Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
TÖLUÐ LJÓÐ
NotaAu símann þinn
botur!
Hringdu í Gulu línuna og
fáðu ókeypls upplýsingar
um vðrur og þjónustu.
DÆMI:
Arkitekt, arinhleðslu, antikvörur,
áklæöi, álsmiði, baöherbergisvörur,
baðtækni, barnavörur, bilavarahluti,
bilaviðgeröir, bókhaldsþjónustu,
blóm, borðbúnaðarleigu, bókbind-
ara, bruggefni, byssuviðgerðir,
byggingavörur, danshljómsveit,
dráttarbeisli, dúkfagningamenn,
dúkkuviðgerðir, eldhústæki, farsima,
fatabreytingar, fiskvinnsluvélar,
flisalagnir, frystihólf, förðun, föndur-
vörur, gardinur, gardinuhreinsun,
gámaþjónusta, gínur, gler, gluggaút-
stillingar, gullsmið, gúmmibát,
gúmmifóðrun, húsasmið, húsgagna-
smið, hljóðfæraviðgerðir, hótelvör-
ur, húsgagnasprautun, innanhúss-
arkitekt, innheimtuþjónusta,
innflutningsaðstoð, innrömmun,
járnsmiði, kennslu, kúnststopp, leð-
urhreinsun, lekaviðgerðir, Ijósmynd-
un, loftræstikerfi, lögfræðing,
markaðsráðgjöf. málverkaviðgerðir,
mótorhjólakennslu, múrara, mynd-
bandsþjónustu. orgelviðgerðir,
oliuúðun, peningaskápa, píanóstill-
ingar, pipulagningamenn, plexigler,
prentþjónustu, raftækjaviögerðir,
rafvirkja, reykskynjara, ritvinnslu,
ryðvörn, ræstingu, samkomusal,
saumakonu, silkiprent, sjónvarps-
viðgerðir, sjónvörp, skallameðferð,
skattaaðstoð, skemmtikraft, skjala-
þýðanda, skrifstofuvélar, skrifstofu-
húsgögn, skrifstofuþjónustu,
skósmið, snjóbræðslukerfi, snyrt-
ingu, sorplúguhróinsun, stálvaska-
slipun, stiflulosun, svefnherbergis-
húsgögn, skerpingar, teikningu,
tiskuvörur, tollskýrslugerð, trésmið,
tölvuskráningu, úrbeiningu, útgáfu-
þjónustu, varahluti, vatnsrúm, veit-
ingar, veitingahúsavörur, verka-
menn, verkfæri, vélaþvott, vélritun,
vélsmiðju, vinnugalla, þjófavarnar-
kerfí, þúsundþjalasmið, þýðingar,
ökukennara.
GUIA
62 33 88
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Jacques Prévert: LJÓÐ í
MÆLTU MÁLI. Sigurður Páls-
son þýddi.
Mál og menning 1987.
Nú hefur Sigurður Pálsson þýtt
Paroles eftir Jacques Prévert
(1900-1977), rómuðustu ljóðabók
þessa franska skálds sem var fyrst
gefín út 1945, en hefur margoft
verið endurprentuð síðan. Fleiri
hafa þýtt ljóð úr Paroles, meðal
þeirra Jón Oskár, en þess er hvergi
getið í útgáfu Máls og menningar
og ekki heldur sögð deili á Jacques
Prévert. Það hefði að mnum dómi
verið við hæfí því þrátt fyrir vin-
sældir skáldsins í Frakklandi vita
fáir um hann hér.
Ljóð Jacques Prévert eru líkt og
mælt af munni fram, ákaflega ein-
fold og á skiljanlegu máli. Þess er
gætt að hafa ljóðin ekki torræð um
of, en engu að síður eru þau full
af merkingum sem ekki liggja alltaf
í augum uppi. Jacques Prévert orti
helstu ljóð sín eftir að byltingartím-
ar í ljóðlist voru um garð gengnir,
uppreisn súrrealista, og naut góðs
af tilraunum þeirra. Hans hlutverk
var að sætta, gera hina flóknu
myndveröld fyrirrennara sinna við
alþýðu hæfí. Það fór líka svo að
margir textar hans voru sungnir,
hann varð eins konar þjóðskáld og
um leið skáld sem höfðaði til atlra,
innan Frakklands og utan.
í ljóðum Sigurðar Pálssonar er
nógu mikið af leik og íþrótt máls
til þess að draga megi þá ályktun
að hann sé einkar vel til þess fallinn
að þýða Jacques Prévert. Sú ályktun
er vissulega ekki út í hött því að
margt gerir Sigurður vel í glímu
sinni við Jacques. En því er ekki
að neita að víða í þessum þýðingum
er stirðleiki sem gerir það að verk-
um að ljóðin verka þunglamaleg og
uppskrúfuð þegar þau ættu að bera
léttleikanum vitni. Sigurði ber fyrst
og fremst að þakka það sem vel
tekst, til dæmis eftirfarandi þýð-
ingu:
Fuglinn sem flýgur svona rólega
Fuglinn rauði og hlýi eins og blóðið
Fuglinn blíði fuglinn sposki
Fuglinn sem verður hræddur allt í einu
Fugiinn sem rekur sig á allt í einu
Fuglinn sem reynir að flýja
Fuglinn aleinn og skelfíngu lostinn
Fuglinn sem vill lifa
Fuglinn sem vill syngja
Fuglinn sem vill æpa
Fuglinn rauði og hlýi eins og blóðið
Fuglinn sem flýgur svona rólega
Það er hjarta þitt fallega stúlkubam
Hjarta þitt sem brýst um
svona dapurlega
I stinnu og hvítu bijósti þínu
Aftur á móti kann ég síður að
meta þegar ljóð sem eru að öllu
leyti óbrotin verða dæmi um átök
sem kalla fram eitthvað allt annað
en einfaldleik franska skáldsins.
Þetta gildir um nokkur smáljóð-
anna. Obrotið ljóð sem Sigurður
nær að túlka eðlilega er Ég er bara
eins og ég er, en i því eru þessar
línur: „Ég er bara eins og ég er/
Ég er bara svona gerð/ Þegar mig
langar að hlæja/ Þá skelli ég upp-
úr/ Ég elska þann sem elskar mig/
Er það mér að kenna/ Þó það sé
ekki sá sami/ Sem ég elska í hvert
skipti." Hér er orðalagið óþvingað
í anda Préverts, en ekíci bóklegt.
Sigurður Pálsson
Stundum heyrast raddir um að
það sé nú munur að þýða verk
skálds í heild eða heila bók með
þeim í staðinn fyrir þá aukagetu
sem lýsir sér í því að skáld þýða
eitt og eitt ljóð. En mér er nær að
halda að betur geti farið á slíku.
Til þess að þýða ljóð þarf þýðandinn
að hugsa sér áð hann sé að yrkja
það sjálfur. En sé hann einhverra
hluta vegna að þýða heilar bækur
getur þýðingarstarf hans verið til
marks um takmarkaðan áhuga og
þá missir viðleitnin tíðum marks.
ggg 1 Sr ^ S§
W m tSST
■ Æ f^m
Fersk nýjxing frá ORA!
Enn bætír ORA víð úrvalíð — nú eru komnar hvorkí
meíra né mínna en sjö tegundír af frystu, ljúffengu grænmetí.
Það á vel víð allan mat og er eínkar auðvelt í matreíðslu.
Frysta grænmetið frá ORA fæst nú á kynningarverðí
í öllum matvöruverslunum.