Morgunblaðið - 13.12.1987, Qupperneq 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
STEINDIR
GLUGGAR
í Selfosskirkju
Við hátíðamessu í Selfosskirkju í dag verða vígðar nýjar
kirkjuklukkur, sem steypar hafa verið í Noregi og um leið
fá kirkjugestir að njóta sex nýrra steindra glugga, sem komu
til iandsins á mánudag frá listiðnaðarverkstæði Oidtmann sbræðra
í Linnich, en það hefur áður unnið fjölda mosaik- og gluggalistaverka
í kirkjur á íslandi. Hefur Fritz Oidtmann unnið undanfama daga að
því að koma gluggunum fyrir í kómum, þremur hvoru megin, fyrir
hátíðamessuna í dag.
Höfundur steindu glugganna er listakonan Halla Haraldsdóttir,
sem var í Linnich til að fylgja verkinu eftir. Tákna íjórir glugganna
stórhátíðimr jól, páska, hvítasunnu og þrenningarhátíðina, en hinir
tveir sýna kvöldmáltíðina og Pétur postula og klett þann sem kirkjan
er byggð á. Stofnendasjóður Elliheimilisins Gmndar gaf í
gluggasjóðinn 500 þúsund krónur í tilefni af 35 ára afmæli Ass í
Hveragerði og bætti Selfossbær upphæð þar við. í þetta sinn em
steindu gluggamir sex, en listakonan hefur gert uppdrætti að
gluggum í alla kirkjuna, sem bíður síns tíma.
Sr. Sigurður Guðmundsson, settur biskup, mun vígja
kirkjuklukkumar, sem gefnar em af ýmsum fyrirtækjum, en
sóknarpresturinn sr. Sigurður Sigurðsson predikar.
Hér með em birtar litmyndir af nýju kirkjuglugunum sex, svo og
af Selfosskirkju í jólabúningi og af höfundi glugganna, listakonunni
Höllu Haraldsdóttur í Þýskalandi.
- E.Pá.
w\mtw I
.w wmn
w*. æuf ■