Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 33

Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 G 33 Ljósmynd/Guðjón Einarsson Frá pressuballi árið 1966. Til vinstri eru hjónin Álfbeiður Guðmundsdóttir og Kmil Bjömsson sem þá var formaður BÍ, síðan eru heiðursgestimir Helle Virkner og Jens Otto Krag, og loks Sigurður Bjarna- son þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins og Ólöf Pálsdóttir eiginkona hans. Innfluttur humar frá Danmörku Af gullöld pressuballanna PRESSUBÖLL voru lengi áberandi þáttur í þjóðlífinu, sérstaklega á 7. áratugnum þegar ýmsir þekktir erlendir stjórnmálamenn þekktust boð Blaðamannafélags Islands um að verða heiðursgestir. Þessi böll vorú einn aðalviðburðurinn í samkvæmislífi Reykvíkinga og var jafnað við áramótafagnaðina á Hótel Borg. Pressuböll voru haldin allt frá 5. áratugnum og voru einskonar árshátíð Blaðamannafélagsins. Þar var talvert mikið við haft og sóttu þessar samkomur margir brodd- borgarar bæjarins. Þó fór svo að Ólyginn sagði. . . „Nú virðist mér að talsvert sé farið að sækja í gamla horf- ið, einkum í sambandi við hina svokölluðu rannsóknarblaða- mennsku, sem byggist talsvert á reglunni „ólyginn sagði mér“. Áður fyrr var margt af því, sem nú nefnist rannsóknarblaða- mennska, hins vegar kölluð æsifréttamennska." Þórarinn Þórarinsson í viðtali við Blaðamanninn. Gera betur „Blaðamenn eiga að leitast við að leyfa fólki að mynda sér skoðanir. Þar verða þeir sífellt að reyna að gera betur. En blaðamenn eru upp til hópa betri fagmenn en áður. Kannski skrifa þeir ekki eins fallegt mál og sumir eldri blaðamenn gerðu...“ Ómar Valdimarsson í viðtali við Blaðamanninn. Ijósmynd/Guðjón Einarsson Kristján Eldjám, sem þá var nýkjörinn forseti íslands, var heiðurs- gestur á pressuballinu 1968 en þá var jafnframt minnst 70 ára afmælis félagsins. Fremst á myndinni em Atli Steinarsson, Kristin Halldórsdóttir, Kristján Eldjárn, Guðrún Vilmundardóttir, Vilhjálm- ur Þ. Gíslason og Tómas Karlsson. Fyr sti kj ara- sflmninguriTiri Árið 1946 sömdu blaðamenn og útgefendur fyrsta sinn formlega um kaup og kjör. Fram að því hafði aðeins verið spjallað yfír kaffíbolla um launahækkanir og yfírleitt tekið mið af almennum launahækkunum í landinu. Almennir blaðamenn fengu í árslaun kr. 6.000 og upp í kr. 7.800, fréttastjórar og aðrir yfírmenn fengu kr. 7.200 til 9.600 og ritstjórar kr. 10.200. Séu þessar tölur lauslega fram- reiknaðar til þessa árs ættu árslaun almenns blaðamanns að vera kring- um 8 milljónir. Var tekið mið af byggingavísitölu gegnum árin og má auðvitað deila um þá aðferð. Nokkuð mun vanta upp á þessar 8 milljónir og fara launin reyndar ekki yfír hálfa milljón. Blaðamenn með framhaldsmenntun hafa kring- um 600 þúsund í árslaun og yfírmenn aðrir en ritstjórar um og yfír 700 þúsund. Nokkrar stéttir ríkisstarfsmanna höfðu á þessum árum svipuð laun og almennir blaðamenn. Má þar nefna ríkislögregluþjóna, fanga- verði, tollverði, heilsuvemdarhjúkr- unarkonur og kennara héraðsskóla. Þá höfðu ráðherrar kr. 15.000, pró- fessorar 14.000 og yfírlæknar kr. 11.100 í árslaun. I dag eru árslaun þeirra síðasttöldu kringum 1,5 m. kr. í þessum fyrsta kjarasamningi eru engpn ákvæði um vinnutíma. Litið var svo á að menn ynnu á degi hveijum og viku hverri eins og þyrfti til að koma blöðunum út. Sumarleyfi var 12 dagar og 18 Ljósmynd/Guðjón Einarsson Einar Ágústsson þáverandi utanríkisráðherra var heiðursgestur á pressuballinu sem Bernadette Devlin mætti ekki á. Þessi mynd er af háborðinu og sjást þar ýmsir þekktir blaðamenn. áhuginn dofnaði og árið 1964 var rætt um það í stjóm félagsins að leggja pressuböllin niður. Þá var reynt að fá einhvem kunnan útlend- ing til að setja svip sinn á hátíðina en mistókst. Árið 1966 þekktist Jens Otto Krag, þáverandi forsætisráðherra Dana, boð um að koma á pressu- ball ásamt eiginkonu sinni, Helle Virkner. Heimsókn þeirra hjóna vakti gífurlega athygli og segir í skýrslu^ Emils Bjömssonar form- anns BÍ. um starfsárið 1965-66 að þetta pressuball hafi aflað óvenju mikilla tekna í félagssjóð þótt kostnaður hefði verið tiltölulega mikill. í skýrslunni minnist Emil einnig á ýmsar óánægjuraddir vegna pressuballanna og segir þær aðal- lega vera frá þeim sem sátu heima. „En því meira sem talað er um pressuböllin því meiri auglýsing er það fyrir þau, eins og það sem sagt er til að hæðast að snobbinu sem þeir kalla svo. Engar samkomur í bæjarlífinu hafa verið umtalaðri en þessar síðan þær hófust og engar betur sóttar og svo mun verða." segir orðrétt i skýrslunni. Pressuballið árið eftir var jafiivel enn betur heppnað. Þá var Edward Heath, þáverandi formanni breska íhaldsflokksins og síðar forsætis; ráðherra Breta boðið á ballið. í fundargerðarbók BÍ má lesa eftir- farandi: „Stjóm BÍ tók á móti honum á Keflavíkurflugvelli að- faranótt föstudagsins. Heath fór síðan í bæinn með breska sendiher- ranum og bjó hjá honum meðan heimsóknin stóð yfír. Hann heim- sótti forseta íslands, forsætisráð- herra og utanríkisráðherra. Erindi hélt hann í sjómannaskólanum fyrir 250 áheyrendur. Var erindið um „Hina nýju Evrópu" og fékk góðar viðtökur. BÍ gaf honum áletraðan silfurhníf að skilnaði. Tæplega 300 gestir voru á Pressuballinu. Matur hafði verið sérstaklega pantaður og t.d. humar fenginn frá Danmörku. Súlnasaiur- inn var sérstaklega skreyttur. Skemmtikraftar höfðu verið fengnir 14 fóstbræður og ómar Ragnarsson með sérstakt prógramm fyrir ballið. Heath flutti ræðu kvöldsins. Vakti ballið sérstaka lukku." Fleiri gestir komu á pressuböll, eins og Per Hækkerup utanríkisráð- herra Danmörku. Böllin vora enn hápunkur samkvæmislifsins en þær raddir gerðust háværari að snobb í kringum þau væri of mikið. Það má síðan segja að örlög ballanna hafí ráðist árið 1971. Þá var norð- ur-írska þingmanninum Bemedette Devlin boðið á ballið, en hún hafði fyrr á árinu verið kjörin á breska þingið, aðeins 22 ára gömul og vakið heimsathygli. Devlin þekktist boðið og vakti fyrirhuguð koma hennar hingað mikla athygli og jafnvel deilur. Gjafír til hennar fóra að streyma til Blaðamannafélagsins og vora þær af ýmsu tagi, þar á meðal gjafabréf á lopap>eysur. En rétt áður en Devlin átti að stiga upp í vélina til íslands hætti hún við, og var sagt að það hefði verið vegna þrýstings frá íslandi. Ballið var samt haldið en hafði auðvitað sett ofan og svo fór að pressuball var ekki haldið eftir þetta í þessari mynd. Raunar var skoðanakönnun meðal félagsmanna í BÍ ári síðar um hvort leggja ætti pressuböll nið- ur og var það fellt. Um tíma var reynt að fá Edward Kennedy á pressuball en það mistókst. Stungið var upp á ýmsum fleiri nöfiium en af frekari heimsóknum erlendra gesta á pressuböll varð ekki og lögðust þau síðan af. GSH dagar fyrir þá sem vora með 10 ára starfsaldur eða lengri. Síðar er reynt að stemma stigu við óhóf- legri vinnu. í samningi frá árinu 1954 er sérstök grein þar sem seg- ir svo: Ritstjórar hlutist til um, að vinna komi sem jafnast niður á blaðamenn hvers blaðs, einkum að því er snertir kvöld- og næturvinnu. Þá er sumarleyfi komið í 15 og 20 daga og það ár kemur líka inn ákvæði um aukafrí. Er þeim er unnið hafa 5 ár (og síðan fimmta hvert ár frá því) veitt þriggja mán- aða frí á fullum launum (sumarfrí ársins innifalið) og skal það notað til utanfarar eða á annan hátt í því skyni að auka hæfni sína í starfinu. Þetta ákvæði er komið inn sem uppbót á yfirvinnu sem ekki var greidd á þessum áram. Leyndar upplýsingar Eftirfarandi tillaga sýnir að blaðamenn hafa stundum átt erfltt með að fá ýmsar upplýsingar frá hinu opin- bera: Almennur fundur í Blaða- mannafélagi íslands haldinn 8. desember 1946, lítur svo á, að það geti oft reynst skaðlegt að ganga í gagnstæða átt við það sem ætlað er, þegar opinberir embættismenn halda leyndum uppiýsingum um mikilsverð mál, sem almenning varðar. Telur félagið, að jrfírvöld eigi oft að leita frekari samvinnu við blöð og almenning en gert er, því að það má þá verða til þess að skjótari lausn fáist en ella á þeim málum, sem til rannsóknar eru. Hersteinn Pálsson ívar Guðmundsson Benedikt Gröndal Jón Bjamason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.