Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
C 29
SAKAMALl
Fallinn^
dáðadrengur
Sumarið 1988 verður ekki eins
ánægjulegt í endurminningunni
og David Jenkins kemst áreiðan-
lega ekki hjá því að veija því í
kalifomísku fangelsi. Þar á hann
að sitja fyrir að hafa selt í Banda-
ríkjunum ólögleg lyf, svokallaða
bola, sem íþróttamenn freistast
stundum til að nota, en þeim
smyglaði hann inn frá Mexíkó
ásamt 33 mönnum öðrum.
Þessi ólöglega iðja velti milljón-
um dollara og telja yfirvöld að
Jenkins og félagar hans hafí haft
um 70% markaðarins í sínum
höndum. Eru þessi lyf notuð til
að örva vöðvavöxt þótt sannað sé,
að þau hafí stórhættulegar hliðar-
verkanir.
David Jenkins féllst á fjögur
ákæmatriði af 36 og með sam-
komulagi við ríkissaksóknarann,
Philip Halpem, var hinum 32
sleppt. Lögum samkvæmt gæti
dómurinn hljóðað upp á 16 ára
fangelsi og allt að tveggja milljón
dollara sekt. Verður hann kveðinn
upp 9. maí að ári.
veitt alltof lítil aðstoð, þegar þær
eiga í vandræðum og aðstoðin kem-
ur of seint. Fólk er mjög vankunn-
andi um einföldustu atriði
btjóstagjafar, til dæmis hvemig á
að meðhöndla aumar geirvörtur og
hvemig á að bregðast við, þegar
mjólkin er of lítil. Slíkum vandamál-
um væri hægt að bægja frá
mörgum konum ef þeim væri leið-
beint."
Hún vill að framleitt verði fyrsta
flokks mjólkurduft fyrir þau böm
sem ekki njóta móðurmjólkurinnar
en jafnframt vill hún að komið verði
á fót mjólkurbönkum þar sem
fyllsta öryggis sé gætt. „Þar að
auki þarf að lengja fæðingarorlof
og auka vinnuvemd og bamagæslu
á vinnustöðum," segir hún.
En hvað þá um konur sem hafa
gefið bömum sínum pela annað-
hvort vegna þess að þær hafa ekki
fengið rétta aðstoð eða af því að
þær hafa ekki haft næga mjólk?
Maureen skilur vanda þeirra og vill
forðast að valda þeim kvíða. „Það
þarf að fullvissa þær um að meiri-
hluti pelabarna þrífist vel og
þurrmjólkin þarf alls ekki að hafa
skaðvænleg áhrif. En alltof oft fell-
ur fólk samt í þá freistni að horfa
framhjá áhættunni eða afneita
henni til að komast hjá sektarkennd
og kvíða.“
- HEATHER WELFORD
„Ef ég vil, muntu lifa — Ef
ég vil, verðurðu skotinn“
SJÁ: Ófreskjur
BARNAGULLl
Sumarið 1972 var hann tvítugur að aldri og eftirlæti allra
í Bretlandi, íþróttamaðurinn ungi sem með glæsilegum
endaspretti tryggði landi sínu silfrið í 4x400 metra boðhlaupi
á Ólympíuleikunum í Miinchen.
Jankins, sem er útskrifaður frá
háskólanum í Edinborg og settist
síðan að í Kalifomíu þar sem hann
var með fyrirtæki og seldi
vítamínpillur, var látinn laus gegn
750.000 dollara tryggingu og er
aftur kominn heim í villuna sína
í Oceanside, skammt fyrir norðan
San Diego. Þegar hann stóð
frammi fyrir dómaranum var hann
vissulega sjálfum sér líkur, glaum-
gosalegur, hár og grannur, íjakka
sem íþróttahetjur og ólympíufarar
klæðast gjama en samt leyndi sér
ekki að nú var Bleik brugðið.
Hendumar skulfu, hann spennti
greipar í sífellu og var allur á iði
þegar hann skýrði frá því, að hann
væri á lyfjum vegna þunglyndisk-
asta.
Við yfirheyrslur dómarans,
Lawrence Irvings, skýrði Jenkins
meðal annars frá því að í mars á
þessu ári hefði hann haft afskipti
af lyfjasendingu, sem var seld
fyrir 220—225.000 dollara.
„Ég lét menn fá lykilinn og
sagði þeim hvar þeir gætu fundið
bílinn og lyfín," sagði Jenkins og
dómarinn spurði hvort hann hefði
ekki vitað að þetta væri ólöglegt.
„Jú, herra dómari," sagði hann
og svaraði því einnig játandi, að
fjárvonin hefði ráðið gerðum hans.
„Við fengum 8,25% og 10% hvor,“
sagði hann.
Það var fyrr í sumar, sem lög-
reglan fletti ofan af smyglara-
hópnum sem Jenkins var í og
hafði þá fylgst með afhendingu
og sölu lyfjanna nokkrum sinnum
og hljóðritað samtöl. Smyglið
hófst hins vegar árið 1985,
skömmu eftir að lyfíð Dianobol
hafði verið bannað í Bandaríkjun-
um. Segir í ákæmnni að Jenkins
hafi sjálfur haft samband við
mexíkanskan lyfjaframleiðanda,
John Micklis, en síðan var lyfjun-
um smyglað til Bandaríkjanna
með fölskum merkimiða, sem gaf
til kynna að þau hefðu verið fram-
leidd af kunnum lyfjaverksmiðjum
þar í landi.
Micklis hefur ekki náðst en 25
af 33 félögum Jenkins hafa játað
á sig flestar sakargiftir.
Bolar (anabolic steroids) hafa
lengi verið notaðir eða öllu heldur
misnotaðir meðal lyftingamanna
og annarra íþróttamanna. Telja
læknar, að þeir geti meðal annars
valdið krabbameini, ófíjósemi,
vansköpun og óeðlilegri árásar-
hvöt og er aðeins leyfilegt að taka
þá f samráði við lækni.
- RUPERT MORRIS
Engin friðar-
jól ef marka
má leikf öngin
M
IHong Kong er einhver mesta leikfangaframleiðsla
í heimi og því ekki óeðlilegt að búast við, að á leik-
fangasýningunni, sem þar var haldin nýlega, mætti
sjá úrvalið af því besta, sem bömunum er boðið fyrir
þessi jól.
Leikfangasýningin var ekkert, sem ég vil mæla með við
foreldra, að minnsta kosti ekki við þá, sem hafa dálitlar efa-
semdir um bamagullin nú á dögum. Þeir hefðu bara orðið
leiðir og þunglyndir af að skoða hana.
Þegar ég hafði olnbogað mig framhjá rafknúnum fomald-
areðlum, sem hreyfa höfuðið í sífellu og blikka grænum,
lýsandi augunum, blöstu við mér langar raðir af leisigeisla-
byssum, því allra nýjasta á markaðnum. Það má þó segja
um þessar byssur að þær séu ölhi sakleysislegri en allur
herbúnaðurinn, sem á að gefa litlum strákum þá hugmynd,
að þeir séu raunverulega Rambó. í einni sýningarstúkunni
voru eingöngu plastlíkön af alls konar drápstækjum, þar á
meðal allt það, sem einn kaldur karl þarf til að komast af
|W
í þessum heimi: Sjálfvirkur rifill,
handsprengjur, hnífur og önnur
þarfaþing. „Það getur verið, að
sumum foreldrum líki þetta ekki,“
sagði K.L. Tong, markaðsstjóri
fyrirtækisins, „þetta er gott fyrir
krakkana, þeim fínnst gaman að
þessu."
Fjarstýrða hulduflugvélin, F-19,
var einu sinni mesta leyndarmálið
í bandaríska vamarmálaráðuneyt-
inu, segir fulltrúi Leroy Industries
Ltd., en nú geta krakkamir leikið
sér að henni heima í stofu og látið
hana skjóta ömmu gömlu eða ein-
hvem annan, sem langar til að
kynnast þessu tækniundri.
Einhveijum léttir vafalaust við
að heyra, að bamagullin eru ekki
bara fyrir böm, heldur líka fyrir
fullorðna. Fyrirtæki nokkurt í
Kansas-borg í Bandaríkjunum hef-
ur framleitt borðspil, sem gætu
jafnvel hleypt nýju lífi í uppgjafa
Matador-spilara. Það helsta heitir
Elvis og er leikurinn fólginn í því
að ganga í gengum margt það, sem
Elvis Presley upplifði á sínum tíma,
herskylduna, plötuupptökur og
Hawaii, en ekki, geri ég ráð fyrir,
ömurlega eiturlyfj aneysluna.
Þeir, sem hafa alist upp við að
leikföng séu það sama og lestir
og bangsar, sem geta ekki einu
sinni talað, hvað þá blimskakkað
upp á fólk grænum glymum, verða
fyrir hálfgerðu áfalli, þegar þeir
virða fyrir sér nýjustu leikföngin.
Þau eru þannig úr garði gerð, að
bömin sjálf fá ekkert tækifæri til
að njóta síns eigin ímyndunarafls.
Það er dálítið kaldhæðnislegt,
að flest leikföng með merkinu
„framleitt í Hong Kong“ eru að
hluta smíðuð í Kína þar sem fáir
geta keypt þau. Kínversku bömin
leika sér þess í stað með potta,
pönnur og prik og ef mér skjátlast
ekki þá ljóma þau af ánægju í
leiknum.
Vafalaust reiknast svona þenk-
ingar bara sem nöldur og hvaða
heimili getur líka verið án galdra-
tólanna frá Wing Tai Plastics,
plasthauskúpu á staf og kylfu.
zSTEVE WINE
HINIR OFERJANDI
Nóg komið
af nöldrinu
<
Breski ferðamaðurinn á Krít,
sem kvartaði yfir kúmenkom-
inu í brauðinu sínu og sagði, að
það væri músaskítur, hefur ef til
vill farið í sína síðustu sumarleyfís-
ferð. Ferðaskrifstofumar bresku
em orðnar svo þreyttar á fáránleg-
um umkvörtunum, að þær ætla að
setja saman „svartan lista" yfir
vandræðagemsana.
Svo kann að fara, að þær neiti
að eiga skipti við fólk, sem verður
allt að umkvörtunarefni, enda hef-
ur smávægilegum aðfinnslum farið
sífjölgandi og ferðaskrifstofufólk-
inu finnst mælirinn fullur. Segist
það hvorki hafa fé né tíma til að
sinna þessu ómerkilega kvabbi.
Breska blaðið The Sunday Times
birti nýlega nokkur dæmi um þetta:
+ Kona nokkur, sem var í fríi á
eynni Krít, sendi blaðinu tíu
blaðsíðna bréf þar sem hún lýsti
því með ólýsanlegum hryllingi,
að kolkrabbi eða smokkfiskur
hefði verið borinn fram sem sal-
at.
+ Ferðamaður einn bar sig upp
undan því, að það væri „snjór"
á skíðastaðnum Engelberg I
Sviss.
+ Bretar, sem vom í fríi í Aumacao
de Peva í Algarve, reiddust því,
að þýskir ferðamenn skyldu
verða fyrri til að ná öllum sund-
laugarstólunum.
+ Hjón, sem vom í Hersonisson á
Krít, kvörtuðu hástöfum yfír
þvi, að sólin feldi sig á bak við
skýin og hitastigið væri aðeins
fjómm gráðum hærra en í Eng-
landi.
Sumar ferðaskrifstofumar hafa
komið sér upp sínum eigin listum
yfir verstu nöldurseggina. Harry
Chandler, sem rekur Ferðaklúbbinn
í Upminster í Essex, hefur til dæm-
is á sinni skrá nöfn 100 manna,
sem hann vill ekki eiga nein við-
skipti við.
„Fólk er orðið vandfysnara, en
margir ganga líka á lagið og mis-
nota kerfið. Það fer óskaplegur tími
í einskisvert kvabb og þá vilja
stundum verða útundan umkvart-
anir, sem eiga fullan rétt á sér.
Það er full þörf á einum yfirgrips-
miklum „svörtum lista", segir
hann.
Edward Montague, píanósali í
Berkhamsted í Hertfordshire, sem
nýlega bar fram kvörtun við Ferða-
klúbb Chandlers, segist þó ekki
hafa neinar áhyggjur af „svörtum
lista". Umkvörtunarefnið hans
Montague var það, að þegar hann
var að koma heim frá Mallorka
fékk hann rækjukokkteil en ekki
reyktan lax.
„Þetta er kannski smámál en það
á rétt á sér líka. Ég kippi mér
ekki upp við að lenda á „svörtum
lista", ég hélt ég væri að gera þeim
greiða með því að vekja athygli á
þessu," segir hann.
í fyrra kostuðu kvartanimar
breskar ferðaskrifstofur 20 milljón-
ir punda og á þessu ári hefur
Sambandi breskra ferðaskrifstofa
borist 13.000 umkvartanir — 29%
aukning frá í fyrra.
Kvörtununurn hefur fjölgað í
takt við fjölgun pakkaferða en
ferðaskrifstofufólkið kennir einnig
um neytendaþáttum í sjónvarpi og
tímaritum þar sem almenningur er
hvattur til að kvarta.
- GEORDIE GREIG