Morgunblaðið - 17.12.1987, Blaðsíða 60
Þykkwkœjm
~ -Þar vex sem vel er sáð!
JltagtiitWafrife
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
♦ «UZUKI
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Hafrannsóknastofnun:
LIU styrkir rann-
sóknir sem felldar
eru niður á fjárlögum
STJÓRN Landssambands
fslenskra útvegsmanna hefur sam-
þykkt að fjármagna eitt af
ásetlunarverkefnum Hafrann-
Islendingar í Hull:
Fá falskar
tennur fyrir
3.000 krónur
NOKKUÐ hefur verið um að
íslendingar hafi farið til Hull
i Bretlandi i ár til að kaupa
falskar tennur. Þar kosta þær
um 3.000 islenskar krónur, sem
er aðeins hluti af þvf verði sem
falskar tennur kosta á íslandi.
Að sögn Péturs Bjömssonar í
Hull var upphaf þessa máls að
nokkrir íslendingar fóru til tann-
læknis í Hull í fyrra er þeir voru
að landa fiski þar, og fannst þeim
reikningurinn lágur miðað við
tannlæknakostnað á íslandi. í
framhaldi af þessu spurðust þeir
fyrir um verð á fölskum tönnum,
og fengu það uppgefið að þær
kostuðu 46 ensk pund, sem em
rétt rúmar 3.000 íslenskar krón-
ur. Þetta lága verð fæst með
niðurgreiðslum frá ríkinu, en á
einkastofum mun verðið vera
rúmlega tvöfalt hærra.
sóknastofnunar á næsta ári, eftir
að fjárveitinganefnd hafði hafnað
fjárveitingu til verkefnisins. Að
sögn Kristíáns Ragnarssonar,
formanns LIÚ, er þetta i fyrsta
sinn sem einkaaðilar leggja fé til
rannsókna á vegum opinberrar
stofnunar að eigin frumkvæði, og
kvað hann hér vera um stefnu-
markandi áðgerð að ræða.
Rannsóknaverkefnið er ætlað til
þess að mæla sókn fiskiskipafiotans
með betri hætti en verið hefur, með
þvf að skipuleggja skráningu á þvi
hvar og hvað mikið hver bátur veið-
ir, og vinna síðan úr þeim upplýsing-
um sem þannig saftiast. LÍU mun
leggja 2,3 milljónir til verkefnisins á
næsta ári, sem er sú upphæð sem
Hafrannsóknastofnun hafði áætlað
til þess. Jafiiframt ætlar LÍÚ að flár-
magna rannsóknimar næstu tvö ár
þar á eftir, og munu þær þá kosta
alls um 7 milljónir króna á núgild-
andi verðlagi.
Ástæðumar fyrir þessari ákvörðun
eru tvær, að sögn Kristjáns Ragnars-
sonar; í fyrsta lagi telja útvegsmenn
að um mjög mikilsverðar rannsóknir
sé að ræða, en einnig sé stuðlað að
bættum samskiptum milli Hafrann-
sóknastofnunar og atvinnugreinar-
innar.
Aðspurður sagði Kristján að ekki
bæri að líta á ákvörðunina fyrst og
fremst sem neyðarúrræði vegna nið-
urskurðar, heldur gæti hún verið
fordæmi fyrir framtíðina.
150 milljóna lánsloforð seld:
Afföll 12 milljóiiir og
jsölulaun 3 milljónir
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, sagði á Alþingi i
gær, að vitað væri um sölu 148
einstaklinga á lánsloforðum Bygg-
ingarsjóðs rfkisins, samtals að
fjárhæð 150 mil^ónir króna. Af-
föll i sölu næmu samtals 12 m.kr.
og sölulaun 3 m.kr. Rýrnun við
sölu væri samtals 15 m.kr.
Þessar upplýsingar komu fram í
ræðu ráðherrans í efri deild Alþingis
í gær, er húsnæðisfrumvarp ríkis-
stjómarinnar var þar til fyrstu
umræðu, komið frá neðri deild. Um-
ræðunni lauk og gekk frumvarpið til
nefndar.
Ráðherra staðhæfði að fjármagns-
síreymi, af þessum sökum, út á hinn
almenna markað, hafi aukið á þenslu
og hækkað húsnæðisverð. Ef hús-
næðislánakerfið hefði verið opnað á
ný, að öðru óbreyttu, hefði það þýtt
.afgreiðslu á 4.000 umsóknum með
DAGAR
7
TIL JÓLA
tilheyrandi lánsloforðum og mark-
aðsáhrifum, sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Sjá nánar um þetta mál og önn-
ur þingmál á blaðsiðu 35 f
Morgunblaðinu i dag.
Morgunblaðið/RAX
Mikið annriki er f pósthúsum Iandsins og bögglam-
ir hlaðast upp.
Jólapósturinn:
Skilafrest-
ur á böggl-
umerídag
AFGREIÐSLA á jólapóstinum í ár hefur
gengið greiðlega, að sögn Björns Björasson-
ar, yfirpóstmeistara í Reykjavfk, og svo
virðist sem fólk sé snemma á ferðinni með
hann. í dag, fimmtudag, er síðastí skiladagur
fyrir pakka innanlands ef fólk vill vera ör-
uggt um að þeir komist á áfangastað fyrir
aðfangadagskvöld. Skussarnir sleppa þó
líklegast fyrir hora þó að þeir dragi sending-
ar i örfáa daga i viðbót, ef bliðviðrið helst
áfram.
Alls munu um 150 manns, aðallega skólafólk,
fá aukavinnu við afgreiðslu á jólapóstinum, og
ekki veitir af alls munu um þijár og hálf milljón-
ir jólakorta vera send hér innanlands, auk 80.000
böggla. Þá eru um 60 tonn send erlendis í
bögglapósti í desembermánuði, og annað eins
berst til landsins. Að sögn Bjöms Bjömssonar
verður líklega um 10% aukning á jólapóstinum
frá því í fyrra.
Síðasti auglýstur skiladagur fyrir bögglapóst
erlendis var síðasta þriðjudag, en bögglar em
sendir út morguninn eftir að þeir berast, og jóla-
pósturinn er afgreiddur alveg fram til jóla,
þannig að enn er möguleiki á að pósturinn kom-
ist til skila á réttum tíma þó að menn séu seinna
á ferðinnni en Póstur og sími telja ráðlegt.
Gífurleg sala á heimilis-
tækjum undanfama daga
Ein verslun seldi á fjórða hundrað þvottavéla á 10 dögum
GÍFURLEG sala hefur veríð á ýmíss konar heimilistækjum eftir
að breytingar á aðflutningsgjöldum um næstu áramót komu til
umræðu. „Eg hef aldrei kynnst annarri eins föm,“ sagði Þórir
Bergsson, verslunarstjóri heimilistækjadeildar hjá Smith og Nor-
land. „Undanfarna 10 daga höfum við selt á fjórða hundrað
þvottavéla og annað eins af kæliskápum og raunar hvers konar
heimilistækjum.“
,Maður á að venjast því að
verslun með heimilistæki, einkum
kæliskápa og uppþvottavélar, sé
mikil vikumar fyrir jól en þetta
árið held ég að öll met verði sleg-
in,“ sagði Þórir. „Það hefur komið
okkur til góða að við áttum hálf-
partinn von á einhverju í þessa
áttina og höfðum mikið af vörum
í tollvörugeymslunni, en það er
farið að ganga verulega á birgðim-
ar. Við emm nú að reyna að ná
inn sendingum fyrir áramót." Þór-
ir sagði að vömr eins og frysti-
skápar og þurrkarar, sem áætlað
er að lækki í verði um áramótin
seldust vel og væri ekki að sjá að
fólk vildi bíða eftir lækkununum.
„Verslunin er lífleg, því er ekki
að neita," sagði Birgir Om Birgis,
verslunarstjóri hjá Heimilistækj-
um. „Við seljum hér fleiri tugi
þvottavéla, ísskápa, uppþvottavéla
og hvers kyns heimilistækja á
hveijum degi. Ennþá eigum við
flestar tegundir en þó hugsa ég
að síðustu uppþvottavélamar selj-
ist í dag eða á morgun. Við vomm
mjög vel birgir fyrir jólatömina."
Birgir sagði greinilegt að hækkan-
imar sem von er á um áramót
ýttu á fólk en þó taldi hann ekki
að verslunin væri meiri en oft á
undanfomum ámm, „þegar von
var á stómm gengisfellingum",
sagði Birgir. Hann kvaðst einnig
telja að margir ættu von á gengis-
fellingu um eða eftir áramót og
að það kynti enn frekar undir við-
skiptin. „Það em helst hljómflutn-
ings- og myndbandstæki sem
hreyfast lítið núna en þurrkarar
og frystiskápar seljast nú alveg
jafnt og áður,“ sagði Birgir. Eins
og fram hefur komið er áætlað
að tollar á þurrkumm, frystikist-
um, hljómflutnings- og mynd-
bandstækjum lækki um áramót.
Leigubíla-
gjald hækkar
Verðlagsráð hefur heimil-
að 8% hækkun á töxtum
leigubíla og á far- og farm-
gjöldum sérleyfis- og hóp-
ferðabifreiða.
Hækkun þessa samþykkti
nýskipað Verðlagsráð á sínum
fyrsta fundi fyrir skömmu.