Morgunblaðið - 17.12.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
rivkW*
. r » ] JR í i ^frTT*- —
Karsnosbraut t OfirSil Jt..«a044.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
)0§[M][§;K1<
Albragfejélt^jsfir:
Útnrpstttkl frá SIEHENS
RK 621: Útvarpstæki, minna
en vasabrotsbók!
Með FM, miðbylgju, lang-
bylgju og 7 stuttbylgjusvið-
um. Stereó í heyrnartæki.
Tenging fyrir spennl.
Verð: 4860 kr.
RM 853: Útvarps- og segul-
bandstæki.
FM og miðbylgja.
Innbyggður hljóðnemi.
Verð: 3860 kr.
V___________________________y
-------------------—
SMITH & NORLAND
IMóatúni 4 — Sími 28300.
V____________;______J
Steinunn Eiríks-
dóttir - Minning
Lág vexti, kvik í hreyfíngum,
létt í lund óg þægileg í viðmóti
eru orð sem koma í hugann þeg-
ar við lítum yfír samfylgdina með
Steinunni Eiríksdóttur, Langeyr-
arvegi 14, Hafnarfírði. Steinunn
lést 8. desember sl. 84 ára að
aldri. Hún fæddist 20. janúar
1902 að Berghyl í Hrunamanna-
hreppi, dóttir hjónanna Sigríðar
Sæmundsdóttur og Eiríks Run-
ólfssonar er þar bjuggu. Þau
hjónin fluttu 1899 frá Hraunbæ
í Álftaveri.
Steinunn ólst upp í Berghyl
og vann við almenn sveitastörf
innan húss og utan. Hún bjó í
Berghyl ásamt bróður sínum
Sæmundi frá 1935 til 1946 og á
móti þeim bjuggu Runólfur bróð-
ir þeirra og hans kona. Steinunn
flutti til Hafnarfjarðar og 7. nóv-
ember 1953 giftist hún Þorgeiri
Magnússyni frá Villingavatni í
Grafningi. Þegar hann flutti til
Hafnaríjarðar 1948 keypti hann
neðri hæðina á Langeyrarvegi
14 og þar áttu þau heimili sitt á
meðan bæði lifðu.
Þorgeir átti við heilsubrest að
stríða einkum síðustu árin og
naut hann þá góðrar umönnunar
konu sinnar, sem einskis lét
ófreistað til þess að honum liði
sem best. Ég kynntist þeim hjón-
um er dóttir mín keypti efri
hæðina á Langeyrarvegi 14.
Sambýlið við þau hjón var með
afbrigðum gott. Gerðar voru
breytingar og byggt við húsið
vegna efri hæðarinnar og þau
hjónin, Steinunn og Þorgeir,
sýndu aldrei annað en liðlegheit
í því sambandi. Aldrei var kvart-
að yfír óþægindum eða hávaða
sem slíku fylgdi heldur glaðst
yfir hveijum áfanga sem náðist.
Og alltaf var viljinn fyrir hendi
að hjálpa ef með þurfti.
Steinunn skildi vel yngra fólk
og fannst eðlilegt að það vildi
breyta hlutum og fagnaði því.
Það var eins og hún yrði aldrei
gömul. Hún fylgdist vel með og
las mikið. Hún dekraði við blóm-
in sín og hafði unun af fögru
umhverfi. Hún var heilsteypt,
hreinskilin og trygglynd. Hún var
góður samferðamaður, sem ekki
kvartaði en tók vel eftir björtu
hliðunum. Og æðrulaust bar hún
veikindi sín og virtist bæði reiðu-
búin og sátt við þau vistaskipti,
sem dauðinn boðar. Hún kvaddi
í jólamánuðinum og birta og boð-
skapur jólanna var henni raun-
verulegur og sannur.
Það var mannbætandi að eiga
um nokkur ár á lífsleiðinni sam-
fylgd með jafn hlýjum og góðum
samfeðamanni og Steinunn var.
Við þökkum samfylgdina og biðj-
um henni blessunar á nýjum
vegum. Samúðarkveðjur flyijum
við vinum og aðstandendum.
Páll V. Daníelsson
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða éldra.
Áhersla lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð með tvö-
földu linubili.
3
8
í dag, fimmtudaginn
17. desember frá kl. 15 til 17:
árítar nýútkomna bók sína,
DAGAR HJÁ MÚNKIIM, í bókabúð Máls
og menningar, Laugavegi 18.
Sendum einnig árituð eintök
ípóstkröfu.
HALLD0R
LAXNESS
-----m------
Bwkabúð
LmALS & MENNINGAR J
LAUGAVEG118, SÍMI24240