Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 43

Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 C 43 Ný tónlist fyrir klarinett SPOR í RÉTTA ÁTT Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Spor í rétta átt. Höfundur: Gunnhildur Hrólfsdóttir. Kápuhönnun: Birgir Ingimarsson. Prentverk: ísafoldarprentsmiðja hf. Útgefandi: ísafold. Við þetta sögusvið kannast ég mæta vel úr starfí mínu sem prest- ur. Maríanna, Marí, er 16 ára stelpa og að hefja nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Námið gengur illa og veldur tvennt: Hið fyrra, að heimili hennar er í rúst, hið síðara, að líkami hennar er þroskaðri en sálin. Fyrir um 4 árum hafði fjölskyld- an lent í bílslysi. Hjörtur, faðir Marí, slasaðist illa, svamlaði síðan um í pytti sjálfsmeðaumkunar, þar til hann var kominn í hjólastól, neit- aði að leita sér lækninga, naut þess að þjást og þjá aðra. Jóhanna, móðir Marí, hafði setið við stýrið er slysið varð. í fyrstu kvaldi sjálfsásökun hana, þar til þreyta Gunnhildur Hrólfsdóttir hennar varð slík, að hún steypti sér líka í pytt sjálfsmeðaumkunar, og greip því fegins hendi að flýja í faðm flagara, er fann í henni auð- velda bráð. Nú, svo var það kroppurinn. Eins og unglinga hendir varð Marí bál- skotin í pilti, en eins og dæmin mörg sanna, þá réð skynsemin litlu, sá var mestur í hennar augum, sem djarfastur var í orðum og fjölþreyf- inn um lær og brjóst, svaka karl, Raggi. Um þetta botnfall dreymdi hana, gat ekki lært af ást, og hvað varðaði hana um, þó allir aðrir, nema náttúrlega sumar stelpnanna, sæju ekki í honum annað en partí- gepil, ónytjung? Heilladísir Marí leiða hana þó frá því að ánetjast gerpinu. En svo er það, að hún kemur að móður sinni, í yfírvinnu, í faðmi Blómdals. Þá ríkur hún að heiman, austur á Homafjörð og heldur í bamaskap, að vandamálin verði flú- in, skilur ekki, að þau verður að leysa á heimahlaði. Stutt verður í dvölinni eystra. Hún kemur heim, og með hjálp Amar, eins af gæða- piltum skólans, tekst henni að stinga á kýli fjölskyldulífsins og ná takti við sjálfa sig og námið. Mér fínnst höfundur segja söguna lista- vel, baráttu Marí lýst af skilningi, afbrýði hennar útí „fitubolluna" Möggu Betu og hversu auðveldara henni er að koma auga á flísina í auga móður sinnar en bjálkann í sínu eigin. Já, því er meistaralega lýst, hvemig hún áskar foreldrana um uppgjöf, en er þó á þanspretti undan erfiðleikunum sjálf. Riddari hvíta hestsins, Om, gengur að hlið heilladísa hennar og það er hægt að fullyrða, að Marí tekur spor í rétta átt. Spenna er í stílnum, nú skeður það á næstu síðu, hugsar lesandinn, og sannfærður er ég Um, að unglingum verður þetta holl lesn- ing, sjái sjálfa sig í Marí. Þetta er því góð bók. Höfundur, sem er á hraðri uppleið, hefir tamið sér agaðri vinnubrögð og á þakkir fyrir. Próförk vel lesin, aðeins eitt s vantar á síðu 7. Kápumynd er full af Qöri og æskuþokka. Prentverk allt til sóma. Þökk fyrir góða bók. Hljómplötur Egill Friðleifsson Fyrir nokkrum dögum barst mér í hendur hljómplata, er ber titilinn „Ný tónlist fyrir klarinett". Þar er að fínna þrjú tónverk fyrir klarinett, sem öll eru samin á síðustu árum og leikin af Sigurði I. Snorrasyni ásamt Sin- fóníuhljómsveit íslands og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleik- ara. Á hlið I er klarinettukonsert eftir Pál P. Pálsson er hann samdi fyrir Sigurð I. Snorrason árið 1982 og frumfluttur var í janúar árið eftir af Sigurði og Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjóm höfundar. Á plötunni eru flytjendur þeir sömu. Verkið skiptist í þijá þætti. Hinn fyrsti hefst á íhug- ulu eintali klarinettunnar en brátt grípa strengifnir tónhendinguna á lofti og bera áfram undir þungum höggum pákunnar, en hljómsveitin öll fæst síðan við að vinna úr steflaefninu með flörlegu flögri klarinettunnar. Stef annars þáttar er angurvært en þar er einnig vitnað í fallegt austurrískt lag, en þaðan er höfundur ættaður og þar stundaði einleikarinn nám. Uppistaða lokaþáttarins er fom gregoríanskur sálmur sóttur úr Þorlákstíðum og er látinn njóta sín í einfoldum búningi og líður áfram í hátíðlegri, upphafinni ró. Konsertinn er mjög áheyrilegur og auðskilinn, enda næsta hefðbundinn í framsetningu. Sigurður I. Snorrason er góður hljóðfæraleikari. Hann hefur fallegan tón og spilar konsertinn yfír- vegað í góðri samvinnu við hljómsveit og stjómanda. Á hlið II verða fyrst fyrir okkur „Ristur" fyrir klarinett og píanó eftir Jón Nordal er hann samdi árið 1985 fyrir þau Sigurð og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, sem hér leikur á píanóið. „Ristur" skiptast í þijá stutta þætti þar sem sá fyrsti og síðasti bera með sér skyldleika hvað varðar efni og úrvinnslu, en miðkaflinn myndar andstæðu með yfirbragði göngulags- ins. Verkið er einfalt að gerð dregið ákveðnum, vafningalausum dráttum. Síðara verkið á hlið II nefnist „Stef- laus tilbrigði" eftir austurríska tón- skáldið Wemer Schulze og er samið árið 1982. „Steflaus tilbrigði" samanstendur af níu ólíkum þáttum, þar sem okkar kæra gamla „Liljulagi" bregður óvænt fyrir. „Steflaus tilbrigði" em skemmti- leg áheymar og em hér, líkt og „Ristur", prýðilega flutt af þeim Sig- urði I. Snorrasyni og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur. Tónmeistari er Bjami Rúnar Bjamason og er ekki annað að heyra en fagmannlega sé að tæknivinnu staðið. Frágangur plötunnar er vand- aður og smekklegur. BÝÐUR EINHVER BETUR? MICROSOFT WINDOWS MEÐ ÍSLENSKUÐU LYKLABORÐI FYLGIR PCX FRÁ KR. 59.850 TÖLVUTÆKI - BÓKVAL, KAUPVANGSSTRÆTI 4, AKUREYRI, SlMI (96)26100 TÖLVUVÖRUR HF, SKEIFAN 17, REYKJAVÍK, SlMI (91)687175 TARGET FRÁ KR. 106.875* PCA FRÁ KR. 106.875* HANS PETERSEN HF TÖLVUDEILD AUSTURVERI HÁALEITISBRAUT 68 !OB REYKJAVÍK SÍMI:91-31555 & 35201

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.