vora komin langleiðina í hnapp-
helduna en aldrei vannst tími til
Bruce og Demi eru afar lukku-
leg þessa dagana
að sinna formsatriðunum. Demi
hefur snúið sér að kvennagullinu
ógurlega, sjálfum Brace Willis.
Eftir sat Emilio með sárt ennið
og sleikti sárin. Eitthvað virðist
þó vera að rætast úr hjá honum
því hann hefur undanfarið sést á
röltinu með Súsönnu Hoffs úr
kvennahljómsveitinni Bangles.
Þetta var nú allt og sumt f bili...
Tveir íslendingar, Eyþór Áma-
son og Kristinn Ólafsson
stunda nú nám við Viðskiptaakade-
míuna í Osló. Þeir eru meiðal þeirra
240 af 1450 umsækjendum sem
fengu inngöngu, en mun fleiri
sækja um að komast f framhalds-
nám í Noregi en fá inngöngu.
Akademían er 4 ára viðskiptahá-
skóli sem veitir réttindi sem við-
skiptafræðingur að afloknu fullu
námi. Þar er öflugt félagsslíf og
era á ári hveiju settar upp revíur,
farið í ferðalög, heimsóknir á vinnu-
staði og haldnar ráðstefnur svo
eitthvað sé nefíit.
Eyþór er stúdent frá Flensborg
í Hafharfirði og langaði til að kom-
ast erlendis og sótti þess vegna um
að stunda nám í Noregi. Kristinn
er stúdent frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð og hefur starfað við
sölumennsku, inn- og útflutning í
6 ár. Hann ætlar sér að vinna í 1
til 2 ár að afloknu námi í Noregi.
Töluverður áhugi er hérlendis og
í Noregi á að koma á nemendaskipt-
um milli Viðskiptaakademíunnar og
Viðskiptadeildar Háskóla íslands
og er nú unnið að því að á hverri
önn stundi nokkrir nemendur skipt-
inám.
Eyþór Áraason og Kristinn Olafsson.
fclk í
fréttum
Útvarpið
Þulurinn er nokkurskonar
verkstjóri þeirrar dag-
skrár sem fer í loftið
-segir Sigríður Guðmundsdóttir þulur