Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 C 25 Biðröð í Búkarest: erfitt líf. ekki tekizt að fylla framieiðslukvót- ann“ skv. lögum um „sjálfstjóm" fyrirtækja. Framleiðslan í október hafði numið aðeins 80% af því sem að var stefnt og launin voru lækkuð um 20%. Verkamönnunum hafði verið skipað að vinna á sunnudegi og þeir fengu þessar hvimleiðu fréttir þegar vinnu lauk og neyða átti þá til að að fara með strætisvögnum á kjörstað og greiða atkvæði í bæj- ar- og sveitarstjómarkosningum, sem fóru fram þennan dag. I þess stað gerðu þeir uppreisn og gengu fylktu liði til ráðhússins og aðal- stöðva kommúnistaflokksins við aðaltorgið í miðborginni. Starfs- menn tveggja annarra verksmiðja og fleiri borgarbúar bættust í hóp- inn. Þegar mannfjöldinn streymdi inn á torgið skipti hann þúsundum og vopnaðir starfsmenn öryggislög- reglunnar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Verkamennimir veifuðu kröfuspjöldum og hrópuðu „Niður með einræðið!", „Við viljum brauð!", „Niður með kerfið!‘‘ og fleiri vígorð. Inni skáluðu leiðtogar flokksins í borginni fyrir því að hafa fengið 99,8% atkvæða í kosningunum. Aðeins 2.000 kjósenda í borginni höfðu setið heima. Ceausescu lýsti því yflr opinberlega að hann væri „fullkomlega ánægður" með úrslitin og kvað þau „kröftuga yfirlýsingu um byltingarlýðræði verkamanna," en óeirðimar gerðu flokkinn að at- hiægi. Ættjarðarlög Veizla flokksbrodda í sveltandi borg hleypti illu blóði í mannijöld- ann, sem sveið mest að þjórað var óspart í veizlunni, því að erfítt er að komast yfír áfengi í Brasov. Nokkrir verkamenn ruddust inn í flokksmiðstöðina, skáru lögreglu- mann á háls og börðu annan til bana. Síðan rifu þeir niður fána og myndir af Ceausescu og Elenu konu hans og fleygðu þeim ásamt hús- gögnum, skjölum og fleira dóti út um glugga til mannfjöldans, sem kveikti í öllu saman. Með fylgdu appelsínur, sem nóg var af í veizl- unni, þótt þær séu „munaðarvara" í Rúmeníu. Mannfjöldinn kyijaði kunnan baráttusöng frá byltingar- árinu 1848 með viðlaginu „Vakna þú, Rúmenía!“ og söng fleiri ætt- jarðarlög. Mörg hundmð lögreglumenn voru kvaddir á vettvang til að kljást við múginn, en að sögn sjónarvotts virtust þeir halda að sér höndum í fyrstu. Síðan hitnaði í kolunum. Fyrst var bareflum og byssuskeft- um beitt gegn mannfjöldanum, en síðan skotvopnum og táragasi. Ástandið varð svo alvarlegt að fá varð liðsauka hermanna, sem komu brunandi í brynvögnum og lokuðu vegum út úr borginni. Andófsmenn dreifðu sér og flúðu í allar áttir. Uppþotin virðast hafa staðið í allt að sex tíma, en ekki er vitað hve margir verkamenn féllu auk minnst tveggja lögreglumanna. Múgurinn kveikti í a.m.k. einni op- inberri byggingu, velti um bifreið- um og braut rúður verzlana. Borgin var einangruð í marga daga á eftir og mikil spenna ríkir enn í borginni Hermenn hafa verið á verði á mikil- vægustu stöðum. Daginn eftir óeirðimar komu háttsettir flokksstarfsmenn frá Búkarest og vöruðu verkamenn við að vera með meiri uppsteit. Nokkr- um dögum síðar efndu háskólastúd- entar í Brasov til annarra mótmæla gegn Ceausescu. Þeir gengu fylktu liði um miðborgina, báru spjöld með skömmum um hann, hrópuðu vígorð til stuðnings verkamönnum og kröfðust þess að framboð á matvæl- um yrði aukið og óþolandi lífsskil- Nicu: ný staða. yrði bætt. Öryggislögreglan dreifði þeim eftir nokkurt þóf. Leiðtogar verkamannamótmæl- anna í Brasov hafa verið sviptir störfum ásamt yfirmönnum verk- smiðjunnar og verða leiddir fyrir rétt. Einræðisstjóm Ceausescus hefur sjaldan eða aldrei sætt eins mikilli og opinskárri gagniýni. Þetta voru alvarlegustu óeirðir í Rúmeníu síðan 35.000 kolanámu- menn í Jiu-dalnum lögðu niður vinnu 1977 til að mótmæia nýjum eftirlaunalögum og ógreiddri yfír- vinnu og krefjast betri vinnuskil- yrða. Pólskt andrúmsloft Þegar Ceausescu tók upp núver- andi aðhaldsstefnu 1981 mættu margir ekki til vinnu og báru því við að þeir þyrftu að standa í biðröð- um til að kaupa mat. Tveimur árum síðar lögðu um 1.000 verkamenn „Rauða fánans“ í Brasov niður vinnu, þegar laun þeirra höfðu ver- ið lækkuð úr 2.500 leium (9.250 kr.) á mánuði í um 700 (2.600 kr.) vegna nýsettra laga um sjálfstjóm fyrirtækja (fær Brasov svipaðan sess og Gdansk?). í fyrra lokuðu flutningaverkamenn í Árad í Vest- ur-Rúmeníu sig inni í verksmiðju til að mótmæla því að þeir höfðu ekki fengið laun sín greidd og að lítið væri til af matvælum í verzlun- um. Verkamenn í Cluj (Klausen- burg) og Turda mótmæltu einnig launalækkunum og matvæla- skömmtun. „Fólkið er reitt, hungrað og hrætt við öryggislögregluna," sagði erlendur ' stúdent í háskólanum í Brasov eftir óeirðimar. „Mótmæl- endumir urðu fyrir hrottalegri árás og drápu lögreglumann í staðinn." Erlendum stúdentum var hótað brottrekstri, ef þeir minntust á upp- þotin. „Lífíð er linnulaus og örvæntingarfull barátta," sagði ferðamaður, sem kom frá Rúmeníu. „Það fæst ekkert kjöt, bara bein. Síðasti vetur var nógu slæmur, en þessi verður hroðalegur." Erlendur stjómarerindreki sagði: „Rúmenar geta átt von á fleiri slíkum óundir- búnum mótmælaaðgerðum í vetur, því að ástandið heldur áfram að versna, skömmtun á hita og raf- magni verður aukin og matvæla- skorturinn mun magnast." Rúmensk blöð sögðu ekkert frá óeirðunum, en skýrðu frá því skömmu síðar að framboð á mat- vælum hefði verið aukið. Flokks- blaðið Scinteia. veittist að ráðamönnum í Brasov, án þess að minnast á matvælaóeirðimar, og hvatti til „árangursríkrar samvinnu borgara og kjörinna embættis- rnanna." Gamalreyndur flokksleiðtogi úr „innsta hring", Silviu Brucan, líkti andrúmsloftinu við tímann fyrir stofnun Samstöðu í Póllandi 1981 og sagði í viðtölum að mótmælin mörkuðu „þáttaskil". Rúmenskir leiðtogar gætu valið um tvennt: að svara djúpstæðri óánægju með kúg-. un eða einlægum tilraunum til að koma til móts við verkamenn. „Óeirðimar í Brasov sýna að verkamenn hafa fengið sig full- sadda á vömskortinum og sætta sig ekki lengur við að komið sé fram við þá eins og auðmjúka þjóna," sagði Bruscan. „Með síðustu orku- tilskipun er verkamönnum í raun og veru sagt að stytta sér aldur með því að frjósa í hel í rúmum sínum." Hann hvatti Ceausescu til að refsa ekki verkamönnum í Brasov fyrir að mótmæla og sagði að Rúmenía gæti einangrazt frá löndum í austri og vestri, ef of mikil harka yrði sýnd. Brucan gaf til kynna að hann hefði ákveðið að segja hug sinn vegna þess að nú væri kjörinn tími til þess og meirihluti flokksmanna á hans bandi. Hann sagðist ekki óttast að verða handtekinn vegna ummælanna, en viku síðar hvarf hann í heilan dag. Vinir hans urðu kvíðafullir, en þegar hann skaut aftur upp kollinum kvað hann ástæðulaust að vera með áhyggjur. Gatan, sem hann býr við, hefur verið lokuð umferð síðan dularfullt hvarf hans bar að höndum. Ættarveldi Hingað til hafa Rúmenar þótt daufir og framtakslitlir, en þótt jafnvel þeir virðist vera að missa þolinmæðina virðast fréttir um að Ceausescu-ættin sé að falli komin vera orðum auknar. Ceausescu taldi sig svo traustan í sessi að hann fór í áður ráðgerða ferð til Egyptalands átta dögum eftir óeirðimar. Hann hefur lengi predikað bindindi, þótt hann og kona hans séu ekkert bind- indisfólk, og kallaði andófsfólkið „drykkjurúta“ við heimkomuna. Þrátt fyrir áskomn Bmcans virð- ist Ceausescu staðráðinn í að sýna andófsmönnum í Brasov í tvo heim- ana og fara þar með að vilja Elenu, sem er varaforsætisráðherra og illa sokkuð. Forsetinn vill helzt láta birta nöfn allra þátttakenda í mót- mælunum og refsa þeim öllum ekki síður en a.m.k. 80 verkamönnum, sem þegar hafa verið handteknir og eiga yfír höfði sér 5-15 ára fang- elsi fyrir brot gegn 166. grein hegningarlaga um „áróður gegn sósíalistaríkinu". Ceausescu og Elena hafa skipað 35 nána ættingja í valdamikil emb- ætti. Á hveijum degi birta flokks- blöðin myndir af „hinum mikla leiðtoga" og „yfirhershöfðingj a“ og yfirlýsingar frá honum, sem ná yfír margar blaðsíður. En Ceausescu og frú virðast ekki eins hófsöm og lifa ekki eins fábrotnu lífí og látið er í veðri vaka skv. væntanlegri bók Ions Mihai Pacepa hershöfðingja, fv. yfírmanns rúmensku leyniþjón- ustunnar, sem flúði land. Diykkfelldur sonur forsetahjón- anna, Nicu, sem hefur verið talinn hugsanlegur arftaki hans, var ný- lega leystur frá störfum leiðtoga æskulýðshreyfíngar kommúnista. Hann þarf þó ekki að örvænta, því að í staðinn var hann skipaður flokksleiðtogi í Sibiu í Norður- Rúmeníu og hann heldur sæti sínu í miðstjóm. Með þessu vildi Ceau- sescu líklega friða embættismenn, sem reiddust svo mjög síðustu mannabreytingum hans í haust að völd hans hafa í fyrsta skipti komizt í hættu. Tveir ráðherrar, sem Ceau- sescu rak, hafa opinberlega lýst sig ósammála stefnu hans, en slíkt hefur ekki gerzt í rúman áratug. Annar þeirra, Gheorghe Petrescu fv. orkumálaráðherra, er mágur hans. Bróðir hans, Ilie, ræður lögum og lofum í landvamaráðuneytinu. Tengdasonur hans, Ion, er yfírmað- ur áætlananefndar ríkisins. Dóttir hans, Zaioa, stjómar vísinda- og tæknistofnun ríkisins. „Land hljóðnemanna" Ceausescu lýsti fyrir Pacepa þeim draumi sínum að gera Rúmeníu að „landi hinna 10 milljóna huldu hljóðnema" og hefur náð langt á þeirri braut. Að sögn Pacepa líkist hann að sumu leyti Ferdínandi Marcos, fv. forseta Filippseyja, sem hann átti vingott við. Hann telur þá álíka auðuga og segir að Ceau- sescu hafí stofnað leynireikninga í svissneskum bönkum fyrir mörgum árum. Ætt Ceausescus fer ekki dult með aðdáun sína á stalínisma og andúð á glasnost-stefnu Míkhafl Gorbatsjovs. Þegar Gorbatsjov var í Búkarest í vor sagði hann Ceau- sescu að hann væri mótfallinn „persónudýrkun" og lagði áherzlu á galla, sem auðvelt yrði að kippa í lag með perestrojka og glas- nost. Ceausescu lét sem hann tæki ekki eftir þessari ádrepu og virðist enga aðstoð hafa fengið frá Gorba- tsjov. ítarlegar frásagnir af ástand- inu í Rúmeníu hafa birzt í sovézkum blöðum, en Pravda fæst ekki í Búk- arest. Rúmenar virðast hafa meiri áhuga á glasnost en forseti þeirra. Sovézka sendiráðinu hafa borizt bréf frá rúmenskum borgurum, sem biðja um nánari upplýsingar um breytingamar í Sovétríkjunum og vilja sams konar stefnu í Rúmeníu. Stefnubreytingin í Sovétríkjunum hefur haft lítil áhrif í Rúmeníu. Virorel Salagean, ritstjóri Scinteia, sagði nýlega: „Glasnost er ekkert nýtt fyrir Rúmenum. Hugmyndin er okkur gamalkunn." Ceausescu er innilega sammála og breytinga er ekki að vænta meðan hann held- ur völdunum. Þótt hann hafí aldrei notið minna trausts og völd hans hafi aldrei verið eins ótrygg er staða hans sterk og hann getur huggað sig við að eiga stórfé í banka í Sviss. GH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.