Morgunblaðið - 23.10.1987, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 23.10.1987, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 „Er þe.tt<x \ fyrskcL&rv\ Se*n pú sk.itif ? " Þér er óhætt að láta sjá þig, því það hefur enginn hér í húsinu hringt í mein- dýraeyði... Með morgunkaffínu Þetta eru svo nýorpin egg að hœnumar eru ekki einu sinni famar að sakna þeirra... HÖGNI HREKKVÍSI UNGF-rO GUÐRlJN!! " Flytjið góða tónlist í stað- inn fyrir dægurlagagarg Til Velvakanda Það er oft skammast út í sjón- varpið en nú verð ég að hrósa því fyrir ágætan þátt, þáttinn Eins og þeim einum er lagið sem var á dag- skrá sjónvarps miðvikudagskvöldið 14. október. Þar voru kynntir þrír efnilegir óperusöngvarar. Greinilega er þjóðin ekki á flæðiskeri stödd í menningarlegu tilliti, við eigum stór- kostlegt hæfíleikafólk, það kom fram f þættinum á miðvikudagskvöldið. En það kemur á óvart hversu sjald- an heyrist í þeim sem leggja stund á tónlist í alvöru. Poppgargið, skrflmenningin og iágkúran hljómar stöðugt í fjölmiðlunum. Dagskrá nýju útvarpsstöðvana einkennist af und- anrennumúsfk og sjaldan kemur fyrir að þar sé flutt tónlist sem stendur undir nafni. Þess í stað er erlendu og innlendu dægurlagarusli hampað daglega og iátið sem um merkiiega tónlist sé að ræða. Hver áhrif hefur þetta á tónlistarmenningu þjóðarinn- ar til frambúðar? Við 'skulum vona að þessum ósköpum linni áður en langt líður og skrúfað verði fyrir öskurapana og sorpgargið. Ríkisfjölmiðlamir ættu að nota betur fjárhagslega stöðu sfna og veija meiri tíma til að kynna alvar- lega listamenn. Böm og unglingar mega ekki alast upp f þeirri trú að dægurlagagargið sé merkileg tónlist og skrflmenningin sé ffn eða eftir- sóknarverð á nokkum hátt. Við íslendingar eigum stórkostlegt tón- listarfólk sem vakið hefur athygli víða um heim. Hvers vegna veitum við því ekki aukið rými í flölmiðlum okkar? Ó.S. Þesenr hringdu ... íslenski dans- flokkurinn frá- bær Kona í Garðabæ hringdi: „Mig langar til að þakka ís- ienska dansflokknum fyrir frábæra sýningu. Það var mikil upplifun að sjá sýninguna Ég dansa við þig og stóðu dansaram- ir sig með miklum sóma. Egill Ólafsson stóð sig mjög vel og einnig söngkonan Jóhanna Lin- net. Eg vil hvefja íslenska dans- flokkinn til að halda fleiri sýningar." Slæm umgengni í Víðidal Bryndís hringdi: Eg er með hest í geymslu í Víðidal eins og margir aðrir. Að undanfömu hafa verið haldnir þama popptónleikar og hefur umgengni verið fremur slæm, til dæmis em glerbrot víða um svæð- ið. í þessu sambandi langar mig til að koma á framfæri tveimur fyrirspumum. Hver á að greiða lækningakostnað ef hestur særist á hóf vegna glerbrotana þama? Hver ber ábyrgð á því að svæðinu þama sé haldið hreinu og glerbrot fjarlægð?" Reiðhjól Krómað BMX reiðhjól með blá- um hnakk og án afturbrettis var tekið að Gaukshólum 2 fyrir skömmu. Þeir sem hafa orðið var- ir við hjólið em beðnir að hringja í síma 72286. BMX torfæruhjól BMX torfæmhjól, hvítt með svörtum púðum, var tekið fyrir utan veitingastaðinn Barón á Laugarvegi föstudaginn 9. októ- ber milli kl. 17 og 18. Stellnúmerið er 384948. Þeir sem geta gefíð upplýsingar um hjólið vinsamleg- ast hringi f síma 16908 eða 14060. Drengjaúlpa Grá drengjaúlpa tapaðist í ágúst eða september við Laugar- nesveg eða þar í grennd. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 33113. Öf ögur íþrótt Friðrík E. Friðríksson - hringdi: „Eg var staddur á Reykjalundi sl. mánudagskvöld og sá þá held- ur ófagra íþrótt f sjónvarpinu fyrir fréttir. Þama var um einhvers konar fiölbragðaglímu að ræða °g byggðist hún á miklum fanta- skap. Þama spörkuðu menn í andlitið á hveijum öðmm ef því var að skipta og lágu sumir blóð- ugir í valnum. Fólkið sem þama var að horfa á sjónvarpið hafði lítið gaman af þessu. Margt af því þekkir vel afleiðingar svona áverka, hvað þær geta verið þung- bærar. Ég er almennt á móti boðum og bönnum en „fþróttir" sem þessa ætti að banna og þær eiga ekkert erindi í sjónvarp. Menn geta slegist ef þeir vilja en útaf fyrir sig og það er engin ástæða tii að halda sýningar á slíku." Læða Svört og hvít læða er í óskilum. Eigandi hennar er beðinn að hringja í sfma 651993. Svartur högni Híldur hringdi: „Ég er með tveggja eða þriggja mánuða gamlan alsvartan högna í óskilum. Þetta er heimilisdýr, hann er ákaflega blíður, elskuleg- ur og þrifínn. Sfminn hjá okkur er 18905.“ Bröndóttur kött- ur Bröndóttur fressköttur, gulur og hvítur, með grænbláa ól er í óskilum að Kmmmahólum 4. Eig- andi hans er vinsamlegast beðinn að hringja f síma 77267 sem fyrst. Víkverji skrifar Hjá útgáfufyrirtækinu Frjálsu framtaki stendur nú yfír sér- stök áskrifendasöfnun og bók býðst nýjum áskrifendum í kaupbæti. Meðal tímaritanna, sem Fijálst framtak stendur að er bamablaðið ABC, sem er gefíð út í samvinnu við skátahreyfínguna. Ungur vinur Víkveija hafði hug á að gerast áskrifandi og vildi auðvitað njóta boðsins um bók í leiðinni. Þar stend- ur valið milii flögurra bóka. Reyndar er vinur Víkveija á þeim aidri, eins og áskrift að bamablaði ber með sér, að hvorki bókin með leiðbeiningum um gott kynlíf, jafn- vel þótt hún sé eftir dr. Ruth Westheimer, né skáldsögumar um nýju konuna eða hvíta hótelið höfð- uðu til hans. Er þá ein bók eftir: Fimmtán kunnir knattspymumenn. Nú hefur vinur Víkveija engan áhuga á knattspymu, en auðvitað er þessi bók betri en engin. Þannig stendur hans val ekki á milli flög- urra bóka, heldur milli þess að fá eina eða enga. Þannig er alltaf komið fram við okkur krakkana, sagði hann mæðulega, þegar hann rakti Víkveija raunir sínar. Annars em pabbi og mamma voða spennt, bætti hann við. Þeir segja neftiilega í auglýsingunni, að sumar bókanna séu f takmörkuðu uppiagi og þess vegna sendi þeir ef til vill aðra bók en nýi áskrifandinn vill helzt. Ef knattspymumennimir eru uppseldir þá fæ ég annað hvort „betra kynlíf" fyrir mömmu eða „nýja konu“ fyrir pabba. xxx Nú stendur yfír sérstök herferð til tryggingar umferðaröiyggi og ber þar hæst viðleitni lögregl- unnar til að draga úr umferðar- hraðanum. En fleira er til. Mikil umræða hefur verið um bflbeitin og notkun þeirra. Og í þriðjudagsblaði Morg- unblaðsins vekur Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri umferðarráðs, máls á því, hvort tímabært sé að huga sérstaklega að traustleika bfla varðandi innflutning og verðiag. Segir hann m.a. að við styrkleika- flokkun kæmi ef til vill í Ijós, að hingað til lands séu fluttir bílar, sem annars staðar em bannaðir af því að þeir em ekki nógu traust farar- tæki. Það leiðir af sjálfu sér að til lítils em bílbelti spennt, ef farþegarýmið sjálft er ekki nægilega traust til að standast álagið, þegar óhappið dynur yfír. Vonandi verða þessi orð Óla til einhvers fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.