Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 62
ai\ rv
62 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
-\
fclk í
fréttum
Larry Hagman mætti til að gleðja vinkonu sina, Nancy, í miðjum jólaundirbjúningnum. Bak við þau
stendur kokkurinn hógværi, Harry Haller.
Bubbles horfir ásthrifnum augum á Bubbles og smellir á hann kossi.
BUBBLES
SjáJfumglaður
apaköttur
HVÍTA HÚSIÐ
Jólaimdirbúningiir
Pegar fer að líða að jólum tekur
lífið í Hvíta húsinu
stakkaskiptum. Forsetafrúin Nancy
skreytir hýbýlin hátt og lágt svo
hvergi sést í auðan blett og
framfylgir jólasiðum fjölskyldunnar
í ystu æsar því í löngu og giftusömu
hjónabandi hennar og Ronalds hafa
skapast alls kyns jólavenjur sem
eru þeim sem lög
Fýrst og fremst er það sjálft
jólatréð sem þau sækja á búgarðinn
sinn í hinni sólríku Kalifomíu. Áður
fyrr hjó Ronald tréð sjálfur en hefur
nú eftirlátið öðrum viðvikið. Tréð
er um 3 og V2 m á hæð og það
skreytir Nancy sjálf með smá hjálp
frá þúsundþjalasmið hússins.
Reyndar er ekki alveg víst að hún
treysti sér til þess að príla upp
snarbrattan stigann þetta árið til
að setja englahár og jólakúlur á
tréð þar sem hún hefur ekki alveg
náð sér eftir bijóstauppskurðinn
fyrr í haust. Það mun gleðja hina
yngri meðlimi fjölskyldunnar mjög
því þeir hafa alltaf verið mjög
mótfallnir príli móður sinnar í
jólaumstanginu.
Auk jólatreáins eru grenigreinar,
jólarósir og glæsilegar skreytingar
um allt hús, annað kemur ekki til
greina segir forsetafrúin. Risavaxið
piparkökuhús er alger nauðsyn,
annars er engin jólastemmning hjá
Qölskyldunni. Og til að menn geti
nú dáðst að húsinu frá öllum hliðum
er því stillt upp fyrir framan spegil.
Nancy segist ganga í bamdóm
um jólin og gladdist því innlega
þegar vinur hennar, Larry Hagman
birtist í miðjum jólaönnunum í
jólaveinagerfí og heilsaði upp á
hana, en þá vom þessar
skemmtilegu myndir teknar.
Piparkökuhúsið er engin
smásmíði.
Nancy lætur sig ekki
muna um smápríl til að
hlaða skrauti á jólatréð.
Michael Jackson og hans besti
vin, apinn Bubbles, hafa nú
hafið framleiðslu á leikfangadýmm
sem em unnin upp úr hugmyndum
poppgoðsins. Meðal þeirra má nefna
slönguna Vöðvabúnt, Lúlla
lamadýr, gíraffann Jabbar og síðast
en ekki síst apann Bubbles. Sjálfur
er Bubbles hrifnastur af eftirmynd
sinni svo mun reyndar vera um allt
það sem honum líkist. í hvert sinn
sem hann rekst á mynd af sér eða
verður litið í spegil, rýkur hann til
og smellir rembingskossi á ímynd
sjálfs sín. Michael verður að láta
sér lynda annað sætið og fer engum
sögum af skoðun hans á
sjálfselskunni í apakettinum.
BOB GELDOF
Rekur upp reiðióp
Rokkarinn Bob Geldof, sem frægari er fyrir fjáröflun til hjálpar svelt-
andi fólki í Afríku en tónlistarferil sinn, gengur ekki um syngjandi
þessa dagana. Hann nú kominn heim úr Afríkuferð sinni, en eins og les-
endur Fólks í fréttum kannski muna þá fór hann til Eþíópíu á dögunum.
Þar bíður hungurdauði milljóna manna líkt og þegar Bob hóf hjálparstarf-
ið með aðstoð frægra popptónlistarmanna fyrir tveimur árum. Geldof
ásakar nú stjómvöld í Addis Ababa fyrir að hafa notað peningana sem
söfnuðust til að kaupa vopn 0g fjármagana styijaldir. Hann skipuleggur
nú fund með forseta Eþíópíu, Mengistu Haile Mariam þar sem hann
krefst skýringa á því hvað orðið er af þeim 840 milljónum sem söfnuðust
á Live Aid tónleikunum árið 1985.