Morgunblaðið - 23.10.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
„Er þe.tt<x \ fyrskcL&rv\ Se*n pú sk.itif ? "
Þér er óhætt að láta sjá
þig, því það hefur enginn
hér í húsinu hringt í mein-
dýraeyði...
Með
morgunkaffínu
Þetta eru svo nýorpin egg
að hœnumar eru ekki einu
sinni famar að sakna
þeirra...
HÖGNI HREKKVÍSI
UNGF-rO GUÐRlJN!! "
Flytjið góða tónlist í stað-
inn fyrir dægurlagagarg
Til Velvakanda
Það er oft skammast út í sjón-
varpið en nú verð ég að hrósa því
fyrir ágætan þátt, þáttinn Eins og
þeim einum er lagið sem var á dag-
skrá sjónvarps miðvikudagskvöldið
14. október. Þar voru kynntir þrír
efnilegir óperusöngvarar. Greinilega
er þjóðin ekki á flæðiskeri stödd í
menningarlegu tilliti, við eigum stór-
kostlegt hæfíleikafólk, það kom fram
f þættinum á miðvikudagskvöldið.
En það kemur á óvart hversu sjald-
an heyrist í þeim sem leggja stund
á tónlist í alvöru. Poppgargið,
skrflmenningin og iágkúran hljómar
stöðugt í fjölmiðlunum. Dagskrá nýju
útvarpsstöðvana einkennist af und-
anrennumúsfk og sjaldan kemur fyrir
að þar sé flutt tónlist sem stendur
undir nafni. Þess í stað er erlendu
og innlendu dægurlagarusli hampað
daglega og iátið sem um merkiiega
tónlist sé að ræða. Hver áhrif hefur
þetta á tónlistarmenningu þjóðarinn-
ar til frambúðar? Við 'skulum vona
að þessum ósköpum linni áður en
langt líður og skrúfað verði fyrir
öskurapana og sorpgargið.
Ríkisfjölmiðlamir ættu að nota
betur fjárhagslega stöðu sfna og
veija meiri tíma til að kynna alvar-
lega listamenn. Böm og unglingar
mega ekki alast upp f þeirri trú að
dægurlagagargið sé merkileg tónlist
og skrflmenningin sé ffn eða eftir-
sóknarverð á nokkum hátt. Við
íslendingar eigum stórkostlegt tón-
listarfólk sem vakið hefur athygli
víða um heim. Hvers vegna veitum
við því ekki aukið rými í flölmiðlum
okkar? Ó.S.
Þesenr hringdu ...
íslenski dans-
flokkurinn frá-
bær
Kona í Garðabæ hringdi:
„Mig langar til að þakka ís-
ienska dansflokknum fyrir
frábæra sýningu. Það var mikil
upplifun að sjá sýninguna Ég
dansa við þig og stóðu dansaram-
ir sig með miklum sóma. Egill
Ólafsson stóð sig mjög vel og
einnig söngkonan Jóhanna Lin-
net. Eg vil hvefja íslenska dans-
flokkinn til að halda fleiri
sýningar."
Slæm umgengni í
Víðidal
Bryndís hringdi:
Eg er með hest í geymslu í
Víðidal eins og margir aðrir. Að
undanfömu hafa verið haldnir
þama popptónleikar og hefur
umgengni verið fremur slæm, til
dæmis em glerbrot víða um svæð-
ið. í þessu sambandi langar mig
til að koma á framfæri tveimur
fyrirspumum. Hver á að greiða
lækningakostnað ef hestur særist
á hóf vegna glerbrotana þama?
Hver ber ábyrgð á því að svæðinu
þama sé haldið hreinu og glerbrot
fjarlægð?"
Reiðhjól
Krómað BMX reiðhjól með blá-
um hnakk og án afturbrettis var
tekið að Gaukshólum 2 fyrir
skömmu. Þeir sem hafa orðið var-
ir við hjólið em beðnir að hringja
í síma 72286.
BMX torfæruhjól
BMX torfæmhjól, hvítt með
svörtum púðum, var tekið fyrir
utan veitingastaðinn Barón á
Laugarvegi föstudaginn 9. októ-
ber milli kl. 17 og 18. Stellnúmerið
er 384948. Þeir sem geta gefíð
upplýsingar um hjólið vinsamleg-
ast hringi f síma 16908 eða 14060.
Drengjaúlpa
Grá drengjaúlpa tapaðist í
ágúst eða september við Laugar-
nesveg eða þar í grennd. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 33113.
Öf ögur íþrótt
Friðrík E. Friðríksson -
hringdi:
„Eg var staddur á Reykjalundi
sl. mánudagskvöld og sá þá held-
ur ófagra íþrótt f sjónvarpinu fyrir
fréttir. Þama var um einhvers
konar fiölbragðaglímu að ræða
°g byggðist hún á miklum fanta-
skap. Þama spörkuðu menn í
andlitið á hveijum öðmm ef því
var að skipta og lágu sumir blóð-
ugir í valnum. Fólkið sem þama
var að horfa á sjónvarpið hafði
lítið gaman af þessu. Margt af
því þekkir vel afleiðingar svona
áverka, hvað þær geta verið þung-
bærar. Ég er almennt á móti
boðum og bönnum en „fþróttir"
sem þessa ætti að banna og þær
eiga ekkert erindi í sjónvarp.
Menn geta slegist ef þeir vilja en
útaf fyrir sig og það er engin
ástæða tii að halda sýningar á
slíku."
Læða
Svört og hvít læða er í óskilum.
Eigandi hennar er beðinn að
hringja í sfma 651993.
Svartur högni
Híldur hringdi:
„Ég er með tveggja eða þriggja
mánuða gamlan alsvartan högna
í óskilum. Þetta er heimilisdýr,
hann er ákaflega blíður, elskuleg-
ur og þrifínn. Sfminn hjá okkur
er 18905.“
Bröndóttur kött-
ur
Bröndóttur fressköttur, gulur
og hvítur, með grænbláa ól er í
óskilum að Kmmmahólum 4. Eig-
andi hans er vinsamlegast beðinn
að hringja f síma 77267 sem fyrst.
Víkverji skrifar
Hjá útgáfufyrirtækinu Frjálsu
framtaki stendur nú yfír sér-
stök áskrifendasöfnun og bók býðst
nýjum áskrifendum í kaupbæti.
Meðal tímaritanna, sem Fijálst
framtak stendur að er bamablaðið
ABC, sem er gefíð út í samvinnu
við skátahreyfínguna. Ungur vinur
Víkveija hafði hug á að gerast
áskrifandi og vildi auðvitað njóta
boðsins um bók í leiðinni. Þar stend-
ur valið milii flögurra bóka.
Reyndar er vinur Víkveija á þeim
aidri, eins og áskrift að bamablaði
ber með sér, að hvorki bókin með
leiðbeiningum um gott kynlíf, jafn-
vel þótt hún sé eftir dr. Ruth
Westheimer, né skáldsögumar um
nýju konuna eða hvíta hótelið höfð-
uðu til hans. Er þá ein bók eftir:
Fimmtán kunnir knattspymumenn.
Nú hefur vinur Víkveija engan
áhuga á knattspymu, en auðvitað
er þessi bók betri en engin. Þannig
stendur hans val ekki á milli flög-
urra bóka, heldur milli þess að fá
eina eða enga. Þannig er alltaf
komið fram við okkur krakkana,
sagði hann mæðulega, þegar hann
rakti Víkveija raunir sínar. Annars
em pabbi og mamma voða spennt,
bætti hann við. Þeir segja neftiilega
í auglýsingunni, að sumar bókanna
séu f takmörkuðu uppiagi og þess
vegna sendi þeir ef til vill aðra bók
en nýi áskrifandinn vill helzt. Ef
knattspymumennimir eru uppseldir
þá fæ ég annað hvort „betra kynlíf"
fyrir mömmu eða „nýja konu“ fyrir
pabba.
xxx
Nú stendur yfír sérstök herferð
til tryggingar umferðaröiyggi
og ber þar hæst viðleitni lögregl-
unnar til að draga úr umferðar-
hraðanum.
En fleira er til. Mikil umræða
hefur verið um bflbeitin og notkun
þeirra. Og í þriðjudagsblaði Morg-
unblaðsins vekur Óli H. Þórðarson,
framkvæmdastjóri umferðarráðs,
máls á því, hvort tímabært sé að
huga sérstaklega að traustleika bfla
varðandi innflutning og verðiag.
Segir hann m.a. að við styrkleika-
flokkun kæmi ef til vill í Ijós, að
hingað til lands séu fluttir bílar, sem
annars staðar em bannaðir af því
að þeir em ekki nógu traust farar-
tæki.
Það leiðir af sjálfu sér að til lítils
em bílbelti spennt, ef farþegarýmið
sjálft er ekki nægilega traust til
að standast álagið, þegar óhappið
dynur yfír. Vonandi verða þessi orð
Óla til einhvers fyrst.