Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 Teinæringur Kristins Vigfússonar á siglingu i góðum byr vestan úr Háaleitisforum vertíðina 1918. Kristinn Vigfús- son staðarsmiður Kristinn Vigfússon staðarsmiður. Kristinn Vigfússon staðarsmiður heitir nýútkomin bók sem Guð- mundur Kristinsson á Selfossi hefur skráð eftir föður sínum. Kristinn var sjómaður og smiður og var víða í fremstu röð verka á sínu sviði á Suðurlandi. 630 menn koma við sögu í bókinni en Morgunblaðið birtir hér kafla úr bókinni með leyfi höfundar. „Peningarnir eru í gaflinum“ Þegar foreldrar mínir fluttust niður á Eyrarbakka hafði faðir minn með sér kistugarm, sem hann hafði keypt á upboði eftir Hjört í Bola- fæti. Fannst honum einkennilegt, hvað kistan fór illa á hestinum og sótti niður í annan endann. Um vorið hjó hann hana í eldinn. Nokkru áður dreymdi móður mína einkennilegan draum. Henni þótti hún vera úti á hlaði og sá hrúgu af tölum á jörðinni. Tíndi hún þær upp í svuntuna og bar inn í bæ. Þegar faðir minn hjó í sundur kistugaflinn, þar sem handraðinn var, sá hann sér til mikillar furðu, að út úr honum hrukkú silfurspesí- ur. Kom í ljós að gaflinn var tvöfaldur undir handarðanum. Og þar var leynihólf, fullt af silfurspesí- um og ríkisdölum og var hver peningur saumaður inn í striga. Móðir mín kom út og tíndi pening- ana upp í svuntuna, eins og hún hafði gert í draumnum. Alls voru þetta 190 ríkisdalir. Hafliði, bróðir Þorleifs ríka á Háeyri, hafði lent í Kambsráninu og var dæmdur til ævilangrar fangavistar á Brimarhólm. Hann var lipurmenni og laginn og var því oft hafður til þess að aðstoða lækn- ana. Þannig græddist honum talsvert fé og fór vel með. Þegar heim kom sagði hann engum hvar hann hefði fólgið fé sitt. Sigríður, dóttir hans, spurði hann hvar hann geymdi peningana. „Það segi ég þér ekki. Þú átt vin, þú segir honum, hann á vin, hann segir honum, og svo er búið.“ Nokkrum árum síðar drukknaði hann í fískiróðri, og fundust engir peningar eftir hann. Skömmu síðar kom hann til dóttur sinnar í draumi, og sagði, að peningamir væru í gaflinum. Var grafið í húsgaflinn, en ekkert fannst. Þótti nú ljóst, að hér væri komin kista Hafliða, sem hann hafði kom- ið með frá Kaupmannahöfn og skýring á því, sem hann hefði sagt, að peningamir væm „í gaflinum". Var þeim skipt í banka í krónur með smávegis afföllum, því að þessi mynt hafði verið innkölluð 1874. Notaði faðir minn þá til þess að reisa sér vandaðan bæ með skarsúð- arbaðstofu og kallaði hann Sauðhús af því að Þorleifur ríki hafði haft þar sauðahús. Fyrir norðan hann reisti Þorvaldur, faðir Magnúsar aðventista, síðar lítið timburhús og kallaði Þorvaldseyri. Ólafur Bjama- son keypt: það 1918 og stækkaði. í Sauðhúsum bjuggum við til 1905, er faðir minn keypti Frambæjar- húsið í Litlu-Háeyrarhverfi af Ólafi Sigurðssyni söðlasmið fyrir 700 krónur. Það var reist sem pakkhús um 1870 úr strandeik, en var fljót- lega gert að íbúðarhúsi. Þýzki sjómaðurinn Á vertíðinni 1940 höfðu stórir atburðir gerzt úti í heimi. Evrópu- styrjöld hafði brotizt út um haustið. ísland hafði þá ekki verið hemum- ið, en ófriðarblikan var farin að færast nær, út á Atlantshaf. Skömmu fyrir lok var ég einn morgun snemma staddur niðri á Norðurhellu, en bátar allir á sjó í blíðuveðri. Þá kom hlaupandi til mín unglingspiltur og sagðist hafa fundið sjórekið lík frammi á Kampi, suður á móts við Sporið. Gat hann enga skýringu gefíð á því, hvers vegna hann hefði farið þangað, þar sem hann átti að vera kominn til vinnu sinnar sem landmaður við bátinn. Hann sagðist allt í einu hafa verið gripinn sterkri löngun til þess að ganga fram á Kamp. Og þar hefði hann gengið fram á sjórekinn mann í einkennisbúningi. Fékk ég menn með hest og vagn að sækja líkið. Var greinilegt, að maðurinn hafði fótbrotnað, áður en hann drukknaði. Og örfáum metr- um frá honum fundum við í fjörunni gullúr, sem hann hafði borið. Hann var í einkennisbúningi með þrjár hvítar randir á ermunum. Fluttum við hann heim á vagnin- um og lögðum hann til í hlöðunni. Var héraðslækni, Lúðvík Norðdal á Eyrarbakka, þegar gert viðvart, og kom hann úteftir. Af plöggum, sem fundust á hin- um látna sjómanni, kom í ljós, að hann var frá Dresden í Þýzkalandi. Hann hét Dietrich Karl Netzer og var 59 ára, vélstjóri í þýzka sjóhem- um. Hafði hann sénnilega farist í sjóorustu suður af landinu. Líkkista var fengin austan af Eyrarbakka og hann kistulagður. Einn sjómanna, Þórður í Bjarg- húsum, flutti guðsorð og sálmar voru sungnir. Síðan var kistan flutt austur á Eyrarbakka, þar sem hinn ókunni, þýzki sjómaður var lagður til hinztu hvfldar á lokadag. Ræðismanni Þjóðveija í Reykja- vík var tilkynnt um atburðinn og krafðist hann þess, að sér yrðu taf- arlaust send öll hans plögg svo og fatnaður. En einmitt þá um lokin, 10. maí, steig b'rezkur her á land í Reykjavík. Varð það hans fyrsta verk að handtaka ræðismanninn, svo að óvíst er, hvort honum bárust þau plögg nokkum tíma í hendur. En þegar farið var að taka sam- an föggur þýzka sjómannsins vöktu leðurstígvél hans athygli. Einn við- staddra, Guðmundur Jónsson fyrrum oddviti í Einarshúsi, sagði bezt, að hann hirti þau. Sagðist ekki vita nema einhver vildi nú plampa á þeim á Bakkanum og hengdi þau til þerris í hjalli sínum. Að nokkmm dögum liðnum vom stígvélin farin að þoma og saumar að gisna. Þóttu sólamir einkenni- legir. Var þeim flett í sundur, og kom þá í ljós allþykkur bunki af útlendum peningaseðlum. Þannig hafði þessi óþekkti, þýzki stríðsmaður viljað tryggja sig, ef hann lenti í óvinahöndum og talið víst, að stígvélunum fengi hann allt- af að halda, hvað sem á gengi. (m a/M/ Dregíb uar í Jólahappdrætti Sflfl þ. 3. des. um 10 S0NV SRF-6 ferba- útuarpstæki. Upp komu eftirtalin númer; 1144 13959 39787 44163 47552 48710 59856 103064 105376 115665 Þar sem útsending mlba dróst á langlnn hefur stjórn Sflfl ókuebib, ab sú regla gildi um þennan fyrsta drótt, ab dagsetning greibslu skipti ekki máll. Ef mibi er greiddur uerbur tækib afhent. Dregib uar suo i annab sinn þ.lO.des. um 10 stk. S0NV D-30 ferbageislaspilara. Upp komu eftirtalin númer; 19155 19581 28812 31263 39424 65772 85089 85659 98833 121327 Númer girósebllsins er happdrættlsnúmerib og eftlr er ab draga út 10 rafdrifna lelkfangobflo þ.17.des. og loks 10 MITSUBISHI PflJERO jeppa, 5 stutta og 5 langa, ó öbrum degi Jóla, þ.26 des. Dráttur fer fram f belnni útsendingu á STÖÐ 2 ofantalda daga i þættinum 19:19. Þökkum stubning nú sem fyrr. OEYMIÐl B>EKLINGINN 1877 ÍSAFOLD 1987 J Spariskór handa konum og körlum Leðurstígvél, töskur, hanskar, leðurjakkar. Skóverslun Kópavogs, Hamraborg 3. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI (U) PIOIMEER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.