Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 52
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Fréttir sjón-
varpsstöðva:
Aukið fram-
boð hefur
fækkað á-
horfendum
ÁHORFENDUM frétta í sjón-
varpi virðist stöðugt vera að
fækka ef marka má könnun sem
Félagsvísindastofnun Háskólans
gerði um miðjan október. Sam-
kvæmt henni fækkar áhorfend-
um frétta rikissjónvarpsins en
áhorfendafjöldi frétta Stöðvar 2
stendur nokkurn veginn i stað.
Ólafur Sigurðsson fréttamaður
og staðgengill fréttastjóra ríkissjón-
varpsins sagði við Morgunblaðið að
samkvæmt könnuninni horfi nú
færri á báðar stöðvamar á frétta-
tíma ríkissjónvarpsins en þegar
ríkissjónvarpið var eitt með fréttir
og sýni þetta að aukið framboð á
ijölmiðlum hafi ekki orðið til þess
að auka notkunina.
Samkvæmt könnuninni horfa um
og yfir 30% áhorfenda á fréttir
Stöðvar 2 þar sem báðar sjónvarps-
stöðvamar nást en milli 37-49%
horfðu á fréttir ríkissjónvarpsins
og um 17% áhorfenda horfðu á
sama tíma á lok þáttarins 19.19 á
Stöð 2. í mars á þessu ári horfðu
yfír 70% á fréttir ríkissjónvarpsins
en rétt um 30% á fréttir Stöðvar 2.
Sjá nánar á bls. 34.
Brögð að því að ungling-
ar beri kylfur og hnífa
NOKKUR brögð hafa veríð að
þvi að unglingar noti svokallaðar
homaboltakylfur eða „baseball-
kylfur“ sem vopn á jafnaldra
sína. Börnum og unglingum er
kennt að smiða kylfumar í
smiðakennslu sumra grunnskól-
anna. Þá hefur orðið vart við að
unglingar berí hnífa.
Undanfarin ár hafa homabolta-
kylfur verið smíðaðar í Breiðagerð-
isskóla. Foreldrar bama, sem hafa
komið heim með kylfumar, hafa
sumir hveijir átt erfitt með að skilja
tilganginn með smíðinni, enda
homabolti lítt eða ekkert stundaður
hérlendis. Eftir spumingakeppni
grunnskóla, sem haldin var í Bú-
stöðum á miðvikudagskvöld, sáu
starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar
til ungiinga með slíkar kylfur.
Þá hefur einnig orðið vart við
að unglingar sveifli sérstökum
hnífum. Hnífar þessir em með
tveimur sköftum, en einu blaði, sem
Morgunblaðið/Þorkell
Barn í Breiðagerðisskóla smiðaði
þessa kylfu, sem hefur ekki nýst
því ’síðan, enda leggur bamið
ekki stund á horaabolta fremur
en flest önnur islensk böra.
er sagarblað öðmm megin, en egg
hinum megin. Ekki er vitað til þess
að unglingar hafi hlotið meiðsli af
slíkum hnífum enn sem komið er,
fyrir utan að hnífakappamir sjálfír
em með reifaða fingur eftir mis-
heppnaðar sveiflur.
Haraldur Finnsson, skólastjóri
Réttarholtsskóla, sagði að undan-
farið hefði borið óvenju mikið á að
unglingar væm með hnífa. „Það
þykir ekki lengur fínt að hafa venju-
lega vasahnlfa, því nú em unglingar
með hnífa sem virðast eingöngu
gerðir til þess að stinga með," sagði
Haraldur. „Kennarar við skólann
hafa brýnt fyrir þeim að ganga
ekki með hnífa á sér og þeir em
teknir af unglingunum, beri þeir
þá innan veggja skólans. Ungling-
amir fullyrða að þessir hnífar séu
keyptir erlendis."
Sjá bls 2: Spuraingakeppni
grunnskóla: Skólar hætta þátt-
töku vegna óláta unglinga
Jóhann Hjartarson
50% vimiinga duga í 2600 skákstig
FÁI Jóh&nn Hjartarson 50%
vinninga, eða 5 >/2 vinning af 11
mögulegum á alþjóðaskákmótinu
i Belgrad í Júgóslavfu, má búast
við að hann hafi náð 2600 ELO-
skákstigum. Engum islenskum
skákmanni hefur tekist að ná
þessu marki sfðan skákstig voru
tekin upp fyrir um 15 árum en
sennilega má meta árangur Fríð-
riks Ólafssonar fyrir þann tíma
sem jafngildi þessa stigafjölda.
Jóhann er skráður með 2550 stig
en þar em óreiknuð stig hans úr
mótum sumarsins, þ.e. skákmótinu
í Moskvu og millisvæðamótinu í
Ungveijalandi, og segja fróðir menn
að rétt stig hans nú séu 2595. í
mótinu í Belgrad er hinsvegar mið-
að við skráð stig og því þarf Jóhann
aðeins 5 vinninga til að halda raun-
stigum sínum. Hver hálfur vinning-
ur fram yfír það jafngildir síðan 5
ELO-stigum.
Ekki er ljóst hve margir skák-
menn em með 2600 skákstig og
yfír en sennilega em þeir milli 15
og 20 talsins.
Fjórum umferðum er nú Iokið á
skákmótinu í Belgrad og er Jóhann
efstur með 3 vinninga. Fimmta
umferðin verður tefld í dag.
Heimaey VE 1 á siglingu við Vestmannaeyjar.
Mikíð Ijón þegar
eldur kom upp
í Heimaey VE
Vestmaxmaeyjum.
ELDUR kom upp í mb. Heimaey
VE i gærmorgun, þar sem skip-
ið liggur í slipp í Esbjerg i
Danmörku. Mikið tjón varð, en
það er ekki fullkannað. Eldur-
inn kom upp á milliþilfari
skipsins er veríð var að sjóða
þilfarið á efradekki.
Mest tjón virðist hafa orðið f
íbúðum, milliþilfars, en þær
voru allar endurnýjaðar og end-
urbyggðar í Slippstöðinni á
Akureyrí f fyrra.
í viðtali við Garðar Ásbjömsson
útgerðarstjóra Hraðfrystistöðvar
Vestmannaeyja, en hún er eigandi
bátsins, kom fram að Heimaey
væri í mikilli viðgerð og endur-
byggingu í Esbjerg. Verið væri að
slá bátinn út að aftan, setja á
hann perustefni, skipta um spil-
kerfi og sandblása að innan og
utan. Hefði viðgerðinni átt að ljúka
seinnipartinn í nóvember. Eldurinn
virðist hafa kviknað þegar danskir
voru að sjóða nýtt þilfar ofaná hið
eldra á efra dekki. Skemmdir væru
ekki fullkannaðar, en ljóst væri að
tjónið hefði orðið mikið. Þijár íbúð-
ir á millidekki hefðu alveg bmnnið.
Einnig hefði komist reykur og sót
í eldhús og matsal og einnig í brú
skipsins. Garðar sagði lfklegt að
skipið myndi teflast talsvert í
slippnum, nema að slippurinn
danski setti því meiri mannskap í
að gera við skemmdimar, til að
vinna tíma.