Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
POTT-
ÞETTAR
PERUR
AGOÐU
m'i 4 :T>] I
Allar RING bílaperur
bera merkið (§)
sem þýðir að þær
uppfylla ýtrustu
gæðakröffur E.B.E.
RING bílaperurnar
fást á bensínstöðvum
Skeljungs
Góður skáldskapur á
alltaf erindi til fólks
- segir Eysteinn
Sigurðsson, sem
gefið hefur út
bók um ævi og
skáldskap Bólu-
Hjálmars
ÚT ER komin bókin Bólu-
Hjálnmr eftir Eystein Sigurðs-
son, bókmenntafrœðing, yfir
300 síðna rit, þar sem fjallað
er jöfnum höndum um ævi og
ljóð skáldsins. Eysteinn segist
ekki vilja kalla þetta ævisögu,
honum finnist hins vegar að
bókmenntaleg ævisaga nái því
nokkuð vel, sem hann er að
reyna að gera í ritinu. Hann
segist hafa haft áhuga á mann-
inum og skáldskap hans í yfir
20 ár eða allar götur frá þvi
að hann var i Háskólanum og
til þessa tímabils megi rekja
það sem nú er út komið á bók.
„Hjálmar er einn af þessum
stóru ljóðskáldum, sem komu upp
á íslandi á 19. öld. Það er eigin-
lega bókmenntasöguleg tilviljun,
að hérlendis kom upp þá hvert
stóra ljóðskáldið á fætur öðru,“
segir Eysteinn. Hann nefnir Jónas
og Bjama og síðar Gröndal,
Steingrím, Matthías og Grím
Thomsen, Stefán G. Stefánsson
og Einar Benediktsson. „Þetta eru
allt menn sem ortu ákaflega góð
ljóð, hver á sinn hátt. Ljóðagerð
á þessum tíma átti sér það sér-
kenni að hún var ákaflega bundin
í formi. Hjálmar er einn í þessum
hópi og það sem ég hef reynt að
gera í þessari bók er að skrifa
allsheijar greinargerð um hann
sem mann og sem 19. aldar ljóð-
skáld,“ segir Eysteinn.
Hann segir að ástæðan fyrir
því að hann taki Hjálmar sérstak-
lega fyrir sem mann sé sú að
margt af hans ljóðum sé tækifær-
isskáldskapur og Hjálmar sé
kannski meira en flest önnur ljóð-
skáld bundinn af umhverfi sínu.
„Helsta niðurstaða mín er sú að
Hjálmar sé miklu tengdari ró-
mantfsku stefnunni, en menn hafá
gert sér grein fyrir og ég sé ekki
rökin til þess að spyrða hann sérs-
taklega við Sigurð Breiðfjörð, sem
alþýðuskáld, eins og bókmennta-
fræðingar hafa gert. Sérstaða
Hjálmars er að hann er bóndi og
sveitamaður og hann er undir
miklu meiri áhrifum frá þeim anda
sem sveif yfír vötnunum á þessum
tfma, en menn hafa til þessa ver-
ið tilbúnir að viðurkenna."
Eysteinn bendir á að eitt ein-
kenni rómantíkurinnar sé aðdáun
á því hrikalega, þar sem veruleik-
inn sé ýktur og andstæðumar
skerptar. Til dæmis verði Hjálm-
ari að yrkisefni ellihrömun sín og
þau ljóð beri þessa skýran vott.
„Að mínu viti er ástæðan fyrir
því hversu mönnum hefur orðið
starsýnt á erfíð lífskjör Bólu-
Hjálmars góð skáldgáfa hans.
Honum tekst að lýsa nöturlegum
veruleika þannig að það vekur
meiri athygli en ella vegna þess
hve gott skáld hann er.“
Hann segist ekki telja að það
hafí haft úrslitaþýðingu fyrir
Hjálmar sem skáld að komast
ekki til mennta. Það sé ekki hægt
að fullyrða um það hvort skáld-
gáfa hans hefði náð að þroskast
betur, ef honum hefði gefíst kost-
ur á að ganga í Latínuskólann eða
nema f Kaupmannahöfn. Hitt sé
víst að hann hafí fylgst vel með
og verið vel lesinn á þeirrar tíðar
mælikvarða.
Aðspurður hvort skáldskapur
Bólu-Hjálmars eigi ennþá erindi
til samtímans, segir Eysteinn:
„Mín kynni af honum em orðin
talsvert löng. Hann hafði sína
galla, eins og aðrir menn, en það
sem ég hef kynnst honum í gegn-
um ljóðagerðina, fínnst mér
ákaflega viðkunnanlegt og mað-
urinn skemmtilegur í viðkynn-
ingu. Auðvitað á hann erindi við
samtfmann. Góður skáldskapur
er sígildur og sígildur skáldskapur
á erindi til fólks á öllum tímum.“
Happdrætti Krabbameinsfélagsins:
KEPPNI MILLI
BYGGÐARLAGA
NÚ stendur yfir sala á miðum f
hausthappdrætti Krabbameins-
félagsins. Dregið verður á að-
fangadag og úrslitin birt f útvarpi
samdægurs. í tílefni happdrættis-
ins athugar Krabbameinsfélagið
og ber saman eftir póstnúmerum
hvernig einstakir hreppar, kaup-
gtaðir og landshlutar gera skil á
heimsendum miðum.
4. desember höfðu Grfmseyingar
tekið forystuna yfír allt landið og
þá strax höfðu 73,5% heimsendra
miða verið greiddir þar. Grímsey-
ingar gerðu einnig best skil í
vorhappdrætti Krabbameinsfélags-
ins. Af landshlutum höfðu best skil
verið gerð á Austurlandi en Suður-
land kom fast á eftir. íbúar Egils-
staða, Eskiljarðar, Vestmannaeyja
og Selfoss stóðu sig best kaup-
staðabúa og af kauptúnum voru
fremstir íbúar Hríseyjar, Breið-
dalsvíkur, Raufarhafnar og Eyrar-
bakka.
Krabbameinsfélagið mun greina
frá lokaniðurstöðum þessa saman-
burðar fljótlega eftir áramót.
VERÐ
KR. 30
PR. STK.*
MINNSTA PÖNTUN
10STK.
Sendu vinum og vandamönnum skemmtilega
og persónulega jólakveðju með jólakorti,
eftir þínum eigin myndum.
JOLAKORT
EFTIR ÞÍNUM
EIGIN
MYNDUM
wsmmmm
Skipholti 31, simi 25177
Austurstræti 6, sími 611788