Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 40
40 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Stjömuspekingur! Ég bið
þig um að segja mér helstu
persónueinkenni mín og e.t.v,-
hvemig afstöður stjamanna
í vetur hafa áhrif á mig.
Skv. öllu er ég fædd í Fiska-
merkinu en á oft bágt með
að trúa því. Mér finnst ég svo
ólfk merkinu! Með kveðju,
Auður.“
Svar:
Þú hefur Sól, Merkúr og
Mars í Fiskum, Tungl i
Meyju, Venus í Hrút, Krabba
' Rísandi og Steingeit á Mið-
himni.
Ólik viðhorf
Nú veit ég ekki nákvæmlega
hvað það er við Fiskamerkið
sem þér finnst þú ekki kann-
ast við. Ég hef tekið eftir þvi
að þegar sum merki eru ann-
ars vegar þá fær fólk em-
hveija ákveðna lýsingu á
heilann, en önnur merki
sleppa. Sem dæmi má nefna
að neikvæðar hliðar Sporð-
dreka og Tvíbura virðast
festast við merkið, en nei-
kvæðar hliðar Nauts eða
Vogar svo dæmi séu tekin
virðast vekja litla athygli.
Einstaklingsfrávik
Við þurfum að hafa i huga
þegar við lesum lýsingu á
ákveðnu merki að ekki er
ætlast til að allt sem þar
stendur eigi við um hvem
einstakling. Hin merkin td.
breyta áherslum til og frá.
Fordómalitil
Ég tel þig vera í Fiskamerk-
inu að því leyti að þú reynir
að vera viðsýn og fordóma-
laus og hefur góða aðlögun-
arhæfiii. Þú ert næm og
hefúr áhuga á tónlist, hefúr
gaman af því að dansa og
hefúr áhuga á öllu sem er
dularfulit og órætt Að öllu
jöfiiu ert þú síðan þægileg
og Ijúf manneskja í um-
gengni, friðsöm og skiln-
ingsrík.
Jarðbundin
Þú hefur einnig sterkt ímynd-
unarafl og myndræna
hugsun, en síðan kemur það
sem líkast tii hefúr ruglað
þig í ríminu, eða Tungl í
Meyju. Það táknar að þú ert
einnig jarðbundin og átt til
að vera smámunasöm og
stundum gagnrýnin. Meyjan
táknar að i daglegu iifi vilt
þú röð og reglu og skipulag
á málum þínum.
Braðingur
Fiskur og Meyja em andstæð
merki. Þegar þau birtast í
einni og sömu manneskjunni
þá hljóta þau að kalla á mála-
miðlun og einhveija tog-
8treitu. Útkoman getur síðan
orðið einhvers konar bræð-
ingur, sem er hvorki Fiskur
eða Meyja.
Félagslega opin
Venus í Hrút táknar siðan
að þú ert opnari félagslega
og tilfinningalega heldur en
gengur og gerist með Fiska-
merkið. Steingeit á Miðhimni
táknar síðan að þú hefur
þjóðfélagslegan metnað og
leggur áherslu á að vera
ábyrg og skipulögð í starfi
og út í þjóðfélaginu.
Viöburöarikt ár
Krabbi Risandi vísar til þess
að þú ert nærgætin, um-
hyggjusöm og hjálpsöm
persóna. Afstöður í korti
þínu, þ.e. Merkús/Mars í
mótstöðú við Plútó, gefa þér
síðan ákveðinn og ráðríkan
tón, bæði í hugsun og fram-
kvæmdum. Hvað varðar
næsta ár má segja að Úranus
og Satúmus á Sól gefi til
kynna ár breytinga og bylt-
inga, en jafnframt ár vinnu
og endurmats. Eða í fáum
orðum, ár uppbyggilegrar
nýsköpunar.
GARPUR
ÉG Eg WNU/Z ByLTIN6#RlhJNAR
AWCLU/ éG 8ARÐIST GE6N r
Han&r/ucLi syiE&A&óno
06806/1 HTÁ /VfANA8lfZTU!
TOMMI OG JENNI
UÓSKA
HVEKKJIG IMVNDII?
tpö LVSA M3ÓUA-
FERDINAND
YES, 5IR,MR.PRINCIPAL..
l'VE COME TO A5K VÖU
T0 C0N5IPER PATRICIA
FOR ‘‘MAV QUEEN"
j
Já, herra skólastjóri, ég
kom til að biðja þig að at-
huga hvort Kata geti verið
„Maídrottning".
IT OJOULP /WAKE
MER VERY UAPPV. 5IK
Það myndi gleðja hana
mjög, herra.
VOU 5H0ULP SEE MEK
UUITM FL0WER5 IN MEK
MAIR..SME LOOKS
VERV VERV QUEENLV...
s
Þú ættir að sjá hana með
blóm i hárinu ... hún er
mjög drottningarleg ...
SMÁFÓLK
EXC EPTOF COURSE,AFTEK
5ME'5 WALKEP TO
5CH00L IN THE RAIN..
Nema auðvitað þegar hún
hefur gengið í rigningu í
skólann____
BRIDS
llmsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í tvímenningi er oft réttlætan-
legt að hætta spili fyrir yfirslag.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 85
▼ ÁDG105
Vestur ♦ D4 ♦ G873 Austur
♦ 1062 ♦ ÁKG43
♦ 642 II ♦ 83
♦ K953 ♦ 10762
♦ D106 ♦ 52
Suður
♦ D97
VK97
♦ ÁG8
♦ ÁK94
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 grand
Pass 2 tíglar Pass 2hjörtu
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Norður yfirfærði fyrst í hjarta
og stakk svo upp á þremur
gröndum. Þrátt fyrir þrílit í
hjarta valdi suður að sitja í
gröndum, þar eð hann átti jafna
skiptingu til hliðar.
Vestur kom skiljanlega út
með fjórða hæsta tígulinn og
drottning blinds átti fyrsta slag-
inn. Sagnhafi getur nú tekið nfu
slagi og pakkað spilunum sam-
an, en hann áleit sið lítið fengist
fyrir að vinna þijú grönd einung-
is slétt. Sennilega væru flest
NS-pörin í þremur gröndum, þar
sem tíu slagir f það minnsta eru
upplagðir. Svo hann ákvað að
reyna að fría laufið, þrátt fyrir
veikleikann í spaðanum — spil-
aði strax laufí á nfuna heima.
Vestur sá að lítil framtíð var
í tíglinum, svo hann skipti yfir
í spaðatvist. Og nú var komið
að austri. Hann drap á ásinn og
spilaði smáum spaða til baka!
Suður gat nú stungið upp drottn-
ingu og stolist heim með 11
slagi, en hann ákvað að spila
vestur upp á kónginn þriðja í
spaða og reýna að stífla litinn.
Lét því lítinn spaða og spilið fór
tvo niður.
Suður var ekki alveg sam-
kvæmur sjálfum sér í spila-
mennskunni. Fyrst hélt hann —
kannski réttilega — að lítið feng-
ist fyrir að vinna þijú grönd
slétt, hefði hann átt að leggja
allt í sölumar fyrir yfirslagina.
Þegar allt kemur til alls er hann
kominn niður í nfu slagi ef vest-
ur á spaðakónginn þriðja.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
I júgóslavnesku deildakeppn-
inni í ár kom þessi staða upp í
skák stórmeistaranna Predrag
Nikolic, sem hafði hvftt og átti
leik, og Bojan Kurajica. Svarta
staðan er orðin nokkuð losaraleg
og eftir næsta leik hvíts hrundi
hún til grunna.
32. Hxe6! - Dd7, 33. Hxe8-l- -
Hxe8, 34. Hd4 og svartur gafst
upp, því mannstap er óumflýjan-
legt.