Morgunblaðið - 17.12.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUD'AGUR 17. DESEMBER 1987
59
Amör Quöjohnssn.
FOLX
■ ARNÓR Guðjohnsen varð
Belgíumeistari með Anderlecht á
síðasta keppnistímabili sem kunn-
ugt er. Þá kom fram að Köln í
Vestur-Þýskalandi vildi fá kappann,
en í bók Víðis Sigurðssonar, Am-
ór bestur í Belgíu er greint frá
þvi að þjálfari Sampdoria á Ítalíu
vildi krækja í íslendinginn, en for-
seti félagsins vildi framlengja
samninginn við Brasilíumanninn
Cerezo og það varð ofan á. „En
ég hafði fundið lyktina af Ítalíu og
þangað langar mig til að komast.
Ef ég yfirgef Anderlecht þarf stökk-
ið að vera stórt til þess að mínum
metnaði sé svalað, og þá má segja
að Ítalía og Spánn séu einu löndin,
sem komi til greina," segir Amór
í bókinni.
■ TRYGGVI Sigmannsson,
skotmaður ársins, setti ísiandsmet
í byssukeppni (standandi) á opnu
móti í Noregi fyrir skömmu. Hann
fékk 567 stig og bætti metið um
þrjú stig.
I LTVERPOOL gerir það gott
víðar en á Englandi. í gær lauk
jólamóti KR í 6. flokki b í knatt-
spymu innanhúss með sigri
Liverpool eftir harða keppni við
Arsenal og Tottenham. í a-hópnum
standa Liverpool og Tottenham
best að vígi!
■ WANNE Eickel, lið Bjarna
Guðmundssonar, tapaði ekki leik
í íslandsferðinnL Liðið gerði jafn-
tefli við Val í fyrsta leik, sigraði
síðan Fram og í fyrrakvöld vann
liðið FH 32:31.
■ SIGURSTEINN Gíslason,
sem lék með 1. deildarliði KR f
knattspymu í sumar, ætlar að flytja
til Akraness eftir áramótin og leika
með Skagamönnum næsta keppn-
istímabil, en hann átti áður heima
á Skaganum.
■ ROBERT Fleck var í gær
seldur frá Rangers til Norwich
City. Liðið berst í bökkum í 1. deild-
inni ensku og reiddi fram 500.000
sterlingspund fyrir Fleck, sem er
21 árs framheiji, hefur átt erfítt
með að komast í lið Rangers, því
þar eru margar stjömur fyrir eins
og flestir vita.
Eins og fram hefur komið, keypti
Norwich einnig miðvörðinn John
O'Neil í fyrradag og er því sýnt
að liðið mun nú selja miðvörð sinn
Steve Bruce til Manchester Un-
ited fyrir 625.000 pund.
■ Don MacKay, stjóri Black-
burn, og forseti félagsins hurfu
sporlaust í gær. Lék grunur á því
að þeir hefðu smellt sér til Barcel-
ona að athuga hvort þeir gætu ekki
freistað Steve Archibald, skoska
landsliðsmannsins sem kemst ekki
f lið hjá E1 Barca. Er álitið á Bret-
landseyjum nú, að sé grunurinn
réttur, þá fyrirfinnist ekki bjart-
sýnni menn, því Archibald fær um
3000 pund á viku í laun hjá
spænska félaginu þótt hann ýmist
vermi bekkinn eða leiki með varalið-
inu.
■ DAVE Pleat, fyrrum stjóri
Tottenham, verður trúlega næsti
stjóri Leicester, en gamalþekkta
miðlandaliðið rak stjóra sinn fyrir
skömmu, gamla norður írska lands-
liðsmanninn Brian Hamilton.
KNATTSPYRNA / EVROPUDRATTUR
Real Madrid gegn Bayern í 8-liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða:
Ég spái að þetta verði
úrslitaleikir keppninnar
- sagði forseti Real, Ramon Mendoza, eftir að Ijóst var hvemig dregist hafði
SNILLINGAR Real Madrid, sem
hafa slegiA Diego Maradona
og fólaga hjá Napolíog Evrópu-
meistara Porto út úr Evrópu-
keppni meistaraliða, mœta
Bayern Munchen í 8-lifia úrslit-
um keppninnar.
Dregið var í Evrópukeppninni í
gær. Amór Guðjohnsen og
félagar í Anderlecht drógust gegn
Portúgalska liðinu Benfica — meist-
urunum frá því í vor, en Benfíca
hefur ekki gengið allt of vel það
sem af er vetri.
Þess má geta að Bayem Miinchen
sló Real Madrid út úr Evrópukeppn-
inni á síðasta keppnistímabili,
1986/87 í sögulegum viðureignum.
Eftir leik liðanna í Madrid var Real
sektað og sett í heimaleikjabann.
Félagið lék gegn Napolí án þess
að áhorfendur vom á leiknum og
síðan léku þeir gegn Porto í Valenc-
ia, nokkur hundmð kílómetmm frá
heimavelii sfnum.
ForrAðamann Bayem
og Raal óhresslr
Það er mikið um stórleiki í 8-liða
úrslitum mótanna þriggja, en viður-
eign þessara risa í keppni meistara-
liða er þá lang athygliverðust. „Ég I
datt nærri því úr stólnum mínum.
Það er hræðilegt að mæta Real
Madrid," sagði Fritz Scherer, for-
seti Bayem, eftir að dregið hafði
verið. Hann bætti síðan við: „En
við slógum Real út úr keppninni á
síðasta tímabili. Hví ætti okkur
ekki að takast það aftur. Okkur
leið ákaflega illa fyrst í stað, en
síðan hittum við forseta Real. Hon-
um leið augsjáanlega enn verr og
við það skánaði okkur örlítið!"
Forseti Reai, Ramon Mendoza,
sagði: „Það er slæmt að við skildum
lenda gegn Bayem. Ég hef það á
tilfinningunni að sigurvegaramir
úr þessari rimmu standi uppi sem
Evrópumeistarar í vor. Þetta er
nokkurs konar úrslitaleikur keppn-
innar að mfnu mati,“ sagði
Mendoza.
Mark Hughos og félagar
f Bayem mæta Real
Madrid frá Spáni...
Hugo Sanchaz hjá Real
fær því effiða mótheija
þriðju umferðina í röð.
Eftirtalin iið mætast í 8-liða úrslitum
Evrópukeppninnar í knattspymu, mótun-
um þremun
KEPPNI MEISTARALIÐA
Bordeaux, FrakkL - Eindhoven, Hollandi
Steaua, Rúmeníu - Rangers, Skotlandi
Bayem, V-Þýskal. - Real Madrid, Spáni
Benfica, Portúgal - Anderlecht, Belgíu
KEPPNI BIKARHAFA
Mechelen, Belgíu - D. Minsk, Sovétrílq.
Atalanta, Ítalíu - Sporting, Portúgal
Young Boys, Sviss - Ajax, Hollandi
Marseille, Frakkl. - Rovaniemen, Finnl.
UEFA-KEPPNIN
- Espanol, Spáni - Vitkovice, Tékkósl.
Leverkusen, V-Þýskal. - Barcelona, Spáni
Verona, Ítalíu - W. Bremen, V-Þýskalandi
Pan. Aþena, Grikkl. - FC Briigge, Belgíu
Fyrri leikimir eiga að fara fram miðviku-
daginn 2. mars 1988 og seinni leikimir
miðvikudaginn 16. mars.
VERÐLAUNAVEITINGAR
Nítján
heiðraðir
SÉRSAMBÖND innan ÍSÍ, 19
talsins, veittu hin árlegu verft-
laun sín í fyrrakvöld til þeirra
sem útnefndir eru (þrótta-
menn ársins af hverju fyrir
sig, en Frjálst Framtak gefur
verðlaunagripi til þess arna.
Skotmaður ársins var kjörinn
Tryggvi Sigmansson
skammbyssuskytta. Glímumaður
ársins var valinn Eyþór Pétursson
HSÞ, Ami Einarsson KFR karate-
maður ársins, Ásta Úrbancic úr
Eminum borðtennismaður ársins,
Jón Kr. Gíslason, ÍBK, körfu-
knattieiksmaður ársins, Kristján
Sigmundsson, handknattleiks-
maður árins, Bjami Ágúst Frið-
riksson, Ármanni, júdómaður
ársins, Guðmundur Helgason KR,
lyftingamaður ársins, Sigurborg
Gunnarsdóttir UBK blakmaður
ársins, Pétur Ormslev, Fram
knattspymumaður ársins Úlfar
Þorbjömsson tennismaður ársins,
Morgunblaöiö/BAR
Krlstján Slgmundsson, einn íþróttamannanna nftján, sem hlutu viður-
kenningu, tekur við bikar sfnum úr hendi Magnúsar Hreggviðssonar,
stjómarfomns Frjáls Framtaks.
Guðjón Guðmundsson Armanni
fimleikamaður ársins, Haukur
Gunnarsson íþróttamaður fatl-
aðra, Einar Ólafsson skíðamaður,
Þórdís Edwald TBR badminton-
maður ársins, Einar Viihjálmsson
UÍA frjálsfþróttamaður ársins,
Úlfar Jónsson golfmaður ársins,
Eðvarð Þór Eðvarðsson sundmað-
ur ársins og loks var Bjarki
Amórsson kjörinn sigiingamaður
ársins.
KNATTSPYRNA EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
Loks skoraðu Tyrkir
SÍÐUSTU leiklmir í Evrópu-
keppni Iand8liða í knattspyrnu
fóru fram í gœrkvöldi. Holland,
sem þegar haffti tryggt sár sig-
ur f 5. riftli, vann Grikkland 3:0
og Júgóalavfa vann Tyrkland
3:2 í 4. riftli.
Hollendingar unnu Kýpurmenn
8:0 fyrr í haust, en gestunum
var dæmdur 3:0 sigur vegna þess
að flugeldum var skotið inn á völl-
inn. UEFA breytti síðan þeirri
ákvörðun sinni, lét leikinn fara fram
aftur og þá unnu Hollendingar 4:0.
Þessu mótmæltu Grikkir með því
að leika á Rhodos f gærkvöldi og
eins stilltu þeir upp unglingaliði
sfnu. Hollendingar tóku leikinn ekki
heldur alvarlega, en skoruðu
þrívegis. Ronald Koeman kom þeim
á bragðið á 19. mfnútu og Hans
Gillhaus, sem kom inná sem vara-
maður, bætti tveimur við undir
lokin.
Tyrkir skoruðu sín fyrstu mörk í
keppninni eftir að Júgóslavar höfðu
komist í 3:0, en heimamönnum
tókst ekki að jafna. Radanovic (5.),
Katanec (40.) og Hajibeyic (54.)
skoruðu fyrir gestina en Yusuf (68.)
og Feyaz (73.) fyrir heimamenn.
HANDBOLTI
ÞjáHariS-
Kóreumeð
fyririestur
Þjálfari suður kóreanska lands-
liðsins í handknattleik verður
með fyrirlestur um íþróttina í dag,
fimmtudag, f húsakynnum íþrótta-
sambands ísiands í Laugardal, og_
hefst hann ki. 20.00. Á morgun^"
verður hann svo með æfingu hjá
liði sfnu f Laugardalshöllinni milli
kl. 15.00 og 17.00 þar sem íslensk-
um þjálfurum er velkomið að koma
og fylgjast með.
V-ÞÝSKALAND
Skellur hjá
Gummersbach
GUMMERSBACH tapafti sínum
fyrsta leik á keppnistfmabHinu
í þýsku úrvalsdeildinni f hand-
knattleik í gærkvöldl. Kiel, sem -
er f 2. sæti, vann 24:19 á heima-
velli sínum aft viðstöddum sjö
þúsund áhorfendum og voru
heimamenn 12:9 yfir í hálfleik.
Leikurinn var jafn til að byija
með, en þegar staðan var 4:4
tók Kiel leikinn f sfnar hendur og
náði þriggja marka forskoti, sem
hélst út hálfleikinn.
Heimamenn gerðu
síðan út um leikinn
á fyrstu átta mínút-
um seinni hálfleíks,
komust í 17:10. • Er sjö mínútiu'
voru eftir var staðan 24:15 og vara-
menn Kiei léku til leiksloka.
Frá
Jóhannilnga
Gunnarssyni
íV-Þýskalandi
Neitzel skoraði fimm mörk fyrir
Gummersbach og Kristján Arason
Qögur, en hjá Kiel var Pólveijinn
Waskewitz markahæstur með sjö
mörk (flögur vfti). . ,