Morgunblaðið - 17.12.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
Opiö á laugardögum
HfíRSKEfílNN
Permanent - Litanir - Stripur - Djúpnœring
Skúlagötu 54. Sími: 28141
V
MEÐ MÖRGU FÓLKI
Auðunn Bragi Sveinsson
Auðunn Bragi Sveinsson, fyrrverandi kennari og skóla-
stjóri, hefur ritað margt sem birst hefur í biöðum og tíma-
ritum í gegnum árin í ljóðum og lausu máli, og einnig
hefur hann ritstýrt nokkrum bókum. Bók sú sem hér
birtist fjallar fyrst og fremst um fólk við ólík skilyrði og í
mismunandi umhverfi, — frá afdal til Austurstrætis, ef svo
má að orði komast. Mcð mörgu fólki er heitið, sem
höfundur hefur valið þessu greinasafni sínu. Mun það vera
réttnefni. I
SKVGGSJÁ
BÓKABVÐ OLIVERS STEINS SF
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hér fara á eftir spurningar
lesenda Morgunblaðsins um
staðgreiðslu opinberra gjalda
og svðr embættis ríkisskatt-
stjóra við þeim.
Steinþór Kristjánsson spyr:
Hvert eiga þeir sem fá lífeyris-
greiðslur frá Tryggingastoftiun,
en hafa jafnframt nokkrar tekjur,
t.d. umboðslaun, að skila skatt-
korti sínu?
Svar: Eðlilegast er að lífeyris-
þegi afhendi Tryggingastofnun
skattkort sitt. Ef sami lífeyrisþegi
hefur launatekjur annars staðar
frá er rétt að hann afhendi auka-
skattkort þeim aðila sem greiðir
honum laun.
Jórunn Eggertsdóttir spyr:
Við hvað á að miða við skattlagn-
ingu bænda þegar staðgreiðslu-
kerfi hefur verið tekið upp?
Svar: Bændur teljast sjálfstæð-
ir atvinnurekendur. Sem slíkum
ber þeim að reikna sér endurgjald
fyrir starf við reksturinn. Ríkis-
skattstjóri ákveður lágmark
reiknaðs endurgjalds í stað-
greiðslu samkvæmt viðmiðunar-
reglum sem hann ákveður fyrir
upphaf staðgreiðsluárs. Lágmarki
reiknaðs endurgjalds skal ríkis-
skattstjóri breyta á staðgreiðslu-
ári í samræmi við þróun launa og
tekna í viðkomandi starfsgrein.
Viðmiðunartelqur þeirra sem
landbúnað stunda skulu miðast
við vinnuþátt í verðlagsgrundvelli
landbúnaðarafurða að frádregn-
um einum þriðja, þó að teknu tilliti
til aðstæðna hveiju sinni, svo sem
þess hvort bændur nái heildartekj-
um grundvallarbúsins vegna
þróunar afurðaverðs eða annarra
atriða er máli skipta að mati ríkis-
skattstjóra.
Björgvin Björnsson spyr:
Sonardóttir mín býr hjá mér og
hún er með bam á framfæri. Get
ég fengið einhvem skattfrádrátt
vegna þess?
Svar: Nei, persónuafslátt má
eingöngu miílifæra á milli hjóna
eða samskattaðra sambúðaraðila.
Þórhallur Þorsteinsson spyr:
Ég vinn hjá hinu opinbera og fæ
dagpeninga þegar ég fer til starfa
Qarri heimili. Eg nesta mig venju-
lega að heiman, enda em ferðimar
oftast eins til tveggja daga. í
mánaðarlok fylli ég út vottorð sem
tilgreinir hvenær er farið og hvert
og til hvers og hvenær er komið
til baka og fæ greitt eftir þessu
vottorði. Þarf ég að leggja fram
nótur fyrir fæði og húsnæði til
að fá skattafslátt, og hvemig
geri ég það í þessu tilfelli?
Svar: Ekki ber að draga stað-
greiðslu af dagpeningum ef fyrir
liggja gögn, bæði hjá launagreið-
anda og launamanni, sem til-
greina ferðadaga, erindi, flárhæð
dagpeninga o.fl. Af ferðapening-
um sem greiddir em án þess að
gerð sé grein fyrir ferðum í ein-
stökum atriðum, ber að draga
staðgreiðslu. Launamaður getur
þó með framtali sínu lagt fram
gögn um sannanlegan ferðakostn-
að og kemur hann þá til frádráttar
tekjum við álagningu. Öllum
gögnum vegna útlagðs kostnaðar
í þágu vinnuveitanda ber launa-
mönnum að halda til haga.
Þorsteinn Gunnarsson spyr:
Getur maður nýtt persónuafslátt
móður sinnar ef maður er fyrir-
vinna heimilisins og hún nýtir
ekki allan sinn persónuafslátt?
Svar: Nei, um þetta vísast til
svars við spumingu Björgvins
Bjömssonar.
Oddur Pálsson spyr: í bækl-
ingnum um staðgreiðslu skatta
segir á bls. 11 í lið 3 að vátrygg-
ingabætur séu skattlagðar
samkvæmt nýja skattkerfinu. Em
allar vátryggingabætur skatt-
lagðar? Hvar finnast nánari lög
og reglur um þetta?
Svar: Samkvæmt lögum um
tekjuskatt og eignarskatt em vá-
tryggingabætur undanþegnar
vissum sköttum. Em það greiðslur
vegna líftryggingafjár, dánar-
bóta, miskabóta og bóta fyrir
varanlega örorku. Skilyrði er að
bætumar séu ákveðnar í einu lagi
til greiðslu. Einnig em undan-
þegnar skaðabætur og vátrygg-
ingabætur vegna tjóns á eignum.
Þar er skilyrði að eignimar séu
ekki notaðar í atvinnurekstri.
Hjalti Árnason spyr: Skiptir
máli hvort sambýlisfólk sé í
óvígðri sambúð eða vígðri hvað
varðar húsnæðisbætur? Á það
ekki rétt á tvöföldum húsnæðis-
bótum í báðum tilfellum?
Svar: Jú, húsnæðisbætur em
miðaðar við einstakling, þannig
að hjón eða sambúðaraðilar sem
rétt eiga á samsköttun fá tvöfald-
ar húsnæðisbætur.
Jóhannes Jóhannsson spyr:
Varðandi ökutækjagreiðslur. Ég
er opinber starfsmaður sem verð
að keyra út og suður. Fyrir nokkm
gerði ég ökutækjasamning, að
undangenginni aksturskönnun,
um ákveðinn kílómetrafjölda á ári
sem ég hef fengið greitt eftir.
Verður þessi samningur tekinn
gildur áfram og ökutækjagreiðsl-
an því ekki skattlögð?
Svar: Staðgreiðslu ber ekki að
draga af bílapeningum ef fyrir
liggja gögn um akstur og jafn-
háan útlagðan kostnað launa-
manns. Skilyrði er að færð sé
akstursbók eða akstursskýrsla
þar sem fram kemur aksturser-
indi, vegalengd og kflómetragjald.
Af ökutækjastyrk sem er föst
greiðsla ber hins vegar að draga
staðgreiðslu. Þó kemur ökutækja-
styrkur til frádráttar tekjum við
álagningu að því marki sem til-
skilin gögn um aksturinn, lögð
fram með skattframtali segja til
um. Ljóst er af þessu að samning-
ur um fastar greiðslur nægir ekki
til þess að launagreiðanda sé
heimilt að undanþiggja þær stað-
greiðslu.
J
Raðgreiðslur VISA-, ódýr
og þægilegur greiðslumáti
Léttiö greiðslubyrðina með mánaðarlegum raðgreiðsl-
um VISA í allt að 12 mánuði vegna stærri viðskipta eða
við greiðslu eftirstöðva ferðakostnaðar,
tryggingagjalda o.fl.
Raðgreiðslur eru ódýrari greiðslumáti en venjulegir
afborgunarsamningar og til muna þægilegri, bæði fyrir
kaupanda og seljanda.
Með Raðgreiðslum VISA bjóðast þér ferðir og ferða-
lög, heimilistæki, tryggingar, sportvörur, hljómtæki,
húsgögn, byggingavörur, Ijósmyndavörur, tölvubúnaður,
skrifstofutæki, steypa og jafnvel bílar. Fleiri og fleiri
fyrirtæki bjóða nú þennan þægilega greiðslumáta.
Þægindi og þjónusta eru aðalsmerki VISA. Korthafar
VISA þekkja eftirfarandi hlunnindi: ferðaslysatryggingu,
sjúkratryggingu (erl.), viðlagaþjónustu (erl.), bankaþjón-
ustu (erl.), hraðbankaþjónustu (erl.), gistiþjónustu, vildar-
kjör, tímaritið VILD.
Nú eiga korthafar VISA enn fleiri kosta völ.
VISA: l! éSL
Boðgreiðslur, ^H^H^^HHH
Raðgreiðslur, VIC/j
Símgreiðslur.
STYRKTARAÐILI ÓLYMPÍULIÐS ÍSLANDS
Þórður Kristínsson
Myndavíxl
Leiðinlegt mistök urðu í blaðinu
í gær, er myndir víxluðust. Mynd
af Þórði Kristinssyni, sem fylgja
átti grein hans „Ráðhúsið og
íslenski stíllinn" lenti með ritdómi
á öðrum stað í blaðinu, en myndin,
sem honum átti að fylgja, kom með
grein Þórðar. Blaðið biður viðkom-
andi afsökunar á þessu.
&TDK
HUÓMAR
BETUR